sunnudagur, febrúar 29, 2004

úff... þá er ég flutt.. fyrsta nóttin í fyrstu íbúðinni var bara alveg ágæt :) og núna er það bara að koma sér almennilega fyrir.. þannig að helgin mín fór i að flytja.. ekkert spennandi.. en um næstu helgi er það bústaðar ferð með stelpunum úr vinnunni :) það verður alveg örugglega svaka stuð.. og ætli mar haldi svo ekki smá innflutningsteiti helgina eftir það.. en svo verði þið að fyrirgefa..ég á eflaust eftir að blogga minna á næstunni þar sem ég á enga tölvu :( ég ætla nú samt að reyna mitt besta til að verða ekki eins léleg og sprellen í blogginu.. það er náttla bara til skammar!! En núna ætla ég að fara vesenast heima hjá mér :) bæjó í bili

fimmtudagur, febrúar 26, 2004

jæja.. þá eru bara flutningar á næsta leiti ;) og kominn fimmtudagur.. í dag fara Ellen og Olga til úglanda og ég byrja að flytja ;) verð eilla að segja að þar sem ég hef komið marg oft til London þá er ég eilla miklu spenntari yfir því að vera flytja... það verður svaka gaman að vera loksins komin í eigin íbúð :) það eina sem á eftir að gera er bara eldhúsið.. það er að skrúfa saman skápana og setja borðplötuna á.. parketlögnin komin og allt í gúddí :) hef ekki meir að segja í bili.. langaði bara að deila þessu með ykkur :)

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Kominn þriðjudagur enn á ný :) vika er næstum hálfnuð og allt lítur út fyrir að helgin fari í að flytja ;) Annars fór ég aðeins út á lífið á laugardaginn með henni Sigrúnu og við fórum á Nasa á ball með nýdönsk.. það var svaka stuð og dansað alveg þangað til ballið var búið og þá fór mín bara heim að lúlla :) og svo var bolluboð heima á sunnudaginn og þá var hámað í sig allt nema bollur :/ svo í gær var náttla bolludagur ;) og auðvitað voru bollur í öll mál... fiskibollur í hádeginu og rjóma bollur í kaffinu :) það var nú allt og sumt sem ég hef að segja um gærdaginn.. og í dag er það sprengidagur.. og þá er það auðvitað saltkjöt og baunir :) svo held ég barasta að ég ætli niðrí íbúð að þrífa.. ekki beint það skemmtilegasta en verður að gerast..

laugardagur, febrúar 21, 2004

jæja... þá er föstudagur liðinn og kemur aldrei aftur :/ en bjarta hliðin er að það kemur annar alveg eins eftir 6 daga ;) ég eyddi mínu föstudegi í að vinna..svo kom ég aðeins við hjá henni Olgu í vinnunni og við reyktum eina sígó..svo hélt ég heim á leið þar sem ég kúrði uppí sófa þangað til ég fór að skipti um föt til að fara út að borða.. svo kom herrann og náði í mig og fór með mig á Ítalíu.. aldrei komið þangað áður.. það var fínt maturinn alveg ágætur og allt í gúddí :) svo fór mín bara hjemm að spjalla við mömmu.. glápa á smá tv og svo í rúmmið ;) og núna er ég bara vöknuð og komin á ról.. og er að velta fyrir mér hvað ég eigi eiginlega að gera af mér í dag... væri sko alveg til í að kíkja út á lífið í kvöld.. en efast um að það verði eitthvað úr því :( nema náttla einhverjum langi voðalega til að gera eitthvað með mér ;) þá má sá hinn sami endilega hafa samband... bæjó í bili

föstudagur, febrúar 20, 2004

hæhæ... komin flöskudagur enn á ný... og mín bara með ekkert plan fyrir helgina :/ er reyndar að fara út að borða í kvöld en á ekki von á því að það verði eitthvað meir en bara matur og svo heim að lúlla... en væri sko alveg ti í að gera eitthvað.. þannig ef einhver er með hugmynd eða langar að gera eitthvað þá er ég á lausu ;)

fimmtudagur, febrúar 19, 2004

Hellúú... kominn fimmtudagur :/ og ég er eitthvað voða föst í því að það sé bara þriðjudagur... en helgin var fín.. stelpurnar kíktu til mín og eftir mikið spjall og sötr var haldið í bæinn ;) ég var rosa dugleg og endist til klukkan 6!! bara ekki verið sona lengi úti síðan á síðasta ári... svo fór sunnudagurinn í að vera í þynnku og glápa á tv. Mánudagur var dagur parketlagnar :) og núna er bara eitt herbergi og gangurinn eftir ;) mín búin að vera ýkt dugleg... svo var það þriðjudagurinn sem ég var líka ýkt dugleg og fór að æfa eftir vinnu og að leggja :) svo í gær var fyrsti hóptíminn minn... það var fínt öðurvísi en ég átti von á en mjög fínt og ég hef það á tilfinningunni að þetta eigi eftir að vera byrjun á betra lífi ;) sem ég er auðvitað mjög ánægð með... og í dag er svo fimmtudagur.. það er bara vinnan svo æfing og kannski pínu parketlögn.. en annars fór ég í sjúkraþjálfun í morgun og það er nú meiri pyntingarstaðurinn!! mér líður bara eins og ég hafi verið lamin!! en það hlýtur að virka... núna verð ég að fara vinna meir þannig að ég heyri í ykkur síðar.. bæjó

laugardagur, febrúar 14, 2004

Hæ hó.... þá er bara komin helgi aftur!! og ég vöknuð og komin á ról ;) svona er mar duglegur... vikan er búin að vera fín... mætti í vinnu eins og herforingi...og á réttum tíma alla dagana :) það er nú kannski ekki mikið til að vera ánægður með en fyrir mig er það mikið afrek eins og þeir sem þekkja mig vita ;) og svo er parketlögnin á góðu róli.. hægu..en góðu ;) búin að vera dugleg að mæta í ræktina... svo eru það hlutirnir sem ég er búin að vera trassa :/ ekkert búin að vera neitt dugleg að hafa samband við fólk... tiltekt.. og að pakka fyrir flutningana :/ en það er nægur tími..og kæru vinir ef ég er ekkert búin að vera hafa samband við ykkur undanfarið..sorrý :/ og ég lofa að vera duglegri :) þá er það helgin... gærkvöldið var afsöppun í meira lagi.. var komin uppí rúm klukkan níu!! það er kannski þess vegna sem ég er vöknuð núna... en í kvöld á ég von á heimsókn frá Katrínu og Jónínu.. og við ætlum að sötra léttvín og spjalla frá okkur allt vit!! svo er aldrei að vita nema mar kíkji í bæinn.. ef stemmingin er rétt :) meira hef ég ekki að segja í bili... þannig að ég bið að heilsa :)

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

jæja... þá er kominn þriðjudagur og helgin bæði komin og farin :/ ég kíkti til Sólveigar á föstudagskvöldið, það var bara fínt..hitti Þóreyju og fleira skemmtilegt fólk :) svo á laugardeginum fór ég á Macdonalds með Ingibjörgu vinkonu sem var komin alla leið frá Akureyri til að djamma í stórborginni Reykjavík.. svo á laugardagskvöldið fór ég í mat til Ásgeirs sem eldaði þennan fína mat og var með eftirrétt og allt!! svo kom mígrenið :/ og ég fór heim að kúra og fór svo bara snemma að lúlla.. sunnudagurinn fór í að parketleggja ;) og svo er það mánudagurinn.. þá var það vinna, svo var ég ýkt dugleg og var tæðpa tvo tíma að æfa :) kom svo heim og fór í heita heita sturtu og snemma að lúlla :) dagurinn í dag er vinna og framhaldið óákveðið... þannig að ef þið hafið einhverjar hugmyndir endilega látið mig vita ;)

föstudagur, febrúar 06, 2004

Hellúú... þá er helgin alveg að byrja :) og planið að fara til Sólveigar í kvöld :) en áður en ég geri það ætla ég að byrja parketleggja ;) svona er mar duglegur.. en ég verð nú bara að segja að fellow bloggararnir mínir Sprellen og Dóra og fleiri eru bara ekkert að standa sig í þessu blog dæmi :/ það hefur bara ekkert heyrst í þessum bloggurum í heillangan tíma !! það náttla gengur ekki... það vonandi fer að rætast úr þessu.. annars hef ég ekki meir að segja í bili og bið því að heilsa ;)

miðvikudagur, febrúar 04, 2004

Hæhæ... hvað segiði þá? ég segi bara fínt.. er búin að að vera frekar bizzí uppá síðkastið en er bara alveg í fríi í kvöld :) búin að gera allt sem var á planinu fyrir kvöldið.. það er ekki mikið að frétta.. síðasta helgi var bara róleg.. kíkti aðeins til Sólveigar á föstudagskvöldið, drakk pínu bjór og fór svo bara heim að lúlla.. :) á laugardaginn var svo árlega þorrablótið og þangað mætti öll familían og borðaði þorramat.. drakk bjór og brennivín og söng hástöfum :) en mín var bara róleg og var komin heim klukkan eitt :) vaknaði svo snemma á sunnudaginn og fór í bakaríið og fékk mér að borða :) og lá svo og gerði ekkert allan daginn :D það var alveg brilljant..svo um kvöldið druslaðist ég loksins að fara sjá L.O.T.R. :/ og hún var auðvitað algjör snilld :) á mánudaginn prófaði ég solldið sem reyndist vera bara algjör snilld.. ég fór með Sólveigu á AA fund... hún átti að gera eitthvað verkefni fyrir skólann og varð að fara á fund til þess.. þetta var bara svona svaka næs og ég get vel skilið að þessir fundir hjálpi mörgum :) sem er náttla bara hið besta mál :) svo var starfsmannafundur í gær eftir vinnu.. og í dag fór ég og málaði einn vegg eftir vinnu :) svo á morgun er það æfing og svo mála aðra umferð og byrja parketleggja ;) föstudagur.. Partý hjá Sólveigu.. sé til hvort mar kíki ekki.. þetta er nú allt sem er að frétta af mér :) sem sagt allt í góðu.. bara nóg að gera.. ég rak líka augun í það að teljarinn er kominn uppí 2000 :D takk fyrir það.. mikið hlýt ég að vera skemmtileg.. en það væri svaka gaman ef það skrifuðu fleiri í gestabókina :) bæjó í bili

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter