miðvikudagur, mars 24, 2004

Hellúú.. það er bara alltí einu kominn miðvikudagur :/ það er svosem alltí góðu þá er bara styttra þangað til ég á ammæli :)
Það er nú reyndar ekkert í fréttum.. eg kíkti aðeins út um helgina.. í vinnu partý. og svo í bæinn. Fór á NASA á stuðmenn það var bara svaka fínt :) kíkti svo aðeins á gaukinn og svo bara hjemm að lúlla... og fann engan sætan strák :( en svo um næstu helgi er það ammælisveisla ;) og það verður eflaust svaka gaman :) en eins og þið kannski sjáið þá hef ég ekkert að segja... þurfti bara aðeins að koma við hjá mömmu þannig að ég ákvað að blogga pínu ;) en ég segi ykkur ef eitthvað skemmtilegt gerist ;) bæjó í bili

föstudagur, mars 19, 2004

Hæhæ.. það er alveg ótrúlegt hvað vikan er búin að líða hratt... og ég sem gerði EKKERT!! og þá meina ég ekkert... ég kíkti í heimsókn til mömmu í gær.. og það er það eina sem ég hef gert alla vikuna. En núna er ég komin aftur í heimsókn til múttu til að blogga..kíkja á mailin og auðvita borða ;) en ætla svo að halda samviskusamlega áfram að gera ekkert þegar líður á kvöldið.. það er svo sem ekkert í fréttum nema kannski að sæti strákurinn sem ég fann um síðustu helgi.. það verður ekkert úr því.. ekki það að hann sé ekki góður strákur.. bara ekki rétti tíminn núna ;) en einn vinur búinn að bætast á kippuna... mar getur aldrei átt of mikið af þeim ;) þannig að núna er það bara að finna annan sætan strák sem gæti orðið kúrivinur :) ég læt ykkur vita hvernig það gekk eftir helgi... og kannski nýti mér tækifærið og auglýsi eftir einum sætum strák sem langar að eignast kúri vinkonu... :) ég er í símaskránni... bæjó í bili :*

þriðjudagur, mars 16, 2004

jæja.. þá er helgin liðin :) og innflutningsteitið búið.. og ég verð bara að segja að það var bara svaka stuð :) kom fullt af fólki ég drakk fullt af áfengi og var ekki komin heim af djamminu fyrr en í hádeginu á sunnudaginn :) sem hlýtur bara að þýða að ég var að skemmta mér svaka vel... og mín stóð sko við gefin loforð fór og fann sér sætan strák til að knúsa :) verst að ég fékk símann hjá honum en var bara svo assskoti drukkin að ég bara man hann ekki :/ en aldrei að vita nema mar rekist á hann aftur á djamminu.. annars fékk hann nú líka símann hjá mér þannig að kannski bara hringir hann :) en svo er það bara vikan sem fer í að gera mest lítið.. svo er vinnu partý á laugardaginn og svo bara ammælisveisla um helgina þar á eftir.. ég er bara ekki búin að ákveða hvort ég ætla hafa hana á ammælisdaginn sem er 26 mars (föstudagur) eða laugardaginn eftir... það kemur í ljós síðar... jæja.. ætla fara vinna meira.. bæjó :)

fimmtudagur, mars 11, 2004

jæja mín komin aftur í vinnuna... er samt eilla ennþá pínu lasin.. nennti bara ekkert að vera heima í annan dag ;) dagurinn fór sem sagt í að liggja og glápa á tv.. borða og glápa svo aðeins meira ;) fór reyndar á leynifund hjá þunglyndisfélaginu og það var bara fínt.. þurfti mikið á því að halda :) gerði reyndar ein mistök í gær :( hitti mann á msninu og fór að rifja upp gamla tíma.. hefði betur sleppt því.. en það kom eitt gott útúr þvi öllu saman og það er að ég ákvað að hætt þessu bulli og halda áfram! ég þarf ekkert á honum að halda og er bara miklu betur stödd án hans!! og núna er það bara spurning um að skella sér út í djúpulaugina og finna sér einhvern sætan strák til að deita :) hér með auglýsi ég eftir einum slíkum :) ég er í símaskránni... svo er það bara teitið á laugardaginn.. verð að segja að mig bara hlakkar til :) og það hefur nú ekki gerst í solldið langan tíma. Er nú samt ennþá frekar spæld yfir því að það er engin að koma í heimsókn og sjá nýju íbúðina mína :( en... það þýðir ekki að velta sér uppúr því.. verð að fara vinna.. skrifa meira seinna :) bæjó í bili

þriðjudagur, mars 09, 2004

buhu :'( það er ekkert gaman að vera lasin.. mín er sem sagt komin með hita!! er búin að vera berjast við kvef núna í nokkra daga og smá hálsbólgur.. en var send heim úr vinnunni áðan með 38,7 stiga hita :( ekkert gaman.. þannig að núna tekur bara við video gláp og kúr uppí sófa.. en annars var ég í bústað um helgina.. það var nú ekkert smá mikið stuð :) alltaf hægt að treysta á að 5 hressar stelpur með áfengi um hönd og heitan pott til að liggja í verði neitt annað en gaman.. þetta var sem sagt stelpu helgi DAUÐANS.. við láum í leti, borðuðum, drukkum, spiluðum, spjölluðum og hlógum alveg svakalega mikið... þannig að þegar helgin var búin var gjörsamlega allt stress farið og ekkert nema vellíðan í líkamanum :) fyrir utan þetta kvef og hálsbólguna. En annars er voða lítið að frétta.. mér sýnist á öllu að það verði bara fín mæting í teitið mitt á laugardaginn.. held að ég hafi boðið um 13 manns..og ég held að um það bil 10 ætli pottþétt að koma :) og allt stelpur ;) íbúðin bara alveg reddý fyrir utan gólflista og höldur á nokkra skápa.. en ánægð að geta sagt frá því að mér líður bara svaka vel þarna :) og fékk mína fyrstu heimsókn í gær :) Takk Katrín ;) pínu vonsvikin með að allir hinir sem ég þekki virðast ekki hafa nokkurn áhuga á að koma og sjá :( en svona er þetta víst.. ég ætla sem sagt að fara heim núna (er hjá mömmu sko) úr fötunum mínum og í náttföt og leggjast uppí sófa og glápa á tv og lesa til skiptis þangað til ég verð svöng, þá ætla ég að borða eitthvað og halda svo áfram að glápa... eins og þið sjáið er þetta langt frá því að vera spennandi.. þannig að ef einhverjum leiðist er sá hinn sami velkomin í heimsókn :)

fimmtudagur, mars 04, 2004

Hellúú.. þá er ég komin í mat til mömmu og nýti tækifærið til að blogga ;) sniðug stelpa... það er svo sem ekki mikið að frétta nema náttla að ég er flutt að heiman ;) og bý núna í íbúðinni minni það eru nú ekki allir svo heppnir :) en verð nú samt að viðurkenna að mar saknar náttla fjölskyldunnar pínu.. en það er nú ekki langt á milli þannig að það er í gúddí :) er reyndar búin að vera svaka dugleg að vera heima hjá mér.. líður bara mjög vel þar :) sem er náttla MJÖG gott.. en þá er það helgin... sumarbústaðarferð með skvísunum úr vinnunni :) það verður eflaust alveg svaka stuð.. síðast þegar við fórum í sona ferð saman þá var bara stuð og ekkert annað!! við reyndar verðum ekki jafn margar.. en erum með pott núna sem var ekki síðast :) og svo helgina eftir það (13. mars) ætla ég að hafa pínu húsvarmningspartý.. ekki neitt voða mikið og stórt.. bara góðar vinkonur, góður bjór, gott spjall og kíkk í bæinn fyrir þá sem vilja :) en tölum betur um það seinna.. það er svo langt þangað til.. en núna er kominn matur þannig að mín ætlar að fara næra sig og ég læt heyra betur í mér eftir helgi :) bæjó í bili

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter