föstudagur, júlí 10, 2009

Rósin mín


Benni færði mér rós úr garðinum sínum :-)

þriðjudagur, júlí 07, 2009

Jess.. æm alæææf..

Jább.. ég er á lífi.. og hef það meira segja bara mjög gott :) er ekki alveg með nennu í blogg en fékk athugasemd um að það væri alveg næstum því kominn mánuður síðan síðast ! þannig að..

Ég hafði það mjög gott í fríinu mínu.. gerði ekkert ;) eða svona næstum því.. synti í sjónum, fór í bústað, fór á rúntinn um sveitina, lá í sundi og gerði ekkert þess á milli :) Davíð litli bró er orðinn giftur maður ! og ég formlega orðin mágkona :) er afar lukkuleg með það.. fór alveg að skæla í athöfninni og allt.. ný liðin helgi snérist öll um brúðkaup og brúðkaups tengda hluti.. var alveg búin á því þegar ég kom heim á sunnudaginn.. en alveg æðisleg helgi í faðmi fjölskyldunnar :)

Framundan er bara vinna og kúr með kæró ;) svo frí aftur í ágúst.. hver veit svo nema ég láti loksins verða af því að trítla upp á Esju.. það er ef einhver sem hefur farið áður vil koma memm..

fimmtudagur, júní 11, 2009

Alveg rétt bráðum..

Í næstu viku.. Sumarfrí :D hluti 1.. ég verð í fríi næstu 2 vikurnar og ætla svo sannarlega að njóta þess.. engin plön nema að trítla upp Esjuna og fara í brunch.. og jú kæró nefndi að reyna komast uppí bústað 1-2 nætur.. ég hlakka svo svakalega til að fara að frí.. mæ ó mæ.. ekki það að mér finnist vinnan mín leiðinleg.. alls ekki.. langar bara að hafa tíma til að gera ekkert ;) þvo fullt af þvotti, taka almennilega til heima hjá mér, hitta vinkonurnar, fara í sund um miðjan dag ;) og kannski fara eitthvað út að hlaupa og auðvitað synda meira í sjónum :)

Það hefur ekki mikið gerst undanfarið, er búin að fara 2svar í viðbót að synda í sjónum.. og er núna í alvörunni farin að synda smá ;) er búin að fara nokkrum sinnum út að hlaupa og í ræktina.. borðaði fullt af sushi hjá Ellen um daginn.. það var svaka gott.. fékk fullt af stelpum til mín í gleði sama kvöld og sushi átið var, fór í bíltúr um sveitina um hvítasunnuhelgina og já.. er bara búin að hafa það mjög gott :)

Svo eru bara 3 vikur í að litli bró ætlar að ganga í heilagt hjónaband :D og ég hlakka svo svakalega til.. 4.júlí verður æðislegur dagur..

þriðjudagur, maí 26, 2009

Síðan síðast..

Sæl og blessuð..

Þar sem það virðast ennþá nokkrar hræður kíkja hérna inn af og til þá hef ég ákveðið að reyna blogga aðeins oftar en 1 sinni í mánuði ;) Enda sumarið komið og kannski maður fari þá að gera eitthvað sem er vert að segja frá.

Síðan síðast hefur ekki mikið gerst.. en samt smá.. en það eru samt hlutir sem ég er meira til í að segja frá bara svona í spjalli.. en ekki alveg auglýsa á netinu :) En jú.. ég fór sem sagt í sjósund þarna um daginn og er að fara aftur seinnipartinn ;) hlakka rosalega mikið til.. ég fór líka í ræktina í gær.. sem myndi vera í fyrsta skiptið á þessu ári ! hljómar ekki vel en ég er nú búin að vera fara 2-5 sinnum í sund í viku nánast allt árið þannig að ég hef ekkert verið að sitja eins og klessa heima ;) og svo er átakið bumban burt fyrir þrítugt hafið ;) haha.. kannski fer hún ekkert.. en hún skal minnka og ég verða meira holl ! það er takmarkið.. ;) og því verður náð !

Ég er líka afar hamingjusöm í mínu nýja sambandi :) fann mér mann sem kemur vel fram við mig, knúsar mig og kyssir, fær mig til að hlæja og líkar alveg jafn vel við mig þegar ég á slæma daga :) það er líka svo gaman að vera svona mikið skotin í einhverjum.. alveg æðislegt ;) mæli með því..

Framundan er svo bara meira sjósund, meiri rækt, fleiri knús og já smá sumar frí frá og með 15.júní :D

Lífið er gott..

fimmtudagur, maí 14, 2009

Ójá.. fór..sá og stóð ;)

Jæja, ég lifið sjó"sundið" af og fannst þetta svo gaman að ég ætla aftur.. og það helst bara strax í næstu viku :)

Við mættum þarna niður eftir ( í Nauthólsvíkina ) rétt um klukkan 11 og vorum komnar í gallann ( sundbolina ) nokkrum mínútum seinna.. og skelltum okkur útí.. við tókum Baywatch á þetta og hlupum útí ískaldann sjóinn. Í fyrstu ferð fórum við uppað mitti, stoppuðum í smá stund og hlupum svo aftur uppúr.. við fórum svo strax aftur ofaní og í þetta skiptið alla leið uppað öxlum, stoppuðum ekki mjög lengi í þetta skiptið en fórum ofaní í 3ja skiptið og þá aftur uppað öxlum og vorum ofaní í smá tíma.. ætli þetta hafi ekki verið svona um 3-4 mín allt saman.. sem mér skilst að sé bara nokkuð gott svona miðað við fyrsta skipti og það í brjáluðu roki ;) Þegar þetta var búið þá náðum við okkur í smá hita í kroppinn með því að stoppa í heita pottinum á leiðinni í sturtu. Þetta var ótrúlega lítið mál.. miklu minna mál en ég hélt.. eftir því sem stóð í gestabókinni í Nauthólsvíkinni var sjórinn 8° heitur sem er ekki mjög mikið.. en eflaust er hann oft mun kaldari.

Þegar þetta var búið þá mættum við aftur ofur ferskar í vinnu.. nema það er svo skrýtið.. um eitt leytið þá leið mér eins og ég hefði að koma af ofur bootcamp æfingu.. þessi vellíðunar-þreytu-ég var svo dugleg tilfinning sem er svo góð og í gærkvöldi var ég alveg búin á því.. og var ennþá þreytt þegar ég vaknaði í morgun.

En sem sagt.. sjó"sund" sem verður kannski einhverntíman að alvöru sjósundi var æði.. við hlógum allann tímann og skemmtum okkur alveg svakalega vel og planið er að fara aftur næsta miðvikudag :)

miðvikudagur, maí 13, 2009

Sjó..stand ?

Já.. ég hef tapað hluta af skynseminni og ætla í sjósund.. sem er samt meira sjóstand núna á eftir ! ef ég lifi af og hef ennþá tilfinningu í puttunum eftir hádegi skal ég segja ykkur allt um þetta :)

þriðjudagur, apríl 14, 2009

ó..já..

Jæja.. páskarnir búnir og ég búin að hafa það ofur ofur gott :) ég glápti á Grey´s, fór í ísbíltúr, sveitabíltúr ( 2 sollis ), borðaði fullt af góðum mat, kúrði fullt og knúsaði og kyssti kærastann minn ;) lífið í Básenda er bara nokkuð gott þessa dagana.

Næst á dagskrá er svo eftirlit með unglingnum.. mútta og stjúpi ásamt ömmu og afa eru að fara til spánar á morgun og þá kemur í minn hlut að hafa eftirlit með yngsta unganum ;) ekki verður það mikið mál.. hún er auðvitað svo ofur vel upp alin að það fer lítið sem ekkert fyrir henni :)

Svo eru hin yndislegu fimmtudagsfrí að byrja í næstu viku.. kemur reyndar líka föstudagsfrí og svo mánudagsfrí líka.. ekki ætla ég að kvarta undan því.. óniiii

Eins og þið sjáið er ekki mikið fréttnæmt mín megin.. lífið gengur áfram sinn vanagang og ég er afskaplega ánægð með lífið og tilveruna :)

þriðjudagur, mars 31, 2009

Æ nó..

Ég veit ekki alveg hvað málið er.. ég er búin að vera svo upptekin síðustu dag að ég hef bara ekki haft tíma í neitt.. en svo þegar ég fer að pæla í því hvað það er sem ég er svona svakalega upptekin við þá kemst ég að þeirri niðurstöðu að ég sé rosalega upptekin við að gera ekkert..

Síðan ég skrifaði eitthvað hérna síðast þá hefur ekki mikið gerst en samt eitthvað smá :) Ég átti afmæli og fór með hóp af skemmtilegum stelpum út að borða.. við fengum okkur sushi sem var svaka gott :P og trítluðum svo yfir á kaffihús þar sem ég fékk álfate ;) þar sátum við og spjölluðum, hlógum og spjölluðum svo aðeins meir og Skrímslan fékk loksins loksins að líta nýja vin minn augum ;) Ég fékk líka alveg æðislegar afmælisgjafir.. fullt af dekri..akkúrat það sem mig langaði í.. svo fékk ég rosa fínan Saltsteinslampa og tappatogara ;) og ekki má gleyma sjampóinu sem mútta gaf mér líka.. ;) Þannig að núna er ég mikið að pæla og spá í hvenar ég eigi eiginlega að fara í allt þetta dekur ! Stelpurnar voru svo krúttlegar að gefa mér gjafabréf í hand og fótsnyrtingu.. og svo gaf Benni ( nýji vinurinn ;) ) mér gjafabréf í hand og fótsnyrtingu og andlitsbað ! mmmmmm.. hlakka til að láta dekra við mig.

Síðasta laugardagskvöld hélt ég svo oggu smá parteiii í tilefni afmælisins og þar var sungið, hlegið, spilað, drukkið, glápt á Gettu Betur og spjallað fullt.. svo voru sumir sem fóru heim, aðrir á ball og nokkrir sem fengu sér pizzu og fóru svo heim að lúlla :) Ég allavega skemmti mér svaka vel :)

Nóg komið í bili.. blessó

sunnudagur, mars 22, 2009

Alveg rétt bráðum..

Á mínum bæ er allt gott að frétta.. lífið gengur bara sinn vanagang.. þannig að það eru eiginlega engar fréttir.. það sem hefur gerst síðan ég bloggaði síðasta er að Dale námskeiðið er búið, ég fór í nudd, sem var æði, og átti svo yndislegan dag.. alveg samkvæmt plani ;) og hef svo verið að vinna..haha.. ekki mjög spennó hlutir að gerast í kringum mig þessa dagana.

Í næstu viku þá er kannski örltíð meir um að vera.. ég ætla í klippingu og á víst afmæli ;) síðasta skiptið sem ég get haldið uppá að ég er tuttuguogeitthvað :) og ég veit ekkert hvað ég ætla gera.. langar að borða góðan mat með góðu fólki og svo kannski tjútta oggu pínu um næstu helgi.. held að það sé bara ágætis plan.. þannig að núna þarf ég að ákveða hvað ég vil borða :/ það gæti orðið pínu erfitt.

fimmtudagur, mars 12, 2009

Jájá.. bloggi bloggi..

Málið er bara það að ég virðist ekki hafa frá neinu að segja.. ef voða lítið gert undanfarið nema vinna, farið í sund og hangið heima í rólegheitunum.. og þó að það sé mjög fínt bara þá gerist mjög lítið sem er vert að vera blogga um þegar maður gerir ekki meir en þetta.

Ekki get ég tjáð mig um "ástandið" þar sem ég er hætt að horfa á fréttir og lesa blöðin.. nema bara til að kíkja á slúðrið ;) og ég myndi hvort sem er ekki nenna eyða tíma mínum eða þeirra sem lesa það sem hér er skrifað í "ástandsfréttir".. ;)

Á morgun ætla ég svo að eiga yndislegan dag.. ég ætla byrja daginn með því að fá mér góðan morgunmat..helst úr bakaríi :P svo klukkan 10 ætla ég í dekur nudd !! ójá ! í annað skiptið á ævinni ætla ég að skella mér í sollis :) nema núna verður þetta heill klukkutími.. það er eflaust solldið annað en 20 mínúturnar sem ég fór í fyrir 2 árum síðan. Þegar nuddið er búið ætla ég annað hvort heim að leggja mig eða fara með einhverjum sem nennir í langan og kósý lönsj.. og ef enginn nennir.. eða allir eru að vinna þá ætla ég bara að fara ein og fá mér eitthvað gott að borða :) hef samt grun um að ég eigi frekar eftir að fara og leggja mig og fá mér svo eitthvað gott í gogginn ;) Restin af helginni er algjörlega óráðin.. hugsa að rólegheit verði ofarlega á dagskrá þar sem vikan hefur ekki beint verið sú skemmtilegasta.

Í næstu viku er svo síðasti tíminn af Dale.. já.. 10 vikur fljúga greinilega bara í burt á nó tæm ! Ég verð að viðurkenna að ég verð hálf fegin þegar síðasti tíminn er búinn.. þetta er komið gott af Dale í bili.. er búin að vera nánast non stop í þessu síðan í september.. en svo á ég eflaust eftir að sakna þess að ekki vera á námskeiði þegar ég er búin að fá nokkrar vikur í pásu ;) Og hver veit nema ég fái tækifæri til að skella mér á annað námskeið sem aðstoðarmaður aftur seinna.

Jæja.. er þetta ekki komið gott í bili..

Góða helgi gott fólk ;)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter