sunnudagur, apríl 27, 2003

jæja....þá er kominn sunnudag...dagur þynnkunnar miklu!!! ég kíkti aðeins út í gær...en bara smá var komin heim til Möggu og farin að lúlla kl hálf 7!!! mér var boðið í heimsókn til Dísellu :) og við drukkum smá áfengi og spjölluðum og drifum okkur svo niðrá Grandrokk þar sem Kjartan var að spila. Það var svaka gaman, Katrín kom og Heiða líka... ég var solldið drukkin :/ og minnið er kannski ekki alveg í lagi ;) en Dísella sýndi snilldar hæfileika í að drekka tekíla...tókst að koma því niður og gubbaði ekki!! það er meira en ég get sagt... af grandrokk var stefnan tekin á Gauk á Stöng..Dísella fór hjemm að lúlla...og ég veit ekki alveg hvað varð um Katrínu :/ en á gauknum hitti ég Einar, Möggu og vinkonur þeirra..þar skellti ég í mig einum bjór og svo rúlluðum við yfir á Dubliners þar sem Ingi, Ingvar og Eysteinn voru að spila. Við dönsuðum non stop þangað til strákarnir hættu að spila og við fórum yfir á Amsterdam ( það var ekkert annað opið) og þar var drukkið aðeins meira og spjallað og svo bara alltí einu vorum við að fara og ég fór heim með Möggu og Einari, veit ekki alveg akkuru, og lúllaði í sófanum þeirra :) takk Magga fyrir að búa svona vel um mig ;)

Dagurinn í dag er sem sagt búinn að fara í þynnku og svo aðeins meiri þynnku... En ELLEN KEMUR HEIM Í DAG!!!!! loksins loksins.... þá getum við nú farið að djamma fyrir alvöru!!

laugardagur, apríl 26, 2003

T minus 28 hours an counting !! untill Sprellen comes home!!!! wejejejejejeeeeee

fimmtudagur, apríl 24, 2003

Iss piss... ég er ekkert að standa mig í þessu djamm dæmi.. í gær var planið að fara og vera fullur og skemmta sér fram á rauða nótt.. en ég gjörsamlega klikkaði á því og var bara heima að klippa á mér neglurnar!!!! ég sem sagt var í bandi við Katrínu og við ætluðum að kíkka á lífið í bænum...og ég dreif mig í sturtu en svo þegar ég kom úr sturtunni þá bara komst ég ekki lengra en í sófann og lá þar til klukkan 2 í nótt að horfa á eikkvað í sjónvarpinu bara af því að ég nennti ekki uppí rúm... talandi um leti!!! en það var bara ágætt að slappa af eitt kvöld...og þá verður bara tekið betur á því á laugardaginn ;)

miðvikudagur, apríl 23, 2003

hæ hó... þá er kominn miðvikudagur og ýmislegt búið að gerast... meðal annars kom Óli heim... en sem sagt á laugardagskvöldið kíkti ég bara aðeins til Stebba 3 og glápti með honum á vídeo og boxið og fór svo heim að lúlla...svo á sunnudeginum kíkti óli í heimsókn og við bættum upp fyrir tapaðan tíma ;) if jú nó watt æ mín.... og svo fór ég til Katrínar um kvöldið og við helltum okkur fullar og fórum svo á röltið í bænum... kíktum meðal annars á ellefu, prikið, sólon og amsterdam... og skemmtum okkur vel þrátt fyrir að þetta hafi verið solldið skrýtið kvöld... og afrekuðum það að ekki koma heim fyrr en klukkan 8 um morguninn :) en þá er bara kvöldið í kvöld... og ekki er komið í ljós hvernig ég ætla eyða því en finnst ekki ólíklegt að áfengi eigi eftir að koma við sögu ;)

laugardagur, apríl 19, 2003

Sæl og blessuð öll sömul :) þá er ég komin hjemm frá eyrinni og skemmti mér bara vel :) á miðvikudaginn var hellt í sig eftir að Ingibjörg vinkona kom heim úr vinnunni og haldið af stað í stelpu partý með meiru... þar tók ég smá vælukast...eins og fullum stelpum er einum lagið ;) og talaði við Óla í tæpan klukkutíma um allt og ekkert...hann var frábær að vanda og tókst að láta mér líða mun betur :) TAKK ÓLI :* og svo eftir að hafa tæmt úr einni bjót kippu og einni freyðivínsflösku var haldið af stað í bæinn...og stefnan var tekin á Sjallann...alltaf gaman að fara á ball í sjallanum...nema að skítamórall var að spila og það er ekkert gaman...en hvað gerir mar ekki fyrir vini sína..og ég lét mig hafa það...að vera fyllibyttast á skímóballi...en nýtti hvert tækifæri sem gafst til að lýsa því yfir hvað mér þættu þeir ömurlegir ;) það féll ekki í góðan jarðveg hjá akureyringum... en skítt með það...ÞEIR SÖKKA FEEIIITAAANNN!!!!!! (skímó sko...ekki Akureyringar) og þarna hafiði það!!!!! svo hitti ég líka Kristján frænda sem var eilla hápunkurinn á kvöldinu...við sameinuðumst um að rakka niður skímó og láta öllum íllum látum..og meðal annars að fara uppað sviðunu og gefa þeim stór f*** merki ;) bara fyrir hana sprellen mína :*
en svo var komið að fimmtudagskvöldinu og okkur var boðið í þrítugsafmæli hjá honum Sverri... það var bara svaka fínt..veitingar í boði og sollis...og urðu ansi margir mjööögg drukknir...en ekki ég..neihei..alls ekki!!! mín var bara róleg og var komin undir teppi uppí sófa um miðnætti :) en á föstudagskvöldið var annað uppá teningnum...þá var sko drukkið...kvöldið byrjaði á því að okkur (mér og Ingibjörgu) var boðið í mat til Gauta..sem er núverandinæstverðandiþáverandifyrrverandi hennar Ingibjargar og Bjarna vini hans...þar var okkur gefin alveg SVAKAlega góður matur og var komið fram við okkur eins og við værum prinsessur...þetta var æði strákar TAKK FYRIR :* og svo gláptum við á Dennis Leary sem er bara snillingur og ekkert annað... svo kíktum ég og Ingibjörg í partý og svo fór Inga heim að lúlla..en Bengta djammaði meira.... ég kíkti á kaffi akureyri með vinum hennar Ingu og dansaði fram á rauða nótt :) og fór svo heim að ekki lúlla ;) sem sagt í alla staði frábærir nokkrir dagar á Akureyri og mega þeir hafa þökk fyrir.... Akureyringar sko....

En þá er það bara kvöldið í kvöld...og þá er planið að fara með Möggu og Hlín( vinkonu hennar) á buff á Gauknum...og kannski hef ég einhverjar sniðugar sögur að segja ykkur á morgun... bless á meðan krúttin mín :*

miðvikudagur, apríl 16, 2003

hæ hó... þá er bara kominn miðvikudagur og Bengta komin á Akureyri :) en um síðustu helgi þá var aftur á móti árshátíðin góða.... ég, Ellen og Dóra fórum á árshátíð lögregluembættisins í Reykjavík...JÁ hjá LÖGGUNNI!!! fengum þennan fína mat..og helltum okkur fulllar í boði Dómsmálaráðherra ;) og svo eftir matinn var stefnan tekin á Vídalín þar sem buff var að spila af sinni dæmalausu snilld :) reyndar stoppaði ég smá hjá Möggu og skipti um föt og drakk einn bjór...í viðbót ;) en svo var bara dansað framá rauða nótt...svo kíkti ég aðeins á víbarinn og drakk eitt vínglas með Stebba 3 og dró hann svo með mér á Vídalín og leyfði öllum að berja gripinn augum...og dansaði svo pínu meir og hvarf svo ekki heim áleið......

mánudagur, apríl 07, 2003

jæja..þá er helgin búin og ég afrekaði að vera full í vel rúman sólarhring!!! við sem sagt fórum aftur út að djamma á laugardagskvöldið...kíktum á gaukinn þar sem í svörtum fötum var að spila...en það var voða lítið gaman þar þannig að þegar klukkan var orðin fimm þá trítluðum við yfir á asterdam þar sem strákarnir voru að spila...við byrjuðum á því að leggjast í gólfið og taka ekkert smá flottan dans sem engin sá!!! og svo fórum við og drukkum aðeins meira ;) þegar strákarnir voru að taka síðasta lagið tókst okkur gellunum að láta Stebba 2 gjörsamlega gleyma því hvað hann vera að gera uppá sviði með því að taka smá handahreyfingar með dont let the sun go down on me ;) og svo gerðum við eins og góðar litlar grúppíur og ruddumst inní hljómsveitar herbergi..þar sem við drukkum aðeins meira og hlógu frá okkur það sem eftir var af viti í kollinum á okkur :) svo lá leiðin heim til Möggu þar sem Einar beið eftir okkur..okkur til mikillar gleði og hamingju :) og við sátum og spjölluðum langt fram eftir morgni..soo voru allir orðnir þreyttir og frekar búnir eftir nóttina þannig að sumir héldu heim á leið og sumir urðu eftir og lúlluðu hjá Möggu og Einari.... svo var náttla hittast í þynnkumat á sunnudeginum og afrek helgarinnar rifjuð upp...
mig langar bara að segja að þetta var brilljant helgi og vil þakka Möggu og Ellen fyrir að vera til :* svo vil ég biðja alla þá sem ég var að hringja í um miðjar nætur og eldsnemma á morgnana afsökunar...ÉG VAR BLINDFULL!! og ég vona bara að Stebbi 3 fyrirgefi mér :/ plííís ég er ekki alltaf sona :)

laugardagur, apríl 05, 2003

jæja.... þá er kominn laugardagur og ég held bara að ég hafi sjaldan lent í öðru eins!!! ég var bara í rólegheitum heima..lá uppí sófa þegar síminn hringir...og hver var það önnur en Magga... og viti menn eftir að hafa spjallað í smástund þá var ákveðið að ég mundi kíkja í smá heimsókn...SMÁ!!! en af því að við erum óforbetranlegar byttufyllur..þá endaði þessi smá heimsókn með því að 12 tímum seinna labbaði ég út frá Möggu algerlega ósofin eftir frekar viðburða mikla nótt ;) ég böggaði Sprellen og auðvitað kom hún til okkar..eins þæg lítil fyllibytta að svara kalli bjórsins :) ... og eftir smá svambl hjá Möggu var farið á Amsterdam ( af öllum stöðum ) en strákarnir, Ingvar, Ingi, Stebbi 2 og einhver gaur á trommum sýndu snilli sína í að halda uppi stuði langt fram eftir morgni..EN byttufyllurnar voru sko alls ekki búnar að fá nóg og drógu pulsuna með sér í eftirpartý hjá Möggu... og þar var svaka stuð í öllum merkingum orðsins ;) og meðal annars var sett einhverskonar met í því að fara í sturtu... eftir þetta allt saman fór Bengta heim á leið og lúllaði í 4 tíma og núna að fara gera sig reddý í annað eins kvöld ;) ótrúlegt að mar hafi úthald í þetta!!!

segi ykkur frá því sem dregur á daga mína í kvöld seinna ;) bæjó

þriðjudagur, apríl 01, 2003

Hæbb :) jæja..þá er kominn þriðjudagur og helgin búin... og ég get ekki sagt annað en að ég hafi bara skemmt mér svaka vel :D á föstudaginn fórum ég og Sprellen á Evróvisjón sjóið á Broddway að sjá hana Skvísellu slá í gegn :) og það var bara voða gaman svo á laugardaginn fórum við á SÁLINA MAR!!! og auðvitað varð Bengta dauðadrukkin og skemmti sér æðislega vel..Sprellen fór bara snemma heim..var á einhverjum bömmer..en ég og Katrín héldum áfram að djamma með Gumma og Matta til klukkan 8 á sunnudagsmorguninn eftir að okkur var hent útaf Gauknum... verð að fara..skrifa meir seinna ;)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter