þriðjudagur, júní 29, 2004

Hæhæ... ég hef ekkert af viti að segja.. langaði bara að velta fram einni spurningu.. hvað finnst ykkur að góðir vinir eigi að hafa?? blogga meir þegar ég hef eitthvað að segja..

laugardagur, júní 26, 2004

Helgin komin :) það er alltaf svo gaman þegar það kemur helgi... þessi er nú samt dálítið öðurvísi en aðrar helgar... það eru forsetakosningar!! ekki neitt voða spennandi að vísu.. en kosningar engu síður... ég er ekki enn búin að fara og nýta mér rétt minn til að kjósa.. er alveg að fara.. ætlaði bara að blogga aðeins fyrst. Fór út að borða í gær með vinnunni.. og mæli hiklaust með Galileo.. fengum æðislegan mat!! hlaðborð.. pasta, pizzur, kjöt og fisk.. smakkaði ekki pizzurnar.. en kjötið var ÆÐI æði segi ég!! pastað var einnig mjjöööög gott.. og fiskurinn svaka fínn... en ég er ekki að grínast þegar ég segi að kjötið hafi verið svooo gott að það bara bráðnaði uppí manni... þannig að ég get alveg mælt með því!! svo kíktum við á Thorvaldsen þar sem ég hitti Palla.. ekki séð hann lengi.. svo þegar klukkan var orðin tvö hélt ég heim á leið eftir aldeilis ágætis kvöld ;) svaf svo lengi framm eftir og mikið var það gott :) núna er ég sem sagt á leiðinni að fara kjósa.. og ætla svo að hafa það bara kósý það sem eftir lifir dags, það er svo ofsalega hvasst úti að ég nenni ekki að gera neitt! svo er það bara spurning hvort mar skelli sér á stuðmenn í kvöld.. sé ykkur seinna.. bæjó í bili

þriðjudagur, júní 22, 2004

EEdgy
GGorgeous
MMushy
AAstonishing

Name / Username:


Name Acronym Generator
From Go-Quiz.com

Það er ekkert annað...

mánudagur, júní 21, 2004

Hæbb... komin inn í smá pásu frá góða veðrinu ;) úff... mar... það er bara solldið erfitt að vera úti svona mikið í sólinni.. annars er lítið að frétta.. kíkti í kef á laugardaginn, það var bara fínt :) hitti Lindu og Gunna.. gisti hjá þeim sko.. Sylvía og kallinn hennar kíktu líka en fóru heim þegar við fórum í bæinn.. við stoppuðum ekkert lengi í bænum.. kíktum á eitthvað sem heitir Duus.. þar hitti ég engan sem ég þekkti.. svo sem ekki við öðru að búast, Þekki ekki mikið af fólki í Keflavík.. svo fór sunnudagurinn í dvd gláp og brunaði svo í bæinn og glápt aðeins meira á tv og fór svo bara að lúlla :) og núna er bara kominn mánudagur og svaka gott veður úti :) ég var að huxa um að fara jafnvel í sund þegar ég er búin að vinna... eða bara slá garðinn.. sé til..

laugardagur, júní 19, 2004

Helló... þá er kominn laugardagur.. og ég komin heim til mömmu.. búin að fá mér morgunmat og sest við tölvuna :) hef svo sem ekki frá miklu að segja.. kíkti uppí bústað á miðvikudaginn.. drakk heilan helling af áfengi, borðaði fullt af góðum mat og hitti fullt af fólki... fimmtudagurinn var fínn... fór í mat til ömmu.. hún átti nebbla ammæli í gær stelpan ;) fékk þar fullt af góðum mat og hitti allt fólkið.. föstudagur var mar bara að vinna.. og glápti svo á tv þangað til ég fór að lúlla. Núna er ég að reyna ákveða hvort ég á að pakka niður og fara í útilega með Drífu.. eða kíkja í keflavík í kvöld og hitta húsó stelpurnar... hmm.. jæja.. ætla fara stússast.. sé ykkur seinna.. bæjó

miðvikudagur, júní 16, 2004

jæja... haldiði að mar ætli ekki bara skella sér aftur uppí bústað!! í þetta sinn í stelpupartý.. en það verða víst nokkrir strákar þar líka.. en aðallega stelpur skilst mér.. þá er það bara að drífa sig hjemm eftir vinnu og henda fötum í tösku og rúlla svo útúr bænum.. þá ætti mar að mæta mátulega í kvöldmat ;) allt vel planað... en núna ætla ég að halda áfram að vinna.. sé ykkur seinna...

þriðjudagur, júní 15, 2004

arrrg... þoli ekki daga þar sem mar er að drepast úr pirri!!! en það er samt ágætt að það er ekki útí alla.. en annars er bara fínt að frétta.. kíkti aðeins uppí bústað á laugardaginn með henni Olgu.. það var fínt.. fólkið var aðeins af drukkið fyrir minn smekk þannig að ég og Olga lágum bara útí potti eftir matinn og spjölluðum þangað til við fórum að lúlla :) svo vöknuðum við og fengum okkur að borða og fórum svo í bæinn.. pabbi hringdi í mig og bað mig að klippa sig.. þannig að ég fór heim til múttu og klippti pabba.. svo trítlaði ég heim og lagðist uppí sófa og sofnaði!! og svo bara til átta næsta morgun.. mánudagurinn var fínn.. fyrir utan skyndilega magakveisu :( fór heim úr vinnunni þegar ég var búin að vera þar í einn og hálfan tíma! restin af deginum fór í að liggja uppí sófa og glápa á fótbolta.. og svo er það bara dagurinn í dag.. enn sem komið er hann bara fínn.. fyrir utan pirrið!!.. en það hlýtur að fara.. er þakki??

föstudagur, júní 11, 2004

þá er loksins komin helgi :) ekki það að ég geti kvartað.. er búin að liggja í sólinni alla vikuna.. og verð að segja að það var bara ágætt að það var ekki sól í dag.. mar verður soooo þreyttur á að vera sona mikið úti í sólinni.. en að öðrum málum.. það er komin helgi og ekkert á planinu.. það er inní myndinni að kíkja uppí bústað á morgun en get samt ekki ákveðið hvort ég á að fara eða ekki.. læt það ráðast. Annars er ekkert að frétta.. nema að ég er búin að vera mjög dugleg við að sofa :/ verð að fara laga það... það nebbla hefur í för með sé að ég er eilla hætt að borða og þar af leiðandi.. er ég mikið með hausverk þessa dagana.. ekki góður vítahringur þetta :/ jæja... ætla fara glápa með mömmu... heyri í ykkur seinna..

þriðjudagur, júní 08, 2004

hello again... ég var að kíkja yfir bloggið mitt og í ljós kemur að ég er bara búin að vera svaka dugleg við að blogga!! ef ég held svona áfram hlýt ég að fara slá einhversskonar met.. en nóg um hvað ég er dugleg ;) vaknaði í morgun og gat ekki hreyft mig :/ hef greinilega sofið svona svakalega asnalega eða verið að gera eitthvað síðustu daga sem ég hefði átt að sleppa.. þannig að ég hringdií sjúkraþjálfarann og hún sagði mér að koma eftir hádegi til sín og hún skyldi kippa þessu í lag.. og mín náttla fer á staðinn eins og þæg lítil stelpa.. og hvað haldiði!! þjálfaragellan lét mig liggja í einhverjum leiser!!! og þegar það var búið neyddi hún mig til að gera einhverjar leiðinda æfingar og sendi mig svo að liggja á kælipoka... var ekki mjög sátt við þetta.. en verð að segja að þetta virkaði þar sem ég get núna hreyft mig og er næstum því hætt að vera íllt ;) þannig að núna er ég komin á minn vinnustað og ætla sitja þar fund til hálf átta í kvöld... eins og þið heyrið þá hefur þetta verið mjög spennandi dagur.. búin að gera fullt og hann er ekki búinn enn ;)

mánudagur, júní 07, 2004

púff... enn einn mánudagurinn að líða... merkilegt hvað mánudagar fara ílla í sumt fólk! ég virðist blessunarlega laus við mánudagsveikina sem lýsir sér best þannig að fólk verður úríllt og fúllt... þannig að ég er nú bara frekar kát í dag ;) og hef ekki undan neinu að kvarta :) var reyndar farin að hlakka til að komast heim eftir vinnu og elda mér góðan mat.. en það verður víst ekki alveg strax eftir vinnu þar sem ég var búin að lofa mér annað og var búin að gleyma því :/ annars var helgin bara fín :) var heima í rólegheitunum á föstudaginn.. glápti á tv, fór í sturtu og steinsofnaði svo :) laugardagurinn var rólegur líka.. kíkti í heimsókn til mömmu.. og til Sprellenar. Kvöldið byrjaði þannig að Gríma kíkti í heimsókn til mín.. við spjölluðum helling um alla heima og geima.. svo kíkti Drífa og við skunduðum í bæinn þar sem við tók endalaus gleði og aftur gleði.. svaka stuð og vil þakka Grímunni fyrir gott kvöld :* Drífa fór snemma heim.. var að fara vesenast með ömmu sinni á sunnudaginn.. en hún skal líka hafa þakkir fyrir þann hluta kvöldsins sem hún eyddi með okkur ;) en eins og áður var sagt.. þá er kominn mánudagur og fólk í kringum mig er frekar grömmbí í dag.. þannig að ég ætla fara vinna eitthvað svo að tíminn líði hraðar :) bæjó í bili

fimmtudagur, júní 03, 2004

iss...mar mín var sko dugleg í dag ;) tók mig til í morgun og sló blettinn ;) grasið var farið að ná langleiðina uppá hné!! og þar sem ég bý í kjallaranum þá verð ég náttla mest vör við þetta allt saman... var eilla alveg hætt að sjá út... en reddaði því sem sagt í dag.. og fór svo á fund hjá þunglyndisfélaginu..minn síðasti fundur þar :( verð að segja að ég er eilla pínu kvíðin yfir því sem gerist núna.. núna verða engir fundir einu sinni í viku og ekkert aðhald :( en þetta verður örugglega alltílæ :) það tekur bara eitthvað annað við.. ætla ekki að hella mér útí að hafa áhyggjur af því.. svo er það bara vinna á morgun og soo er bara komin helgi :) ekki slæmt það.. ætla kíkka á Katrínu annað kvöld og reyna hitta á pabba á laugardaginn.. það er um það bil allt sem er planað um helgina.. ætlaði reyndar að fara á Patreksfjörð en það varð ekkert úr því :( jæja.. vildi bara segja ykkur hversu ótrúlega dugleg ég var í morgun.. ætla fara glápa á tv.. bæjó í bili

þriðjudagur, júní 01, 2004

jæja... þá er mar kominn í vinnuna aftur :) bara búin að vera vinna einn dag enh samt kominn þriðjudagur.. íslendingar eru æði.. það er annar í öllu!! ættum samt að reyna koma því í gegn að hafa annan í helgi.. eða sunnudegi.. það væri toppurinn ;) þá væri vinnu vikan ekki nema 4 dagar ;) þegar ég verð forseti þá verður þetta mjög ofarlega á listanum yfir hluti sem þarf að gera... ekki það að ég hafi eitthvað yfir að kvarta.. á ennþá eftir einn dag af sumarfríinu frá því í fyrra og verð því í fríi á fimmtudagin kemur :) sem þýðir að ég vinn aðeins 3 daga í þessari viku :) ekki slæmt það... kannski mar reyni að virkja einhvern í að kíkja í bláa lónið með manni ;) en eins og þið kannski sjáið þá hef ég ekkert af viti að segja... er í vinnunni og leiðist.. ætla halda áfram að láta mér leiðast í vinnunni.. sé ykkur seinna :)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter