sunnudagur, maí 30, 2004

Hellúú... þá er bara kominn sunnudagur og samt er frí á morgun ;) ekki slæmt.. helgin er búin að vera svaka fín... Jóna kom í heimsókn á föstudagskvöldið... varð ekkert úr partý standi.. en við drukkum helling.. brunuðum í bæinn og kíktum á Pravda... veit ekki afhverju.. en fengum frítt inn :) og þegar inn var komið hittum við stráka frá noregi sem helltu í okkur áfengi :) og svaka gaman.. Jóna stakk svo af um fimmleytið og ég trítlaði yfir á Gauk.. hitti strákana og Viktoríu (stelpu sem ég kynntist á djamminu fyrir sona mánuði síðan) spjallaði fullt við allt þetta fólk.. uppúr sex var ég alveg orðin sybbin þannig að ég fór hjemm að lúlla :) bara mjög fínt kvöld. Í gær gerði ég ekkert :) og það var frábært... lá uppí rúmmi til að verða sjö!! um kvöldið :) skiptist á að lesa og lúra :) færði mig svo yfir í sófann og gláp 3 og fór þá að lúlla... vaknaði svo í morgun (eða í hádeginu) glápti á nágranna og fór svo út að rúnta pínu... fékk mér ís :p og ætla núna að fara heim.. að annaðhvort glápa á dvd eða slá grasið... er ekki alveg búin að ákveða mig... læt ykkur vita hvernig þetta fer allt saman :) bæjó í bili

fimmtudagur, maí 27, 2004

Hellúú.. þeir sem ætla kíkka til mín í pínu gleðskap eru vinsamlega beðnir að veit því athygli að það verður á föstudag í staðinn fyrir laugardag.. ég var nebbla að skoða þetta aðeins og buff er á föstudaginn á gauknum ;) og það lokar allt klukkan 3 á laugardainn :( þannig að ég held að það gæti verið mun skemmtilegra að kíkja út á lífið á föstudag ;) eníveis... vildi bara láta ykkur vita... vertu bara í bandi ef þig langar að kíkka ;) bæjó

miðvikudagur, maí 26, 2004

Hæbb.. þá er kominn miðvikudagur.. og ég fékk eitt versta mígrenikast sem ég hef fengið hingað til í nótt :( þetta er sko ekki skemmtilegt.. það get ég sagt ykkur.. ætli það sé ekki best að lýsa því þannig að það er eins og manni svíði inní hausnum.. en er orðin betri núna og er komin til mömmu til að fá eitthvað að borða :) frétti nebbla að það væri kjúlli í matinn ;) Hitti Skvíselluna í gær.. gott að fá hana heim.. var búin að sakna hennar meira en ég gerði mér grein fyrir... hún ætlar sem sagt að kíkka til mín á laugardaginn þannig að það verður svaka stuð ;) samt eitt sem mér finnst leiðinlegt.. var að pæla í þessu í gær.. ein af verstu tilfinningunum sem ég veit um er þegar manni líður eins og mar sé ekki velkomin einhversstaðar.. upplifði þetta aðeins í gær.. ekki gaman.. eins og mar sé fyrir.. en jæja.. þýðir ekki að velta sér uppúr því en samt er pínu döpur útaf því í dag.. en það lagast :) en atla fara glápa á nágranna.. bæjó í bili

Hæbb.. þá er kominn miðvikudagur.. og ég fékk eitt versta mígrenikast sem ég hef fengi hingað til í nótt :( þetta er sko ekki skemmtilegt.. það get ég sagt ykkur.. ætli það sé ekki best að lýsa því þannig að það er eins og manni svíði inní hausnum.. en er orðin betri núna og er komin til mömmu til að fá eitthvað að borða :) frétti nebbla að það væri kjúlli í matinn ;) Hitti Skvíselluna í gær.. gott að fá hana heim.. var búin að sakna hennar meira en ég gerði mér grein fyrir... hún ætlar sem sagt að kíkka til mín á laugardaginn þannig að það verður svaka stuð ;) samt eitt sem mér finnst leiðinlegt.. var að pæla í þessu í gær.. ein af verstu tilfinningunum sem ég veit um er þegar manni líður eins og mar sé ekki velkomin einhversstaðar.. upplifði þetta aðeins í gær.. ekki gaman.. eins og mar sé fyrir.. en jæja.. þýðir ekki að velta sér uppúr því en samt er pínu döpur útaf því í dag.. en það lagast :) en atla fara glápa á nágranna.. bæjó í bili

þriðjudagur, maí 25, 2004

Ég held að bloggið mitt sé eitthvað bilað :( sjáum hvort þetta virkar..

mánudagur, maí 24, 2004

jæja.. þá er enn ein vikan byrjuð.. veit ekki alveg hvort ég er ánægð með það.. það þýðir að það er styttra í að veturinn komi aftur :/ en hugsum ekki útí það fyrr en í september... dagurinn var bara aldeilis fínn :) fór í hljómskálagarðinn í morgun og lá þar og sleikti sólina ;) eftir hádegi vorum við bara útí garði að sleikja sólina og líka eftir kaffi.. sem sagt fínt í alla staði ;) gott að vinna á leikskóla í svona veðri..mar getur verið úti allan daginn ;) svo kom ég heim og datt þá allt í einu í hug að mig nauðsynlega vantaði gardínur fyrir svefnherbergis gluggann minn og dró mömmu með mér í IKEA til að finna gardínur..og júbb.. fann þessar fínu dínur og á bara eftir að setja þær upp.. fæ Magnús eða Pabba í það.. svo var mér bara allt í einu að detta það í huga að mig langar að halda pínu partý um næstu helgi..nebbla ef ég man rétt þá er Skvísellan að koma heim :) og ég veit að strákarnir eru að spila á gauknum þannig að það gæti verið gaman að kíkka út... ætla melta þessa hugmynd aðeins.. en ef það er einhver hér sem myndi vilja koma þá bara skilja eftir línu og ég hef samband ;) ætla fara grillllla.. sé ykkur seinna.. bæjó í bili

sunnudagur, maí 23, 2004

Hæbb... þá er helgin bara alveg að verða búin.. bara nokkrir tímar til stefnu.. helgin mín er búin að vera fín :) kíkti til Jónínu á föstudaginn í útskriftarpartei.. sem endaði með því að ég kíkti í bæinn.. var ekkert lengi en skemmti mér mjög vel :) sem er náttúrulega fyrir öllu.. laugardagurinn var fínn... lá yfir vídjó og rölti til múttu..borðaði góðan mat :) átti reyndar að vera fara í ammæli.. var búið að vera á planinu í mánuð en hlutir breytast.. ég vona bara að ammælisstelpan hafi átt góðan dag og verið ánægð með pakkann ;) þannig að ég glápti á meira vídjó og tv um kvöldið.. var reyndar boðið í partý og matarboð en var bara ekki alveg í fyllerísfíling og ákvað að vera bara hjemme og hafa það svaka kósý :).. þrátt fyrir ítrekaðar beðnir bæði hjá Viggu og Olgu um að koma á djammið :) svo vaknaði mín í morgun og fór að skúra!!! ekki nóg með það heldur þvo þvott líka.. rölti svo yfir til múttu og glápti með henni á The last samurai.. sem er bara aldeilis fín mynd ;) núna er planið að rölta heim.. taka úr þvottavélinni og hengja út..já út á snúru.. ef einhverjum þarna úti dettur eitthvað sniðugt í hug fyrir mig að gera í kvöld þá hefuru bara samband :)

fimmtudagur, maí 20, 2004

Hæhæ :) alltaf gaman að vera í fríi svona í miðri viku :) svo vinnur mar bara í einn dag og þá er komið helgarfrí ;) það er reyndar ekkert í fréttum.. er bara komin til múttu í skyldu heimsókn og ákvað að blogga pínu.. ég gerði ekkert í gær..eilla bara sofnuð klukkan hálf átta :/ en það er bara fínt. Er búin að vera sooo þreytt alla þessa vikuog loksins náði ég aðeins að hvíla mig ;) en það var greinilega eitthvað djamm í gangi þar sem ég var alltaf að vakna við símann og var með fullt af misstum köllum í morgun.. svo er það bara hvað mar á að gera af sér um helgina :/ mér er boðið í útskriftar partý á morgun ( veit ekki hvort ég ætla ) og ekkert plan fyrir laugardaginn.. þannig að ef ykkur dettur eitthvað í hug... látiði mig vita :) bæjó í bili

þriðjudagur, maí 18, 2004

MMmmmMMmm.. alltaf gott að fá sér pulsu með öllu nema hráum :) af mér er bara gott að frétta.. var boðin vinna í gær ;) svona er mar vinsæll.. og mín ætlar að prófa á laugardaginn og sjá hvernig henni líst á. Þá verð ég sem sagt ekki í fríi :( en það er allt í góðu sona einu sinni.. ég segi ykkur meira um þetta mál seinna.. þegar ég veit sjálf meira um þetta. Annars er kominn þriðjudagur og bara vinna á morgun og svo einn dagur í frí ;) dagurinn í dag var bara fínn.. var að vinna og fór svo í pínu viðtal útaf hinni vinnunni.. kom so til mömmu og borðaði pulsu :) og svo var planið að kíkja í bíó í kvöld með stelpunum úr vinnunni en lítur allt út fyrir að ég komist ekki :( sem er kannski bara gott þar sem staðan á kortinu hefur ekkert breyst :( En á morgun verð ég svo að velja á milli þess að kíkja á dúndurfréttir eða fara á spilakvöld með vinnugellunum.. læt ykkur vita hvað gerist í þeim málunum. Eins og þið kannski sjáið er bara ekkert í fréttum.. engar fréttir eru góðar fréttir :) ef þið hafið eitthvað um þetta blaður mitt að segja þá er ykkur það velkomið :)

og púff... var næstum búin að gleyma... Grameðlustrákurinn varð pabbi á sunnudaginn og ég vil bara óska honum innilega til hamingju með það :*
bæjó í bili

mánudagur, maí 17, 2004

Heelúú... þá er kominn mánudagur og júróvisíjón búið :( ææ.. það er kannski bara ágætt.. annars var helgin bara svaka fín :) ég var bara í rólegheitunum á föstudaginn.. glápti á imbann og fór snemma að lúlla :) og tók svona pínu dekur.. klíndi á mig fullt af kremum og naglalakkaði mig og sollis ;) það er alltaf gaman.. svo rann upp júródagurinn mikli.. ég vaknaði frekar snemma :( var komin á fætur og útúr húsi klukkan tíu!! rölti yfir til mömmu og fékk mér morgunmat.. dró þær (mömmu og Evu) svo með mér í kringluna þar sem ég fór í ríkið og við skoðuðum í búðaglugga.. svo var ferðinni heitið í bónus þar sem mamma ætlaði að versla en ég fór á meðan í heimsókn til Sprellenar í vinnunna... og ætlaði að ná í símann minn... en nei!! hún bara gleymdi honum alveg eins og daginn áður..hmm... þannig að ég fór bara í bókasafnið og svo heim til mömmslu aftur þar sem pabbi beið eftir mér eins og lítill strákur á jólunum.. þá hafði kallinn farið að og keypt miða handa mér og brósa litla á Metallica!!! þannig að ég á miða á metallica og þurfti ekkert að borga fyrir hann!!! sem er hið besta mál þar sem ég á nákvæmlega 2 krónur inná debetkortinu mínu :( eftir spjall við pabba fór ég heim og kúrði í sófanum og þvoði þvott þar til það var kominn tími á að gera sig reddý á júródjamm ;) ég kíkti sem sagt til Drífu og glápti á júró þar.. fór svo til Þórönnu í áframhaldandi júrópartý.. druslaðist svo í bæinn uppúr miðnætti og byrjaði á Sólon.. það var ekkert spes þannig ég skoppaði niðrá gauk þar sem ég dansaði eins og brjálaður gíraffi þangað til ég var vinsamlegast beðin að fara þar sem staðurinn væri að loka!! trítlaði yfir á amster.. hitti eitthvað fólk þar og svo eftir smá stund (gæti alveg hafa verið klukkutími..tímaskynið ekki uppá sitt besta) var ég beðin að standa upp og fara þar sem þeir voru líka að loka!! þá hélt ég heim á leið og eldaði mér eggjaköku í morgunmát :) glápti pínu á dvd og fór svo að lúlla ;) bara svaka fínt kvöld og vil þakka öllum sem gerðu kvöldið sona skemmtilegt ;)

föstudagur, maí 14, 2004

iss... var næstum búin að gleyma... ég vil einnig óska Forseta Íslands innilega til hamingju með ammælið ;)

það er solldið sniðugt með þennan nýja blogger að mar getur séð hvað mar er búinn að skrifa mörg blogg :) ég til dæmis er samkvæmt bloggernum búin að skrifa 167 blogg :) bara nokkuð gott... annars er ég búin að ákveða að ég ætla ekki uppí bústað.. ætla bara vera heima og þvo og glápa á idol og kannski fara í heimsókn til Katrínar :) langt síðan ég hef séð stelpuna.. svo á morgun er það júró djammið og ég veit ekki ennþá hvað ég ætla að gera!! þið verðið að bjarga mér... hvað á ég að gera????

fimmtudagur, maí 13, 2004

jæja.. ég er löngu komin til mömmslu... festist í tv glápi og var sett í að elda ofaní liðið... annars var ég að fá ammælispakka.. solldið seint en engu að síður mjög góð gjöf :) fékk þetta líka dýrindis ilmvatn og skal gefarinn hafa þökk fyrir :* núna get ég ekki bara verið með flott og nýtt hár heldur ilmað eins og nýja ilmvatnið mitt ( veit ekkert hvernig ég á að lýsa lyktinni :/) og það er sko ekki slæmt :) annars er ég búin að vera reyna fá tíma í pyntingu hjá Sprellen í nokkra daga en stelpan er víst so slöpp þannig að ég held barasta að ég neyðist til að pína sjálfa mig :( sem er eilla ekki nógu gott... mér finnst þetta svoooo vont að ég svindla alltaf og plokka ekki allt... en það verður bara að hafa það.. svo er það bara það nýjasta í fréttum.. ég er kannski að fara í bústað í eina nótt á morgun :) ætla aðeins að melta það.. veit ekki alveg hvort ég nenni.. ætla líka að sjá hvað stelpurnar (úr vinnunni) ætla gera. En svo er það annað.. um síðustu helgi þegar húsó gellurnar voru hjá mér.. fékk ég eina capri sígó hjá Sylvíu.. og núna get ég ekki hugsað um annað en að fara og fjárfesta í einu slíkum pakka sjálf!!! og ekki nóg með það heldur langar mig í mentol capri!! ississ... en það er kannski í lagi að fá sér eina og eina svona stundum..er þakki???

vúhú... komin með nýtt hár ;) ooo það er sooo gaman :) ég sem sagt fór í klippingu í gær.. og er orðin nánast dökkhærð og frekar stutthærð :) það er bara gaman :) og svo er bara ekkert annað í fréttum... ég kannski blogga meira ef ég kíki til mömmslu á ettir.. varð bara að segja ykkur frá nýja hárinu ;) bæjó í bili

miðvikudagur, maí 12, 2004

jeiiiijj... er að fara í klippingu!! það er sko alltaf gaman :) ég hef nákvæmlega ekkert að segja..varð bara að deila þessu með ykkur :) og kíki kannski við hjá múttu þegar ég er búin þannig að þá get ég sagt ykkur hversu sköllótt ég verð orðin ;) annars vil ég bara ítreka við ykkur að endilega láta mig vita hvort ég má eiga von á ykkur í heimsókn á laugardaginn ;)

þriðjudagur, maí 11, 2004

jæja... það er orðið augljóst að þetta blogg mitt er endanlega orðið geðveikt!!! en það er bara gaman... nú sé ég að teljarinn er kominn niðrí einn :/ og égheld að hann hafi verið kominn uppí 3000 og eitthvað bara rétt áðan... en svona verður þetta bara ég nenni ekki að pæla í þessu.. ég var sem sagt að vinna í dag (en ekki í fríi eins og stendur hér fyrir neðan... þar sem bloggið fór líka á flipp í gær) og það var bara fínt.. ég hef nú samt pínu áhyggjur af júrókvöldinu.. það er búið að bjóða mér á tvo staði en ég veit ekki ennþá hvort að ég ætla að halda líka partý.. nenni því nú samt ekki ef enginn mætir :/ þannig að þið megið endilega láta mig vita hvort þið mynduð vilja kíkja til mín eða ekki ;) þá veit ég það og get ákveðið hvað ég geri :) en hef svo sem ekkert að segja ætlaði bara að láta ykkur vita að bloggið er orðið insein in ðr breinhás :S og að þið verðið að tékka á þessu Love testi ;) það er geðveikt sniðugt...

Þetta er brilljant!!! allir að prófa... Love test

Ó MÆ GOOD... það er búið að breyta útlitinu á blogger.com :/ og ég verð að viðurkenna að ég er bara ekkert hlynnt sona breytingum sem gera mitt líf aðeins flóknara... en sem betur fer er ég nú ágætlega gefin og fann útúr þessu öllu saman og get því bloggað á ný ;) ekki það að ég hafi neitt sérstakt að segja.. langaði bara að blogga... og sagði víst í gær að ég ætlaði að blogga meira í dag.. og mar á alltaf að standa við það sem mar segir.. er þakki?? Ég er sem sagt í sumarfríi í dag :) ekki leiðinlegt það.. og er búin að fara í bankann.. og held bara að ég hefi ekkert annað að gera... var nú samt að hugsa um að kíkja í heimsókn til Katrínar... hringi í hana og tékka á því hvað hún er að gera.. og ef hún er upptekin þá held ég að ég fari bara í leti stuð og leggist uppí sófa og glápi á dvd :)

mánudagur, maí 10, 2004

ok.. þriðja tilraun... það er greinilega ekki allt í læi með þetta blogg mitt!! ég held áfram að prófa þangað til ég er orðin alveg brjáluð..

argg... það er eitthvað að blogginu mínu :/ kannski takið þið eftir því að ég er einum degi á undan.. en það verður bara að vera þannig þar sem ég get ekki breytt því :( og öll aðstoð vel þegin...

Hmmm... það er greinilega ekki allt í góðu með þessar breytingar :/ ég mér bent á að ég er einum degi á undan.. það verður víst bara að vera þannig þar sem ég get ekki breytt því...

sunnudagur, maí 09, 2004

Ég er svo ánægð með að vera í fríi á morgun ;) það versta er samt að ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér... þaf reyndar að fara í bankann og ekki væri verra að þvo bílinn... en svo bara ekkert meir :/ kannski mar fara í sund eða lónið.. huxa meira um það á morgun.. annars gerðist ekkert meira um helgina.. nema þetta sem ég var búin að deila með ykkur... í gær var ég sem sagt bara heima og hafði það kósý :) horfði á vídjó og fór snemma að lúlla :) og dagurinn í dag var hinn rólegasti líka.. vaknaði seint.. fór að borða með Sprellen það var bara mjög fínt... samt solldið leiðinlegt að vera sona "vara" en það er víst eitthvað sem mar verður að venjast þegar vínkvennurnar eru komnar með kærasta :( en annars var ég að huxa um að halda júróvisíjón partý næsta laugardag... og ætla sona að sjá hvort einhver hefði áhuga á að mæta í sollis... gæti verið gaman að hittast og grilla ( ef veðrið verður gott ), horfa á júró og kíkka svo kannski í bæinn ef vel gengur og allir eru kátir ;) jæja.. legg þetta allavegana framm og fólk getur þá látið mig vita ef einhver hefur áhuga :) blogga meira á morgun :) bæjóí bili

laugardagur, maí 08, 2004

jahá.... ég er greinilega Chandler....

Find out which Friend you are at www.kidzworld.com!

varð bara að setja þetta inn... verðið að prófa!!! dáleiðsla í gegnum netið kveikja á hljóðinu...

Alltaf er mar að finna eitthvað nýtt hérna á veraldarvefnum ;) búin að bæta við nýjum link... so duleg stelpan :) annars er bara fínt að frétta af mér... kíkti aðeins út í gær.. með húsó stelpunum :) mikið var nú gaman að hitt þær eftir öll þessi ár... og fyndið að sjá að þær hafa voða lítið breyst.. sem er hið besta mál :) við kíktum á Nasa þar sem Íslenski fáninn var að spila.. það var svaka stuð en lokar voða snemma.. þannig að leiðin lá á gaukinn þar sem voru spilaðir nokkrir púúl leikir og svo fór mín bara hjemm að lúlla ;) þannig að það er bara aldrei að vita hvort mar gerist djarfur og kíki bara út líka í kvöld! Buffarar að spila á gauknum og það er sko aldrei leiðinlegt.. svo er það bara sunnudagurinn.. hann fer væntanlega bara í rólegheit... og svoooo er ég í fríi á mánudaginn :D mjög ánægð með það!! jæja.. ætla hætta þessu tilgangslausa blaðri og fara gera eitthvað skenntilett.. það er nebbla svo gott veður úti :) bæjó í bili...

fimmtudagur, maí 06, 2004

Hæhæ... þá er mar komin enn eina ferðina í mat til múttu :) og auðvitað er tækifærið nýtt og bloggaði pínu... það er svo sem ekkert að frétta en langaði bara að skrifa nokkrar línur. Það lítur allt út fyrir að það verði míní rejúníon hjá mér annaðkvöld sem er bara hið besta mál :) hef reyndar ekkert heyrt af því hvort Láragella ætlar að gera eitthað í tilefni dagsins en ég hef fulla trú á að hún geri eitthvað stelpan.. það er ekki á hverjum degi sem mar á ammæli ;) Það væri nú samt gaman að geta hitt stelpurnar úr húsó og drukkið og spjallað og fariðsvo í bæinn og hitt alla hina vinina :) jæja ætla fara borða.. ég læt ykkur vita hvað gerist í þessu máli :) bæjó í bili

miðvikudagur, maí 05, 2004

Ætlaði að setja inn enn eina "könnunina" en hætti við... hún var ekkert spennandi.. hef ekkert að segja þannig að ég geymi bullið þar til seinna...

þriðjudagur, maí 04, 2004

Hellúú aftur... var bara aðeins að pústa áðan... en er búin að ná mér af þessu pirri :) var að koma heim úr vinnunni (stoppaði aðeins hjá mömmu til að kíkja á mailin) og ætla fara þvo :) það er alltaf gaman.. og kannski ef ég verð í svaka stuði þríf ég klósettið líka ;) annars er svo sem ekkert að frétta.. nema að ég held að ég hafi sjaldan verið jafn vinsæl og í gærkvöldi... það ringdi inn smsum og svo hringdi heimasíminn og það var Ingibjörg sesm ég hef ekkert heyrt í pínu lengi.. og á meðan ég var að tala við hana hringdi gemsinn og það var Sylvía!!! stelpa sem var með mér í húsó og ég hef ekkert heyrt í síðan fyrstu helgina í júlí 1999.... þannig að ég var eilla bara í símanum í allt gærkvöld :) ekki leiðinlegt það.. svo sýnist mér á öllu að það verði míní húsó rejúníon hjá mér um næstu helgi... svo á Láragella víst ammæli þannig að gæti bara verið svaka stuð ;) en jæja þá verð ég víst að halda heim á leið að þvo fötin mín svo ég eigi nú eitthvað að fara í ef það verður úr þessu um næstu helgi ;) bæjó í bili :*

Hvað er málið með gifta menn!! afhverju virðist það vera að giftir menn virðast vera til í að halda framhjá bara eins og ekkert sé???

mánudagur, maí 03, 2004

Halló halló... kominn mánudagur en og aftur :/ helgin var bara svaka fín... rólegheit á föstudaginn.. partý hjá mömmu og Magnúsi á laugardaginn.. kíkti svo til Katrínar að spila kana.. og tók svo einn hring í bænum á leiðinni heim :) í gær var ég bara heima að taka því ofurrólega... stóð varla uppúr sófanum allan daginn :) það er sko alveg nauðsynlegt að taka svona daga inná milli. Vikan verður eflaust bara róleg líka.. planið að kíkja í ræktina allavegana 2svar.. og það er allt og sumt :/ kannski mar kíki í bíó líka... skilst að Kill Bill volume 2 sé komin í bíó.. eins og þið sjáið kannski hef ég ekkert af viti að segja þannig að ég kveð í bili.. bæjó

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter