mánudagur, september 29, 2003

HæHæ... iss mar það varð nú ekki mikið úr leidísnætinu á laugardaginn :/ því var frestað á síðustu stundu vegna veikinda... en mín lét það sko ekki eyðileggja kvöldið fyrir sér!! og fór út með Katrínu pæju ;) ég kíkti til hennar um 10 leytið og við helltum okkur fullar og spjölluðum eins og vindurinn..svo var ferðinni heitið á nokkra staði sem við höfum aldrei komið á áður..þar á meðal felix... þetta var bara fínt kvöld ;) alltaf gaman að djamma með Katrínu ;) annars hef ég ekkert að segja nema... rokk on :) bæjó spæjó...

föstudagur, september 26, 2003

Hæ ;) jæja.. þá er kominn föstudagur :D og planið fyrir helgina er næstum komið á hreint.. reyndar er ekkert plan fyrir kvöldið í kvöld..en morgundagurinn er annað mál! þá á sko að vera leidís næt.. og ég var að huxa um að vera bara grand og skella mér í ljós... líst ykkur ekki vel á það?? og svo er það nú málið..í hverju mar á að vera :/ mar verður að vera fínn...það er möst.. en að sökum kulda..þá held ég að buxur séu málið.. en svo er bara planði að vakna snemma..taka kannski smá til, og fara svo í nokkrar búðir..og svo verður mar nú að leggja sig fyrir kvöldið og svo er það maskinn ;) og sturtan..þar sem allur óæskilegur hárvöxtur verður fjarlægður ;) og svo bara skellt á sig make uppinu og gert eikkvað við hárið og skellt sér í mat til Sprellenar þar sem Olga og Dóra verða ásamt Ellen auðvitað... og svo verður bara að koma í ljós hvað nóttin ber í skauti sér ;) en þangað til... SELEBREISJÓN KOMMÓN :D

þriðjudagur, september 23, 2003

halló spalló ;) jæja þá er sumarbústaðarferðin búin :( það var samt rosa næs ;D við komum uppettir á föstudaginn um áttaleytið..og það fyrsta sem við gerðum var að láta renna í pottinn ;) auððitta.. og svo lágum við þar í örugglega klukkutíma og fórum svo bara snemma að lúlla... laugardagurinn var leti dagurinn mikli..ég lá bara og las og fór aðeins í pottinn og setti á mig maska og lagði mig ;) svo kom kvöldið og við elduðum alveg svakalega góðan mar...boðið var uppá koníakslegið innra læri af lambi ;) og meðlæti...og svo var tekið aðeins í spil og svo aftur í pottinn ;) svo kom sunnudagur og við drifum okkur að laga til og brunuðum í bæinn ;) get ekki annað sagt en að helgin hafi verið bara mjög góð :)

Og svo er það bara næsta helgi... þá á víst að vera eikkvað leidís næt hjá okkur stelpunum... það verður örugglega gaman..og svo eru bara dúndurfréttir á miðviku og fimmtudag ;) auðvitað kíkir mar þangað ;)

fimmtudagur, september 18, 2003

aaarrggg!! það er svo langt síðan ég hef bloggað :/ sorrý.... en það virðist enginn sakna þess neitt voða mikið...en ég skal nú samt reyna vera duglegri ;) það hefur reyndar voða litið gerst á þessum 9 dögum... en hún Jóna á afmæli í dag :D TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!!! og ég er að fara uppí sumarbústað á morgun...jeij ;) ég hlakka mikið til...og svo atlar kannski Sprellen að kíkka á laugardaginn..og Óli var að tala um að bjóða kannski eikkvað af strákunum...þannnig að STELPUR!! þið verðið að fjölmenna líka... það verður nú samt ekkert svaka partý..bara bjór..eða áfengissötr...og kíkt í pottinn og spilað..eikkvað kósý og skemmtilegt ;) hmm... ég held barasta að ég hafi ekki frá fleiru að segja :/ ég kípa ykkur pósted hvað gerist um helgina ;) bæjó í bili...

þriðjudagur, september 09, 2003

hæ hó öll sömul ;) þá hef ég loksins 3 mínútur til að skrifa eikkvað pínu lítið handa ykkur :) mar er búin að fara útá lífið síðustu tvær helgar og ætti þar af leiðandi að hafa frá einhverju að segja... en ég bara man ekki til þess að það hafa eitthvað markvert gerst :/ en um leið og það rifjast upp fyrir mér þá lofa ég að segja ykkur það ;) annars er bara allt gott að frétta.. eins og maðurinn sagði...engar fréttir eru góðar fréttir ;)... svo er það bara næsta helgi..þá er kveðju partý hjá Sigrúnu (sem vinnur með mér) og svo helgina eftir þá á ég víst pantaðann sumarbústað... þarf bara finna einhvern til að koma með mér... heitur pottur og allt ;) ef þið hafið einhverjar uppástungur hafið endilega samband ;) bæjó í bili...

fimmtudagur, september 04, 2003

jæja... ég er ekki dáin!! bara búin að vera mikið að gera :( en kíkið á þetta ;)


Find your inner Smurf!

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter