Eighteen till I die!!
Haldiði að ég geti það ekki alveg ?
sunnudagur, desember 28, 2003
Hæhæ... þá er helgin alveg að verða búin og ég er að fara vinna á morgun :/ get nú ekki sagt að ég hlakki mikið til.. ekki það að það sé leiðinlegt í vinnunni..bara erfitt að þurfa vakna :/ en svo er frí aftur á þriðjudaginn :) og þá eru sko stór plön!! þá þarf mar að gera innkaupin fyrir gamlárskvöld ;) og svo á ég eftir að fá upplýslingar um hverskonar þema verður í partýinu hjá Sprellen og co... ef það verður þá eitthvað þema.. ja..ef það verður partý :/ þau eru nebbla búin að liggja með gubbu um helgina :( en það verður vonandi komið í lag fyrir miðvikudag :) annars hef ég lítið að segja í augnablikinu þannig að ég kveð í bili :)
föstudagur, desember 26, 2003
Hellúú krúttin mín og aðrir sem lesa bloggið mitt ;) og gleðilega hátíð :* jæja þá eru jólin eiginlega búin og við tekur áramóta gleðin :)´ég er ekki að grínast þegar ég segi ykkur að ég sofnaði í gær veltandi því fyrir mér í hverju ég ætti eiginlega vera :/ þetta er nú frekar sjúkt !!! en það er nú samt verra ef að eftir að hafa sagt ykkur þetta að ég verði bara ekkert fín um áramótin :/ fjúff mar þetta er að vera bara hið mesta mál... en að öðru...mig langar að þakka öllum sem gáfu mér jólapakka og öllum sem sendu mér jólakort :) og ekki örvænta... ég á nebbla ennþá eftir að setja þau sem ég ætla senda í póst... nennti bara ekki að vera stressa mig á þessu fyrir jól.. það var nebbla alveg nóg að gera hjá mér.. þannig að ég ætla setja þau í póst á næst dögum :) annars eru jólin bara búin að vera hin bestu..fyrir utan leiðinda mígreni í gær sem gerði það að verkum að ég missti af jólaboði hjá ömmu :( ég er mjög leið yfir því.. en ekkert við því að gera.. en núna er enn eitt jólaboðið að byrja þannig að ég ætla hætta núna... enda hef ég ekki mikið að segja :) bæjó í bili...
miðvikudagur, desember 24, 2003
mánudagur, desember 22, 2003
2 dagar....damdararammmm... það er ekkert annað ;) bara tveir pakkar eftir og föndrið komin, jólakortin búin..bara eftir að setja þau í póst.. en ætla hvort sem er ekki að senda þau fyrr en milli jóla og nýárs. Annars er voðalítið í fréttum, ég gerði ekkert um helgina.. var bara heima í leti og keypti jólapakka, fór aðeins í básendan, föndraði, skrifaði jólakort og fór í klippingu!! og er orðin stutthærð :/ samt engin strákaklipping bara mjög stutt ;) og svo fór bara að snjóa í gær :D ég var svo ánægð... en svo þegar ég vaknaði í morgun þá var bara farið að rigna!! hvað á þetta eiginlega að þýða!!! mig langar svoooo að hafa snjó á jólunum :/ svo er það kringlan í kvöld með familínnu... kaffihús..smá jólastemming :) og svo var ég nú að hugsa um að kíkja til Katrínar í litlu jól á Laufásveginum.. það verður eflaust mjög gaman :)
föstudagur, desember 19, 2003
bara 5 dagar eftir...fjúkk.. þar sem ég vinn á leikskóla verð ég mjög fegin þegar jólin eru búin.. börninn eru bara gjörsamlega að fara yfir um!! sem er kannski ekkert skrítið... en það er byrjað að SNJÓA :D og ég fékk plokk í gær og svo er það skatan í kvöld..og svo bara aldrei að vita nema maður kíki á sálina í kvöld, ef herr doctor gef ur sprellen leyfi ;) þannig að ég bíð spennt eftir símtali frá henni.. en ég er nú samt að fara í jólaklippinguna klukkan 10 á laugardags morgunin þannig að það verður nú ekkert djamm...bara kíkk..henni Sprellen laaangar svooo að fara á sálarball sem er bara mjög skiljanlegt.. það er nú alltaf gaman :) en af öllu íbúðarstandinu er það að frétta að það er ekkert að gerast :/ allt við það sama... þetta gengur hægt..en gengur þó :) og ég er ekkert búin að kaupa fleiri jólagjafir.. en það gerist eflaust bara eftir klippinguna á lördag :)
fimmtudagur, desember 18, 2003
6 dagar :/ en búin með 3 gjafir af 8 ;) kíkti í kringluna með mömmu klukkan níu í gærkvöldi og dreif þetta bara af :) það var nebbla ekkert plokk í gær. En annars er það í fréttum að Sprellen gekk frá kaupum á húsi í Árbænum í gær og ég óska henni að sjálfsögðu til hamingju með það!!! Og svo mjakast þetta áfram með íbúðina :/ en mikið SVAKALEGA er þetta leiðinlegt..að rífa þessar límklessur niður!! en þetta verður búið áður mar veit af.. mamma alltaf dugleg að hjálpa ;) svo er það skatan á morgun :) það var ákveðið að í ár verður hún ekki á þorlák heldur nokkrum dögum fyrir jól.. og ég er bara mjög ánægð með það.. það er nú ekki eins og maður sé ekki nógu upptekinn á þorláksmessu! og svo held ég að plokkið verði í kvöld í staðin fyrir gærkveldið... og ég var meira að segja að huxa um að fara að æfa á eftir ;) svo á morgun er líka jólaball í vinnunni.. og það verður eflaust svaka stuð ;) hef ekki meir að segja í bili og bið að heilsa..
miðvikudagur, desember 17, 2003
úff...mar núna er bara vika til jóla!! og ég á ennþá eftir að kaupa allt og gera allt :/ ekki nógu gott... og ég held meira að segja að ég nenni ekki að gera neitt af þessu í dag.. ég ætla bara fara í ljós, kíkja til Ellenar í smá pyntingar svona fyrir jólin ;) og svo bara snemma að lúlla held ég.. þetta er nú allt og sumt sem er á planinu fyrir daginn í dag. En svo fer að líða að jólaklippingunni :D og þá fer nú jólaskapið að hellast yfir mann... er þakki annars??
þriðjudagur, desember 16, 2003
8 dagar til jóla!!! það styttist í þetta :/ og ég ekki byrjuð á neinu..ekkert frekar en í gær :/ en það stendur allt til bóta :) ég var nú bara að huxa um að kíkja í kringluna í dag eftir vinnu og kaupa nú eitthvað af jólagjöfum... og ef ekki í dag þá bara á morgun ;) hún Dísella kom nebbla heim í morgun og ég hún og Sprellen vorum að huxa um að kíkka á kaffihús í kvöld eða á morgun ;) og sjá hvað hún hefur að segja um dvöl sína í bandaríkjunum... annars hef ég nú ekki mikið að segja ég blaðraði svo mikið í gær. En ég sá að ég er búin að fá boðskort í áramóta paartteið ;) þannig að það vandmál er hér með leyst ;)
mánudagur, desember 15, 2003
jæja... 9 dagar til jóla :/ ég verð bara að viðurkenna að jólaskapið er nú eitthvað ekki á réttu róli... það er brjálað að gera hjá mér.. enginn tími til að kaupa jólagjafir, og svo langar mig svo að klára þetta íbúðar stand... og svo náttla veðrið!!! það er nú ekki mjög jólalegt :/ en verður maður ekki að gera það besta úr þessu?? það held ég.. ég vona bara að það snjói nú almennilega fyrir jólin.. það er hálf ekki jólalegt að hafa engan snjó. En annars er það að frétta að parketið er farið ;) og ógeðslega ullarteppið sem var undir því líka... verið að vinna í gluggunum og það ætti að vera búið fyrir helgi ;) þá er það bara límklessurnar sem voru undir einangrunar plötunum sem eru eftir :) þegar það er búið þá þarf bara að mála veggina og mála gólfið og lakka það og þá er bara allt komið í bili :) nema ég leggi í að rífa eldhúsinnréttinguna út líka.. það er aldrei að vita :) svo eru það bara jólin og áramótin.. planið fyrir jólin er nú bara það sama og alltaf.. en var reyndar að pæla í að annaðhvort bjóða stelpunum í heimsókn eða bara athuga hvort það er einhver áhugi fyrir því að hittast yfir höfuð.. og þá eruð það áramótin og það plan er bara næstum því alveg komið á hreint :) það verður partý hjá Sprellen og bróðir hennar :) sem er mjög gott vegna þess að þú eru bara niðrí bæ og þangað koma örugglega alir sem ég þekki :) þannig að ég þarf ekki að fara neitt annað.. það er ef mér verður boðið.. er sko ennþá að bíða eftir boðskortinu :/ og þá er það helgin.. á föstudaginn var jólahlaðborð niðrí vinnu það var bara fínt..svo kíktum við nokkrar niðrí bæ..ég var nú bara komin heim og farin að lúlla klukkan 5...á laugardaginn gerði ég EKKERT..klæddi mig ekki einu sinni!! og sunnudagurinn var mjög svipaður..nema þá fór ég aðeins niðrí Básenda og skrapaði nokkrar límklessur.. ekki mjög spennandi það :/ en svona er líf mitt í augnablikinu..ekki mjög spennandi
en núna er kominn tími til að fara lúlla.. þannig að ég bið að heilsa í bili bæjó :*
fimmtudagur, desember 11, 2003
Hellúú... mér sýnist á öllu að það sé bara komið plan fyrir áramótin... nú bíð ég bara eftir að fá boðskort og þá eru allar mínar áhyggjur búnar :) allavegana um það sem snýr að áramótagleði ;) annars er það að frétta að ég fór og málaði meira keramik í gær... það er bara svaka fínt :) ég er nú ekki sú besta í þessu en það líka skiptir ekki öllu!! það er lúúkkið..og ég lúúkka náttla mjög vel í keramik málun :) Annars er það í fréttum að ég ætla að flytja í íbúðina mína fljótlega eftir áramót :) er að vinna í því núna að rífa upp parketið, láta skipta um rúður og setja nýtt parket.. þannig að ég held innflutnings paarrtei einhvern tíman á næsta ári... ekki alveg komið á hreint.. en annað af íbúðarkaupum þá var Katrín vinkona að kaupa sér sína fyrstu íbúð og við að sjálfsögðu óskum henni til hamingju með það :) svo er það bara jólagleðin á morgun..veit ekki alveg hvort ég ætla að fara :/ er búin að vera frekar slöpp í maganum og bakið allt í klessu.. en ég sé til.. og já ef einhver vil kaupa DVD spilara þá vantar mig að losna við einn slíkan :)
mánudagur, desember 08, 2003
Mánudagur komin og eiginlega bara farinn aftur :) þetta var bara hinn fínasti dagur ;) byrjaði með sturtu og cheerios disk og svo tók við að mála og jólaskreyta niðrí vinnu.. og svo að versla fyrir jólagleðina sem er á föstudaginn.... það er ótrúlegt hvað maður getur verið snöggur að eyða 20 þús kalli!! en... á laugardaginn ætlaði mín bara að vera róleg..en það endaði með djammi :/ fór til Katrínar og ég, hún og Heiða kíktum á Metz í nokkra drykki...og meeennn hvað þeir gera góðann cosmo!!! svo lá leið okkur yfir götuna á sóðal.. þar sátum við og drukkum þangað til Sigrún kom að hitta mig og Katrín fór heim þá kíktu ég og Sigrún á Opus...gamla litaver... og það er eiginlega bara ennþá litaver :/ en dansaði helling og það var svaka stuð..svo gafst Sigrún upp en ég fór á hesthúsið og skoppaði svo yfir götuna þar sem það var bara enginn á gauknum, þar hitti ég fullt af skemmtilegu fólki sem ég sat með þar til að við vorum beðin um að fara :) Sunnudagurinn fór í að liggja í leti :) og svo var ég víst búin að segja ykkur frá deginum í dag...nema..ég fór að æfa áðan og það voru mælingar :/ en komst að því að þetta er allt að virka :) mjög glöð með það :) ég læt í mér "heyra" síðar í vikunni :) bæjó í bili :*
laugardagur, desember 06, 2003
hellúú...þá er bara kominn laugardagur og ég er ennþá á náttsloppnum ;) en jæja... ég sem sagt fór á Dúndurfréttir á fimmtudaginn :) með Katrínu..og þvílíkir tónleikar... þetta voru bara með þeim betri sem ég hef séð :) og svo tók bara við bjór drykkja og poolspilamennska langt framm eftir nóttu, svaka stuð en lærði samt að ekki spila pool uppá eikkvað sem skiptir máli..ég er nebbla ekkert góð í þessum leik og allar líkur á að ég tapi :/ en aftur á móti lifir mar bara einu sinni og mitt mottó er að sjá ekki eftir neinu sem ég gerði...bara því sem ég gerði ekki ;) Allavegna er lífið bara allt á leiðinni upp..þessi depurð sem var í loftinu um daginn held ég barasta að sé að fara :) sem er hið BESTA mál. Og einu áhyggjurnar í augnabliku er hvað mar á eilla að gera af sér um áramótin... þannig að hér með auglýsi ég eftir uppástungum um hvað er hægt að gera!!
fimmtudagur, desember 04, 2003
jæja...það virðist sem tilveran sé aðeins að batna :) sem er hið besta mál... og langar mig bara að benda fólki á að góðir vinir geta gert kraftaverk :D eins og lagið segir :) en annars er svosem ekki mikið að frétta..nema að Dúndurfréttir eru að spila í kvöld og voru í gær líka.. og ég er í fríi til hálf 2 á morgun..þannig að það væri náttla kjör aðstæður ða kíkja á Dúndurfréttir í kvöld..en sé ekki frammá að það gerist :( ekki nennir mín að fara ein og vinirnir sjá ekki frammá að komast :( en að öðru máli... alveg er það ótrúlegt hvað sumt fólk fer í taugarnar á manni!! og hvað sumt fólk er mikið fíbbbl. Sem betur fer þekki ég nú ekki marga svoleiðis en held nú samt að þessi eina manneskja sé bara alveg nóg!!! er maður er með hausverk vil mar þá ekki frekar fara út í ferska loftið heldur en að fara í tónmenntartíma þar sem allir eru að syngja og spila á hljóðfæri?? ég bara spyr!! en núna verð ég víst að halda áfram að vinna þannig að ég bil að heilsa í bili...
ps. ef einhver veit um einhvern sem vantar eitt stykki skemmtilega stelpu til að dekra við þá er ég á lausu ;)
miðvikudagur, desember 03, 2003
Það er alveg ótrúlegt hvað lífið getur verið leiðinlegt og erfitt!! það virðist vera þessa dagana að allir eru að ganga í gegnum eitthvað svoleiðis :( og ég er engin undantekning... kannski er það bara að jólin eru að koma og ekki laust við að maður sé pínu einmanna í kringum hátíðarnar... þar sem mar á engann mann og engann kúrifélaga.. og kannski er það bara að það er HUNDLEIÐINLEGT veður og það að fá jóla skreytingarnar er engin tilbreyting af því að þær eru búnar að vera uppi á sumum stöðum síðan í enda október!! en ekki meir um þetta leiðindamál.. það víst ekkert annað að gera en brosa framan í heiminn og vona að hann brosi á móti :)




