Komiði blessuð og sæl :) það er bara strax kominn þriðjudagur! time sure is fun when your having flæs ;) anyways.... á föstudaginn þá var afrósjóið hjá Dröfn og það var GEÐVEIKT FLOTT!! Til hamingju Dröfn ;) og svo tók ég því bara rólega það sem eftir var af kvöldinu..fór bara heim að lúlla.. en vaknaði snemma á laugardaginn og fór á flakk með mömmu... svo var komið að því!! Júróvisíon!! ég kíkti til Ellenar og við drukkum og gláptum og spjölluðum heilan helling... svo fórum við niðrá Gauk og þegar ég var búin að vera þar í 15 mín þá var ég komin með mega höfuðverk og dreif mig heim á leið :( og fór bara uppí rúm... en svo á mamma ammæli á fimmtudaginn og afi á laugardaginn..og Biggi bróðir hennar Ellenar á líka ammæli á fimmtudaginn og ég hef grun um að það þýði eikkvað smá fyllerí á miðvikudagskvöldið.... það kemur í ljós ;)
Eighteen till I die!!
Haldiði að ég geti það ekki alveg ?
þriðjudagur, maí 27, 2003
miðvikudagur, maí 21, 2003
Sblessuð ;) jæja þá er kominn miðvikudagur og bara að koma að júróvisíon!! en ég ætlaði víst að segja ykkur frá laugardagskvöldinu... hmm... það átti ekkert að verða neitt djamm..en..þið vitið hvernig ég er!! ef ég kemst í áfengi þá er bara nó stopping mí.. Þetta sem sagt byrjaði með því að ég spurði Ellen hvort hún vildi ekki kíkja með mér í eitt eða tvö vínglös og spjall..og auðvitað sagði hún Já!! þessi eitt eða tvö vínglös breyttust í eina flösku og einn mojito og eina mímósu og fullt af bjór!! við fórum útum allt.. byrjuðum á Metz og fórum svo á vínbarinn svo gaukinn og amsterdam og glaumbar og svo aftur á gaukinn og svo aftur á amsterdam... og það var voða gaman :) við fundum okkur auðvitað eftir partý! og fórum með tveimur ónefndum mönnum í patrý í litlu bláu húsi einhversstaðar í miðbænum :) all and all var bara voða gaman :) jæja.. núna er bara næsta helgi sem hlýtur nú að verða eitthvað skemmtileg..júróvísíon SLASH útskriftarpartý á laugardaginn.. og afró danssýning á föstudaginn ;)
laugardagur, maí 17, 2003
Hæ hó :) af mér er allt gott að frétta... átti æðislegan dag í gær og langar að þakka Skvísellu og Sprellen fyrir þeirra þátt í honum :* takk stelpur :) ég sem sagt var búin að vinna klukkan hálf eitt og fór þá heim og náði mér í ýmsar nauðsynjar fyrir daginn..eins og sígó og áfengi ;) og svo fór ég til Dísellu..þar beið eftir mér mímósa sem ég hellti í mig og svo löbbuðum við niðrá Eiðistorg..vantaði meira bubblí..við förum sko ekki í labbitúr heilsunnar vegna..ó nei! svo fórum við líka í 10 11 og keyptum okkur mat og fórum svo aftur til Dísellu og hámuðum í okkur :) svo kom besti parturinn af deginum..þegar við vorum búnar að borða þá fórum við út með teppi freyðivín og appelsínusafa..og sátum útí sólinni og drukku og spjölluðum og tzilluðum :) það var æði ! svo þegar við vorum búnar að sitja í sólinni þangað til að hausinn á mér og Skvísunni voru að springa.. þá fórum við inn og kúrðum okkur í sófanum og gláptum á imbann...svo fljótlega eftir að við vöknuðum fór Sprellen heim en ég og Skvísella lágum og gláptum á skrýtnustu mynd sem ég hef séð...fyrir utan kannski "þe nostral pikker 2" sem var náttla bara skrýtin ! og svo hélt ég áleiðis uppí kópa vog þar sem tók við meira gláp og svo kúr og lúll :) sem sagt frábær dagur í alla staði fyrir utan hausverkinn.... :) svo er bara að sjá hvað dagurinn í dag ber í skauti sér...það er aldrei að vita nema ég hafi eitthvað skemmtilegt að segja ykkur á morgun ;)
sunnudagur, maí 11, 2003
Komiði blessuð og sæl :) mig langar að byrja á að óska öllum til hamingju með að Ingibjörg Sólrún komst ekki inná þing ;) og svo langar mig að deila með ykkur hvað ég gerði í gærkveldi..
Mér var boðið í mat til Ellenar, systir hennar Katrínar, og hún bauð uppá mexíkóskan mat sem var hrein snilld ;) takk Ellen :* og svo var bara drukkið og spjallað og fylgst með kosningasjónvarpinu...þegar leið á kvöldið bættust fleiri í hópinn og þar á meðal Ellen vinkona sem var á einhverjum bömmer en auðvita reddaði Bengta því :) af því að ég er svooo frábær ;) svo þegar ég var búin að drekka heila bjórkippu og eina hvítvínsflösku... en var samt ótrúlega lítið drukkkin!! þá var haldið á Gauk á Stöng þar sem á móti sól hélt uppi svaka stuði.. reyndar stoppaði ég mjög stutt í bænum... það voru meira aðkallandi hlutir sem þurftu mína athygli ;) ef þið vitið hvað ég á við ;) þannig að ég tók taxa uppí kópavog og lúllaði og ekki lúllaði þar það sem eftirlifði nætur... þetta var svaka skemmtilegt en samt í rólegri kanntinum sem er bara alltílæ svona einu sinni :)
laugardagur, maí 10, 2003
jæja góðir hálsar :) þá er runninn upp merkilegur dagur... alþingiskosningarnar 2003... ég er sem sagt búin að fara og nýta rétt minn til að hafa áhrif á hverjir það eru sem stjórna þessu landi sem ég bý á. Og svo er planið að halda útá lífið og annaðhvort fagna eða drekkja sér í sorgum.. hvort heldur sem er..að verða blindfullur ;)
sunnudagur, maí 04, 2003
hæ hó... jæja..þá er aftur kominn sunnudagur og mér til mikillar undrunar og gleði þá er ég bara ekkert þunn :) það gæri reyndar tengst því eitthvað að ég gerði voða lítið í gærkvöldi nema sofa :) en byrjum á byrjununni... helgin byrjaði þannig að ég var búin að vinna kl hálf fjögur á föstudaginn :D og kíkti með mömmu uppí smáralind af því að mig vantaði skó fyrir kvöldið.. og þegar það var búið þá lagði ég mig smá og svo byrjaði kvöldið.. Stebbi kom og náði í mig kl hálf 8 og við fórum út að borða á grillinu á hótel sögu.. það var ÆÐI.. við byrjuðum á því að fá okkur fordrykk og svo byrjaði matveislan mikila.. við pöntuðum okkur bæði menu sem var fjórrétta en nei! við fengum alltíallt 7 rétti sem voru hver hvor öðrum betri :) og Stefán var algjör herramaður og mér leið eins og prinsessu :) svo þegar við vorum búin að borða klukkan hálf 12! þá kíktum við í um það bil 3 mínútur á vínbarinn og fórum svo á Metz sem er nýr staður..svaka flottur..en það er eitt sem vantar þar og það er smokkasjálfsali ;) en eftir okkar heimsókn þangað trúi ég ekki öðru en að eigendur bæti hið snarasta úr því.. þar sátum við til klukkan rúmlega 3 og héldum þá heim á leið :) og svo á laugardeginum var komið að óvissuferð með vinnunni, við hittumst fyrir utan hótel loftleiðir og tókum smá sæt síjing um Öskjuhlíðina og fórum svo í keilu..þar sem undirrituð var óumdeildur meistari ;) svo þegar keilan var búin þá röltum við niðrí bæ með smá stoppi á listasafni Einars Jónssonar þar sem ég varð frekar hissa..þetta var alveg frábært! næsta stopp var á Hinu íslenska reðasafni, og það er algjörlega ótrúlegt...og þeir sem ekki hafa farið að skoða það ættu hiklaust að drífa sig... þar er bæði hægt að læra ýmislegt og hafa gaman af :) þá var komið að kvöldverði sem var snæddur á Asíu og var svakalega góður.. svo var bara setið og spjallað til eitthvað um 9 og þá hélt ég bara heim á leið...alveg búin eftir daginn og kvöldið áður... og lagði mig til miðnættis vaknaði þá í smástund og hélt svo áfram að lúlla :) og Ellen sorrý mar en ég bara var ekkert að vakna við síman :/ og mamma biður þig vinsamlegast ekki að hringja í sig um miðjar nætur...og Davíð líka ;) en takk fyrir að hafa huxað til mín :) svona eru góðir vinir ;) en dagurinn í dag er búinn að vera fínn hingað til og ég býst bara við því að hann verði betri ef eikkvað er :) ég nebbla á inni einn ísbíltúr hjá honum Stebba...hann nebbla tapaði veðmáli :) híhí... heyrumst seinna :*



