þriðjudagur, september 28, 2004

Pirrdagur....

Jæja.. þá er kominn þriðjudagur... eða eins og ég ætla kalla hann Pirrdagur! er nebbla eitthvað pirruð í dag... vaknaði eilla bara sona :/ það er samt ekki hægt að segja að ég hafi farið öfugt fram úr... ef ég geri það þá klessi ég á vegg! en þetta er nú bara samt einn af þessum dögum... er hálf pirruð.. finnst ég líta út eins og kúkur og langar bara að vera heima og ekki þurfa hitta fullt af fólki og reyna vera kammó við það... en ég hlýt nú samt að lifa daginn af...

Annars ætlaði ég að segja ykkur frá helginni, á föstudaginn kíkti ég í heimsókn til Sprellenar borðaði með þeim og svo píndi hún mig í smá stund.. þegar það var búið skundaði ég heim á leið þar sem ég fór nú bara beint uppí rúm! og var sem sagt sofnuð vel fyrir miðnætti þetta föstudagskvöldið... var svo vakin af værum blundi við það að síminn var að hringjua... heimasíminn!!! það gerist aldrei.... ok.. kannski ekki aldrei en mjööööög sjaldan... þannig að ég var nú vægast sagt frekar hissa.. en svo þegar ég svaraði þá var þetta nú ekki símtal um að himininn væri að farast eða eikkvað sollis... það var nú bara drengur einn sem vantaði að heyra aðeins í mér... og eins og svo oft þegar mar er búinn að fá sér aðeins í glas.. þá finnst manni það vera besta hugmynd í heimi að hringja í fólk um miðjar nætur og spjalla við það ;) þannig að ég spjallaði við hann í smá stund þar til ég var nú bara alveg að sofna... þá fór ég nú bara aftur uppí rúm og hlélt áfram að lúlla.. :)
Laugardagurinn fór í að stússast.. fór í smáralindina, kringluna, kíkti í bæinn... og í heimsókn til mömmu.. hitti pabba... og kúrði aðeins yfir tv áður en ég fór að gera mig reddý fyrir útað borða með stelpunum :) við fórum útað borða á Rossopomodoro... maturinn var fínn... ekkert of dýr.. en þjónustan var svonasvona... alltof mikill hávaði fyrir minn smekk... þannig að ég held að ég myndi ekki fara aftur þangað... ææ veit það samt ekki... eftir matinn fórum ég og Ellen hjem til mín og drukkum áfengi, spjölluðum og hlógum að vitleysunni í okkur... eftir mikið af því þá héldum við af stað í bæinn.. þar var nú eitthvað fátt um fólk sem mar þekkti... en samt mjööög langt síðan ég hef setið á glaumbar í svona laaaangan tíma! kíktum svo aðeins á amster, nellys!!! og svo bara heim :) fínt kvöld... og það er nú eilla bara solldið langt síðan ég hef farið svona snemma heim úr bænum :) sem þýddi bara að ég var vöknuð á skikkanlegum tíma og hafði heilan dag í að liggja og gera ekkert :) alveg eins og sunnudagar eiga að vera ;)
þá er bara kominn mánudagur og ég fór eftir vinnu og verslaði í matinn!! hef ekki gert það í mjög langan tíma... hef alltaf farið í mat il múttu... en komst að því á sunnudaginn að ég varð að kaupa eitthvað að borða.. átti bara hrísgrjón :/ það er ekki beint það sem manni langar að borða í þynnkunni.. þannig að mín fór í hagbauk eftir vinnu og keypti í matinn fyrir næstum 5000 krónur!! en á þá allavegana eitthvað að eta þegar hungrið kemur...

jæja... hætta bulla í bili.. verð að fara skrá...

fimmtudagur, september 23, 2004

Plan í fæðingu...

Jæja... miðvikudagur búinn... og fimmtudagurinn rúmmlega hálfnaður... planið fyrir helgina er eilla alveg komið á hreint.. það er allavegana ákveðið að ég fer ekki norður :/ það er kannski bara best.. hefði nú samt alveg verið til í að tjútta í takt við EGO. En einhverntímann hljóta þeir að spila í Reykjavíkinni!! ég bíð bara róleg þangað til ;) svo er það helgin.. ég hringdi í morgun og pantaði borð fyrir 4 á rossopomodoro..aka rauðir tómatar.. ég, Olga og Ellen ætlum nebbla að fara út að borða... fyrir þá sem eru fljótir að fatta þá kannski rákuð þið augun í að ég pantaði borð fyrir 4 þannig að það getur ennþá einn bæst í hópinn ;) þannig að það er bara vera í bandi ef einhverjum langar að koma borða með okkur ;) eigum borð klukkan 20... og svo held ég að planið sé bara að fara út á lífið ;) það er bara spurning um hvert á að fara...??? bankinn er opin fyrir hugmyndum ;)

miðvikudagur, september 22, 2004

Andrés Önd ....

Já það verður ekki annað sagt en að ég eigi hæfileikaríka vini... hlustið á þetta.. híhíhí...
Andrés Önd fyrir blinda....

þriðjudagur, september 21, 2004

vúhú!!!

ég var svo kát þegar ég vaknaði í morgun... hasssperurnar næstum farnar ;) sem þýðir að ég get farið að dansa eins og duracell kanínan aftur... mjöööög fljótlega ;)
Annars er kominn þriðjudagur.. það þýðir að það eru bara þrír dagar eftir í þessari viku!! ómægöd hvað tíminn líður!! og það er auðvitað strax farið að plana næstu helgi.... það er annaðhvort að grúppíast norður í land og fara á hið marg umrædda EGO ball... eða vera í bænum og fara út að borða.. ætla ekkert að ákveða mig strax.. bara láta það ráðast ;) það er alltof erfitt að ætla ákveða svona langt fram í tímann!! það er alveg spurning um að ákveða bara ekkert fyrr en á föstudaginn... eða bara laugardaginn.. æææ... hausinn á mér er strax farin að fara í hringi...

En að öðru.. í gær fór ég og fékk mér Nings að borða... ég var alveg búin að gleyma hvað núddlur geta verið góðar.. svo fær mar alltaf fullt af hrísgrjónum með.. ég skil það ekki alveg.. ég til dæmis hef ekkert við fullt box að grjónum að gera þegar ég er að borða núddlur.. ef ég hefði fengið mér einhversskonar kjöt þá hefði ég verið mjög ánægð með grjónin mín... en þar sem ég var bara að borða núddlur þá fóru grjónin sem ég fékk bara beint í ruslið... sem er náttla bara sóun á mat!! púff... ég ætla hætta þessu bulli... þið kannski sjáið að ég hef ekkert að segja...mér bara leiðist og þá er fínt að geta bloggað... ætla samt að hafa vit á því að hætta áður þetta fer útí algjöra vitleysu...

mánudagur, september 20, 2004

HASSSPERUR!!!!

já... ég er sko með hassperur í dag... kýs að skrifa þetta svona í staðin fyrir harðsperrur.. það er bara ekki jafn gaman! eníweis.. þá er ég sem sagt með hassperur dauðans í dag... er greinilega ekki í nógu góðri æfingu :/ verð að fara gera eitthvað í því... ég kíkti út á djammið á laugardaginn... fór í partý.. svaka stuð.. það er alltaf svo gaman að fara í partý þar sem er verið að spila á gítar og syngja :) svo var planið að fara á nasa að sjá papana spila.. en einhverra hluta vegna gerðum við það ekki.. veit ekki alveg akkuru?? fórum á thorvaldsen, þar sem ég hitti Pésa frænda og Kötu :) stoppuðum þar í einn drykk og smá spjall... héldum svo áfram og komum við á Victor... skil aldrei akkuru fólk er hrifið af því að fara þangað.. en jæja... þar stoppuðum við frekar stutt... eilla bara pissustopp... héldum áfram og fórum á amster... þar hittum við Einar og Möggu... sem ég var mjög glöð með.. það nebbla þýddi að EGO var alls ekkert að spila fyrir norðan... spurði Einar aðeins útí þetta og hann sagði mér að Bubbi væri svo lasinn að það yrði bara um næstu helgi ;) sem þýðir að ég get ennþá farið á EGO ball fyrir norðan :D
En svo ég haldi áfram með söguna... þá stoppuðum við nú ekki lengi á amster... trítluðum yfir á glaumbar.. nenntum ekki að vera þar lengi... fórum yfir á Dubliner.. og þar hittum við ( já.. kannski að segja ykkur það... "við" erum ég og Jónína) Orra, Matta, Eystein og Óskar.. og reyndar Einar líka.. Magga farin heim... vorum þar þangað til við vorum vinsamlega beðin um að fara... fórum þá aftur á amster og ég skemmti mér bara svo vel... var meðal annars með Einari og Óskari inná klóssti að spjalla í örugglega 40 mín!! og ég hló svooooo mikið :) það er svo gott að hlæja ;) ekki spurja mig afhverju við enduðum inná klóssti að spjalla... man það ekki... held að það hafi verið til að flýja leiðindagaur sem var alllltttoooofff fullur og bara vildi ekki láta mig í friði... en það bíttar ekki öllu.. það var svaka stuð og loksins þegar við áttuðum okkur á því að við vorum að sitja inná klóssti að spjalla drifum við okkur upp.. en bara til að komast að því að það var búið að loka og allir farnir.. þannig að kannski vorum við aðeins lengur en 40 mín... ææ ég man það ekki... og ekki má gleyma því að ég dansaði eins og duracell kanínan.. kannski þess vegna sem ég er með allar þessar hassperur :/ eða ekki... híhí.... jæja.. ætla hætta bulla... fara vinna... eða bara reyna hreyfa mig án þess að finna til ;) það er líka ágætis takmark... bæjó í bili...

föstudagur, september 17, 2004

jæja þá...

Ég er búin að ákveða að ekki fara á agureyrina þessa helgina :( hefði nú samt alveg verið til í það.. ball með EGO... það er nú valla leiðinlegt!! en ég verð víst bara að fá fréttir af því hjá vínkvennum mínum sem búa þarna norðurfrá og ætla kíkja á ball...
Ég ætla aftur á móti að hafa kósýkvöld með sjálfri mér í kvöld... var að huxa um að fara og kaupa mér ís... kannski taka mér spólu.. eða bara lúra uppí sófa og fara snemma að sofa...
ég er ekki ennþá búin að plana neitt annaðkvöld... er ennþá að reyna ákveða hvað ég á af mér að gera... ætli það endi ekki með því að mar kíki út á lífið... en hvort það verður djamm eða bara kíkk er ennþá óráðið! hef reyndar öruggar heimildir fyrir því að allnokkrir af mínum "djammfélögum" ætli að fá sér í aðra tánna.. jafnvel báðar á morgun... þannig að það er aldrei að vita hvað mar gerir... en allt í lausu lofti ennþá ;)

fimmtudagur, september 16, 2004

hmm...

jæja... fimmtudagur.. og hann er meira að segja alveg að verða búinn ! og ég er eilla hætt við að fara norður um helgina... finn engan til að fara koma með mér... og sé meira segja ekki frammá að ég sé að fara neitt á djammið bara yfir höfuð!! ég verð að segja að ég er nú bara frekar döpur yfir því :( væri sko alveg ti í að fara útá djammið og fagna nýju laununum mínum ;) og svo var bara svo gaman síðustu helgi að mig langar í meira :/ ég ætla nú samt ekki að gefast upp án baráttu!! er nebbla með nokkrar hugmyndir um hvað er hægt að gera um helgina... mér datt í hug að fara kannski út að borða.. eða hafa smá stelpukvöld heima, sem myndi annaðhvort enda með djammi eða bara kósý kvöldi heima :) svo er alltaf inní myndinni að elda sér bara eitthvað voða gott og fá sér smá hvít og jafnvel bjór ;) og kíkja svo eitthvað út... þarf eilla bara að finna einhvern sem er til í að gera eikkvað skemmtilegt með mér ;) og auglýsi hér með eftir þeim aðila... mega alveg vera fleiri en einn.. nema náttla þetta verði stelpu kvöld þá mega náttla bara stelpur koma ;)

En að öðrum málum... ég verð bara að lýsa yfir ánægju minni.. ég var búin að segja ykkur frá því að um síðustu helgi hitti ég strák sem ég var samfó í taxi niðrí bæ úr grafavognum.. þessi strákur vildi endilega fá símann minn og ég benti honum á að við værum nú ekki margar með þessu nafni mínu í símaskránni (veit reyndar ekki betur en að ég sé sú eina) þannig að ef hann vildi gæti hann bara flett mér upp og fundið númer mitt þannig.. áttu náttla alls ekki von á að hann myndi leggja allt þetta erfiði á sig bara til að fá símann hjá mér... en viti menn á þriðjudagskvöldið hringir hjá mér síminn og það er bara enginn annar en umræddur maður/strákur!! ég verð nú bara að viðurkenna að ég var nú bara frekar hissa... en gaman samt :) langði bara að deila þessari litlu sögu með ykkur.. veit nebbla að það eru fáar stelpur sem trúa að það séu til svona strákar þarna úti... þá á ég við stráka sem standa við það sem þeir segja... en ég fann einn... eða hann mig... og núna er bara að sjá hvort að hann hringir aftur...

En á morgun er bara kominn föstudagur... þessi vika er búin að líða solldið hratt!! ég er að fara á nokkurskonar ríjúníon á morgun klukkan 4.. hlakkar pínu til.. og er pínu kvíðin en hef nú samt enga trú á að það verði neitt annað en skemmtilegt ;) en jæja.. það er víst nóg komið af bulli í bili... síjúleiter :)

miðvikudagur, september 15, 2004

;)

ég vissi að miðvikudagar væru góðir dagar... í nýju vinnunni fær mar útborgað 15. hvers mánaðar og það vill svo skemmtilega til að í dag er einmitt 15. ;) og ég veit að mar á ekki að monta sig... hef það líka á tilfinningunni að flestum þyki þetta nú ekki merkilegt... en ég er búin að vera vinna á leikskóla í 2 og hálft ár þannig að ég er bara ekki vön svona tölum á mínum launaseðli!!! þannig að ég verð bara að segja að þetta er bara hinn fínasti dagur ;)

annars fékk ég hugdettu í gær... heyrði í úbvarpinu að EGO er að spila í sjallanum um helgina... og allt í einu datt mér í hug að drífa mig bara norður á ball með EGO... er það ekki bara ágætis plan?? og þá er það næsta spurning... langar einhverjum að koma með??? er kannski ekki alveg að nenna fara ein...
en væri örugglega svaka stuð... eníeis... ef það er einhver þarna úti sem les þetta blogg mitt þá er ég sko alveg ti í að kíkja norður og tjútta á ak um næstu helgi ;)

þriðjudagur, september 14, 2004

ég get ekki kvartað...

jæja... hvað segiði þá? ég segi bara fínt... get ekki kvartað... mátulea mikið að gera í vinnunni, fólk yfirhöfuð ekki með neitt pirr og vesen og allir bara frekar kátir í kringum mig ;) og svo er náttla miðvikudagur á morgun ;) og um daginn sagði ég ykkur það að miðvikudagar eru bara einir af uppáháldsdögunum mínum... ástæðan fyrir því er sú að á miðvikudögum er vikan alveg að verða búin! ekki nema fimmtudagur og föstudagur eftir.. en eins og þið kannski sjáið hef ég ekki mikið að segja.. skrýtið.. alltaf þegar ég hef nógan tíma til að blogga eitthvað handa ykkur þá bara hef ég ekki frá neinu að segja.. hmm.... ef það gerist eitthvað sniðugt á eftir þá kannski bæti ég því inn :) en annars ætla ég að fara gera akstursbeiðnir.... bæjó í bili..

mánudagur, september 13, 2004

blebleble..

mánudagur... verð að viðurkenna að ég er ekki mikill aðdáandi mánudaga... þeir eru ágætir svo sem en ég persónulega er hrifnari af miðvikudögum.. held barasta að miðvikudagar og föstudagar séu uppáhalds dagarnir mínir ;) en þessi mánudagur er bara ágætur en sem komið er.. er reyndar pínu þreytt eftir helgina... en það er vel þessi virði! ég fór sem sagt á bjórkvöld í vinnunni og mikið svakalega var gaman ;) kvöldið byrjaði með grilli hérna niðrí vinnu... og svo voru 4 fiskikör full af bjór og klaka!! 4 KÖR vitið hvað það er mikið af bjór!! þeir sem sáu um þetta kvöld reiknaðist til að þetta væru um 2000 bjórar... og það voru í kringum hundrað manns á þessu bjórkvöldi... þetta þýðir að hver og einn hefði getað drukkið um 20 bjóra!! það er solldið mikið... aníweis.. þá var setið hér og borðað, drukkið, spjallað, sungið og dansað til hálf eitt þá kom strætó að sækja okkur og ég held að allir hafi komið með á ball uppí grafarvogi.. sixties var að spila og það er nú alltaf gaman að dilla sér við þá :) þar uppfrá kynntist ég strák sem ég fór svo seinna um kvöldið með niðrí bæ... voru sko bara samfó í taxa.. niðrí bæ hitti ég Katrínu Rós sem ég hef ekki séð í heilllllllaaaangan tíma þannig að það var nú alls ekki leiðinlegt.. svo þegar ég var orðin pínu þreytt á gauknum... verð eilla að viðurkenna að mér er farið að leiðast gaukurinn pínu :/ .. þá trítlaði ég yfir götuna og kíkti á amsterinn.. þar var sko bara fullt af fólki.. hitti meðal annars Kötu frænku, Stebba stuð og kærustuna hans, strákinn sem ég var samfó niðrí bæ, einn gaur sem ég man aldrei hvað heitir og svo má að sjálfsögðu ekki gleyma Pétri og Berg se voru að spila þetta kvöld... ég og Kata tókum okkur til og dönsuðum og sungum þangað til allir voru hættir að spila... þá held ég nú að klukkan hafi verið orðin ansi margt... en ég kíkti aðeins niður á strákana.. þar var mikið rætt um að fara í partý.. en ég ákvað að vera bara stillt lítil stelpa og fara heim að lúlla :) sem er kannski bara eins gott.. þegar ég kom heim kveiktiég á tv og ætlaði að fara horfa smá á vídjó... ég var ekki búin að ýta á play þegar ég steinsofnaði í sófanum!
Svo fór nú bara gærdagurinn í að liggja eins og brokkolí og borða kjúlla ;)

jæja... ætla hætta bulla í bili.. ætli mar verði ekki að gera eitthvað fyrst að mar er í vinnunni...

laugardagur, september 11, 2004

vúhú

þetta tókst ;) komin ný mynd... kannski ekki sú besta... en samt betri en gamla myndin!

klukkan 7:18 á laugardagsmorgni!!!!

já.. haldiði að ég hafi ekki vaknað klukka 7:18 í morgun!!!! ég get ekki sagt að ég sé mjög ánægð með það :/ fyrir því eru nokkrar ástæður... það er ekkert hægt að gera svona snemma um helgar, ég fór yfir það í hausnum á með en ég lá uppí rúmmi og var að rembast við að sofa meira... það opnar ekkert fyrr en um tíu.. nema kannski sundlaugarnar er samt ekki alveg viss...ætla tékka á því, nei ekki einu sinni sundlaugarnar eru opnar á þessum tíma!!! ástæða númer tvö, þetta geturu eilla bara þýtt eitt, ég er að verða gömul... allt gamla fólkið sem ég þekki vaknar alltaf fyrir allar aldir.. og núna er ég að verða eina af þeim :/ vonum samt að þetta hafi bara verið sona one off ;) svo er það djamm fólkið.. ég var að vakna þegar fólk er ennþá á djamminu!! ef ég hefði nennt að drífa mig frammúr og klæða mig þá hefði ég getað farið í partý... ein bjarta hliðin á þessu er sú að þar sem ég vaknaði svona snemma þá get ég lagt mig í dag og þarf ekkert að líða eins og ég sé að stelast ;) hef mjög góða og löggilda ástæðu fyrir því að þurfa leggja mig aðeins :) svo er nú kannski önnur björt hlið á þessu öllu saman.. eftir 10 mínútur opna flestar búðir.. og ég þarf einmitt að fara í nokkrar búðir... og af því að ég er vöknuð get ég verið komin þangað á undan öllu fólkinu ;) sem er mjög hentugt fyrir mig þar sem mér leiðist heil ósköp að versla þegar það er fullt af fólki útum allt að þvælast fyrir mér...

En nóg um það... í kvöld er svo bjórkvöld niðrí vinnu... grill og flott ;) huxa mar kíki þangað.. svo er Nýdönsk á nasa!! síðast þegar ég fór á ball með þeim var svooooo gaman... væri sko alveg til í að kíkja á þá í kvöld! en jæja ég ætla útí búð á undan öllu fólkinu.. fá mér svo eitthvað gott að borða og þá huxa ég að það verði kominn tími á að leggja sig ;)

miðvikudagur, september 08, 2004

pirripirr :/

Bloggaði þetta í gær... en bloggerinn var bara með leiðindi og vildi ekki leyfa mér að pubblissa það.. sjáum hvrt þetta virkar núna...


Jæja.. þá er kominn nýr dagur og ég er ennþá solldið pirruð... reyndar held ég að ég sé bara pirruð útaf því að ég er bara alls ekki að sofa nógu vel! verð að gera eitthvað í því.. en ég var að lesa commentin mín og ég ver ð viðurkenna að hann Andri hefur bara alveg rétt fyrir sér, mér hefur alltaf fundist haustið og veturinn mjög skemmtilegur tími :) gott að kúra uppí sófa með bók og kertaljós ;) það er nebbla so gott við veturinn að það er svo mikið dimmt að mar getur alltaf verið með kveikt á kertum ;) og svo mundi ég líka í gærkvöldi eftir einu sem einn vitur maður sagði einu sinni við mig... lífið snýst ekki bara um að láta sér líða vel... líka að kunna að leyfa sér að líða ílla af og til.. mér finnst vera mikil speki í þessu.. það nebbla getur öllum liðið vel en það kunna fæstir að takast á við það þegar þeim líður ílla... þannig að ég er búin að ákveða að vera ekki að pirrast yfir þessu og fara bara snemma að sofa í kvöld og reyna sofa vel :)

þriðjudagur, september 07, 2004

:(

í dag er ég ekki mjög kát :( svaf ílla.. þar af leiðandi mjög þreytt... :( og þar af leiðandi ekki mjög vel upplögð fyrir erfiðan dag. Ég er búin að rembast við að sjá einhverja ljósa punkta í þessu öllu... en það gengur ekki neitt, sem segir mér bara það að ég er bara alls ekki mjög kát í dag! yfirleitt gengur mér nebbla ágætlega að finna ljósa punkta á flestu... ef ekki bara öllu! en ekki í dag... það er nú kannski alltí læ svona einu sinni að leyfa sér bara að vera ekki í sínu besta skapi og ekki vera rembast við að reyna vera kátur... þá er nebbla eins og mar verði bara solldið pirraður á því að geta ekki komið sér í betra skap.. ég er allavegana sollis... en jæja.. nóg um hvað ég er ekki neitt voða kát í dag! í vinnunni minni þarf ég alltaf að kvitta undir með dagsetningu.. ég var einmitt að kvitta undir áðan og þá áttaði ég mig á því að það er kominn 7 september!!! ég vissi alveg að það var kominn sept... en það var eins það kæmi alltí einu yfir mig að það er alveg að koma vetur!!!! ég veit ekki hvort að ég er sátt við það! en ég ræð því víst ekki :( ég held að ég verði bara skella mér til úglanda að hitta skrímsluna og komast aðeins í burtu.. þarf bara bíða eftir að bossinn minn komi úr fríi til að fá að vita hvenar ég má fá smá frí ;) þá get ég farið að plana hvenar ég ætla kíkja í danaveldi ;) en nóg af bulli í bili... ætla fara gera eitthvað..

föstudagur, september 03, 2004

Flöskudagur...

þá er þessi vika búin.. verð að segja að þessi vika leið ekki jafn hratt og síðasta :/ en samt búin að vera bara fín vika sko ;) samt sollsið skrýtið að núna þegar ég er búin í fríi og byrjuð að vinna aftur þá virðist ég ekki hafa næstum því jafn mikið að segja :/ akkuru ætli það sé?? mar hefði haldið að því meira sem mar er að gera því meira hefði mar að segja... en nei.. það er greinilega ekki tilfellið hjá mér! en get nú samt sagt ykkur það að ég fór í hagkaup í dag í matartímanum mínum.. ætlaði að tékka á því hvort að snyrtivörugellan ætti nú ekki handa mér eina ilmvatnsprufu eða svo... þarf nebbla að fara kaupa mér ilmvatn og langar að prófa eitthvað nýtt... og mín reynsla er sú að yfirleitt þegar mar biður um sona prufur þá er svarið alltaf "nei á ekki neitt" þannig að ég varð mjöööög hissa þegar gellan opnaði þarna eina skúffu hjá sér og þar blasti við mér fuuuuuullllllt af allskonar prufum.. og þetta endaði með því að ég labbaði út með hvorki meira né minna en 5 stykki af prufum... þannig að næstu daga verð ég í því að gera tilraunir með ilmvötn ;)

Annars er bara komin helgi og ég veit bara ekkert hvað ég á að gera af mér?? huxa að ég verði bara heima og taka því rólega en á morgun væri ég nú alveg til í að gera eitthvað.... einhverjar hugmyndir???

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter