ég held að á allri minni ævi hafi ég ekki upplifað annað eins... það er búið að vera steikjandi sól og glampandi hiti í 5 daga!! og ég er ekki frá því að það verði bara heitara og heitara með hvrjum deginum ;) not tú sjabbí for Bengta.. eða bara enívonn.. ég get ekki ímyndað mér að það sé einhver sem er ekki sáttur við þetta veður, nema kannski túristarnir sem komu sko ekki til
ÍSlands til að vera í 25 stiga hita dag eftir dag!! en þeir um það. Annars er komin laugardagur.. og klukkan er 12:30, sem þýðir að eftir 45 tíma mæti ég í nýju vinnuna og byrja þar með hálfpartinn nýtt líf... þar sem mín reynsla er sú að lífið manns snúist voðalega mikið í kringum vinnuna! sem er náttla ekki mjög heilbrigt en engu að síður satt. Planið fyrir helgina er ekki mjög mikið... er alveg svakalega kvebuð...sem þýðir eilla bara að ég er að drukkna í eigin hori.. sem er mun skárra en að vera drukkna í einhvers annars hori! er þakki?? eníweis.. þá held ég að ég geri ekki mikið í kvöld.. en mar á víst aldrei að segja svona.. það endar yfirleitt með því að mar verður blindfullur einhversstaðar. Ég gerðist nú reyndar svo góð að kíkja með stelpunum (sem ég var að vinna með) út aðeins í gær.. var nú bara edrú.. gerði nú samt heiðarlega tilraun til að drekka bjór.. en er bara svo mikið kvefuð að mér fór bara að líða ílla eftir 2 sopa.. þannig að mín var bara í te-inu og með snítupappír sér við hönd ;) sexý... við kíktum á
Sólon, sátum þar til að verða 2.. þá röltum við niðrá mojito þar sem við dönsuðum eins og fullt af fólki væri að borga okkur fyrir það! svo þegar lokaði þar (lokar sko klukkan 3) þá lá leiðin á Rex... en þar sagði ég skilið við skvísurnar, haft eftir dyraverði nokkrum ;) og hélt heim á leið... þegar ég var komin heim lagðist ég uppí rúm og reyndi að sofna sem gekk alls ekki vel að sökum horsins og hóstans.. en sofnaði um síðir og svaf bara ágætlega :)
Svo vakti mútta mig í morgun og við fórum og röltum um útimarkað sem er niðrá holtavegi.. gerðum þar góð kaup á kaffistelli..eða te setti.. fer bara eftir því hvað þú kýst að kalla það.. og fór svo í tvær skóbúðir þar sem ég keypti mér bláa skó á 1500 kall ;)
Ég hef í rauninni ekki frá mikið meiru að segja, enda búin að bulla alveg nóg í bili.. ætla fara og drekka meira c vítamín og reyna borða eitthvað.. bæ í bili :)