föstudagur, mars 28, 2003

jæja...þá er aftur kominn föstudagur og helgin framundan :D og hvað haldiði..júbb auðvita ætla byttufyllurnar ekki að láta sitt eftir standa og fara á djammið annaðkvöld...SÁLIN MAR!!!! og eftir að hafa gert mjög viðamikla könnun þá get ég ekki betur séð en að ALLIR ætli að fara sem ég þekki fyrir utan tvo bjána sem eru að fara útá land... hmm... þannig að ég þarf að drekka á við 3.... fer nú létt með það ;) er ekki kölluð byttufylla fyrir ekki neitt...

þriðjudagur, mars 25, 2003

Veriði blessuð og sæl :) jæja þá er komin þriðjudagur..og mar loksins búin að jafna sig eftir helgina :) Við fórum..við erum ég, Ellen, Dóra, Guðrún og Dadda, á djammið á laugardaginn... kvöldið byrjaði heima hjá Ellen með bjórdrykkju og blaðri..svo var stefnan tekin niðrí bæ á Gauk á stöng..þar sem var búið að segja okkur að ekki yrði byrjað að rukka fyrr en klukka 12 á miðnætti þannig að við helltum í okkur til að ná frítt inn..en viti menn þegar við komum á staðinn kl 23 50!!!!! var okkur bent á að fara í miðasöluna!!! og borga 1200 kall inn... við...sérstaklega Ellen vorum auðvitað ekki sáttar..en létum okkur samt hafa það og borguðum bara en brostum EKKI... þegar inn var komið hitti ég Jóhann frænda og auðvita bauð stóra frænka honum í glas :) alltaf svo góð... þegar við vorum búnar að sitja og hella í okkur á gauknum fórum ég og Ellen á Vídalín þar sem var brjálað stuð.. við dönsuðum frá okkur allt vit og eignuðumst nýjan vin í leiðinni..reyndar tvo nýja vini..Þór Bæring og stelpu sem heitir Stefanía...þegar við vorum búnar að gera okkur að fíbblum á Vídalín hlupum við aftur yfir á gaukinn þar sem ég sat til klukkan hálf 7 með Möggu, Pétri Hjaltested og Bjarna Friðriks...af því að Ellen stakk af þegar Bengtu datt í hug að fara og skamma Billa!!! eftir heilmikið bjórsvambllll.. fór Bengta út að leita sér að smokkum... eftir að hafa spurt ALLA sem voru í bænum þetta kvöld hvort þér ættu smokk til að gefa sér gafst hún upp og fór heim eða (ekki heim) að lúlla...;)

laugardagur, mars 22, 2003

jæja..þá er komin laugardagur og sprellen að reyna smita mig af púkanum :/ en ætli mar láti ekki undan og kíki út á lífið..þá hef ég vonandi eikkvað skemmtilegt að segja ykkur á morgun :)

jæja...ætli þetta virki??? ég vona það... mar getur ekki verið án bloggs mikið lengur...

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter