laugardagur, október 30, 2004

Hrekkjavaka....

já.. mér skilst að um þessa helgi sé hin alræmda hrekkjavaka!! hmm... ekki það að ég haldi eitthvað sérstaklega uppá hana en kannski eru einhverjir þarna úti sem gera það og þá óska ég þeim gleðilegrar hrekkjavöku :)

fimmtudagur, október 28, 2004

AAARRRGGGG!!!!

ég var búin að skrifa heil ósköp um allt sem gerðist á laugardagskvöldið... en bloggerinn vildi bara ekki pubblissa það :( nenni ekki að skrifa allt aftur... geri kannski meir seinna..... nett pirruð núna!!

solldið seint en....

já.. ég ætlaði að halda áfram með helgar söguna þarna um daginn... en það er bara búið að vera brjálað að gera í vinnunni og ég alltaf ein :( þannig að ekki hefur gefist tími fyrr en núna :) þannig að ég held áfram... fyrripartur laugardags fór sem sagt í að skoða þvottamaskínur... svo fór ég með pabba að kaupa ammælisgjöf fyrir 40 ammælið sem ég fór svo í um kvöldið... en ég kíkti líka aðeins til Sprellenar.. þar voru Dóran og Olga.. og allir að gera sig reddý fyrir árshátíð :) stoppaði þar nógu lengi til að sjá þegar þær voru orðnar sætar og fínar :) fór heim skipti um föt og fór í ammæli :) þar var drukkið, sungið, spjallað og bara haft mjög gaman ;) fyndið samt að fara í svona ammæli þar sem mar þekkir eilla engan.. held að ég hafi þekkt 4 mannsveskjur þarna fyrir utan ammælisbörnin :/ en samt mjög gaman :)
fór svo í bæinn með Kötu, við byrjuðum á glaumbar... eða ég byrjaði á glaumnum.. Kata var orðin aðeins of "þreytt" og fór heim fljótlega eftir að við komum þangað :) þannig að ég hélt bara áfram ein... og reyndi og reyndi að ná í eitthvað af þessu fólki sem ég þekki sem ég vissi að var á djamminu! sá eini sem svaraði mér var ástar mergurinn (hahahahaha) smá einkahúmor ;) þannig að ég hlammaði mér bara hjá einhverju fólki og sat þar þangað til að Sprellen og Olga loksins svöruðu smsunum mínum og sögðust vera á dubliners... þá trítlaði ég þangað.. rétt sagði hæ við þær stöllur.. hitti Ingvar og labbaði mað honum yfir á Amster.. þar var fullt af fólki sem ég þekkti :) þar svo sem ekkert að telja það upp.. þetta er alltaf sama fólkið :) en mikið skemmti ég mér samt vel þarna !! svo þegar var verið að loka staðnum var haldið uppá ástarmergsins stræti þar sem ég sat til klukkan hálf 3 á sunnudeginum!! og geri aðrir betur!! held að allir hafi farið eitthvað uppúr 10 en ég og íbúinn höfðum bara svooooo mikið að tala og hlusta á tónlist og ég gat bara ekki farið fyrr... eníweis.. þetta þýddi náttla að sunnudagurinn fór í ekkert!! EKKERT... lá bara til skiptis uppí sófa og rúmi og gerði ekkert ;) og svo var helgin mín ;)

þriðjudagur, október 26, 2004

já.. þegar mar er ungur :)

já... suma daga er bara betra að vera til en aðra :) ætla nú ekki að babla mikið um það.. langaði að segja ykkur frá helginni... föstudagurinn var eins og oftast rólegur.. kíkti til mömmu eftir vinnu.. borðaði pulsur og fór svo heim.. þar helltist yfir mig svaka orkubúúst.. og ég tók heilan helling til.. setti í þvottavél og fór svo í sund! og mikið var það notalegt... alveg dimmt, fátt fólk og mikil rólegheit yfir öllu :) þegar ég var búin að synda þá settist ég í bublupottin og horfði á tunglið :) gerist ekki ekki mikið betra :) þegar ég var búin að horfa á tunglið í smá tíma dreif ég mig uppúr og fór heim til að taka úr vélinni... en NEI!!! þvottavélin var búin að taka fötin mín í gíslingu!! ég hugsa að ég hafi eytt tæpum klukkutíma í að reyna opna vélina.. þangað til ég gafst upp og braut plastið framan af hurðinni... þá kom í ljós afhverju ég gat ekki opnað.. "mekanikið" til að opna hurðina var mölbrotið ! þannig að laugardagsbúðarápið hjá mér og múttu fór í að kíkja á þvottavélar... verð aðeins að vinna er nebbla bara ein hérna :(... blogga meir á ettir

föstudagur, október 22, 2004

Föstudagur :)

jább... þá er þessi vika senn á enda... og bara búin að vera nokkuð fín ;) frekar rólegt í vinnunni.. og ég hef bara ekki frá miklu að segja... herru jú mar.. fór í klippingu í gær ;) það er alltaf gaman... er orðin alveg svakalega ljóshærð.. að mér finnst :/ þetta er nú bara spurning um að venjast.. var orðin solldið mikið dökkhærð ( á minn mælikvarða).. en er voða fín :) er svo að fara í ammæli á morgun.. þannig að það verður eitthvað djamm á manni um helgina :) jæja ætla fara vinna, blogga eflaust meira þegar ég hef frá einhverju að segja :/

þriðjudagur, október 19, 2004

hehehe...

langt síðan ég hef sett svona hérna inn ;)



red aura
Your aura shines Red!

What Color Is Your Aura?
brought to you by

Ný vika...

já.. það er nú meira hvað tíminn flýgur! það er bara næstum því kominn nóvember... og ég verð nú bara að segja að mér finnst eins og það séu svona tvær vikur síðan það var ágúst :/ fyrsti snjórinn í gær... það var nú ekki mikið af honum.. en nóg til að það væri hvít jörð.. og svo má ekki gleyma hel***** kuldanum! meeeen hvað það var kalt í vinnunni í gær! á tímabili var mér svo kalt á puttunum að ég fann eilla ekki fyrir þeim.. sem er nú ekki mjög gott þar sem ég vinn mikið á tölvu! en það reddaðist... og í dag er ég svo vel klædd að mér ætti ekki að verða kalt ;) Annars er það að frétta að ég er hætt í mömmó.. settið kom heim í gær... og haldiði að hún móðir mín hafi ekki fært mér ilmvatn :) og hnífapör.. og þessa líka fínu peysu.. og tvær flís ;) eiga eflaust eftir að koma sér vel... þannig að ég er "flutt" aftur heim :) og komst að því.. mér til mikilla ama.. að ég neyðist til að ryksuga :( það er búið að fjúka solldið mikið af laufblöðum og sollis dóti inn til mín þessa daga sem ég var að heiman... kannski mar bara fái múttu með sér ein daginn í þessari viku og taki bara jólahreingerninguna snemma ;) fátt leiðinlegra en að taka til einn :( jæja ætla vinna smá... blogga kannski meira á eftir...

sunnudagur, október 17, 2004

Jeij...

já... jeij segi ég... er kát yfir því að helgin er að klárast og ég fer að vinna á morgun ;) það gæti einhverjum fundist það undarlegt að kætast yfir því... en þegar mar er búin að hanga.. ekki einu sinni heima hjá sjálfum sér!! í næstum 5 daga þá er mar kátur yfir því að mæta í vinnunna :) annars er bara fínt að frétta.. maginn næstum alveg hættur að vera með leiðindi :) og bara langt síðan ég hef tekið svona svakalega afslöppunar helgi... föstudagur.. gerði ekkert! laugardagur, kíkti til ömmu uppí bústað..svo heim og gerði ekkert :) sunnudagur.. letidagur! gerði ekkert til svona hálf 5.. fór þá að elda.. bjó til kartöbblugratín, rosa góða piparsósu, steikti sveppi... og steikti lambasteik :) MmMmMmMMMmmmm :Þ svo var auðvitað ís í eftirmat... núna er planið að glápa á tv og fara svo snemma að lúlla..

laugardagur, október 16, 2004

.....

Laugardagur... eilla alveg hætt að vera íllt í mallanum ;) sem gerir þennan dag strax að mjög góðum degi :D var að pæla í að taka krakkana og fara með þau í heimsókn til ömmu uppí bústað og kannski bara vera þar í mat :) sýnist nebbla ekkert ætla verða úr þessu deiti í kvöld... þannig að ég var að huxa um að vera bara með kósý kvöld þegar við komum heim.. ís og sollis.. ætti kannski að fara varlega í að fara háma í mig... ææ sé til.. ekki pæla í því núna.. sé til hvernig ég verð í kvöld :) en núna ætla ég að halda áfram að reyna ná í hana Sprellen og athuga hvort henni langi ekki að pína mig smá :) bæjó í bili

föstudagur, október 15, 2004

Læknar og aftur læknar

jæja.. ég dreif mig loksins til læknis í gær.. og hann sendi mig beinustu leið niðrá spítala í allskyns rannsóknir... þar var ég lögð inn og mátti bíða þar í næstum 6 klukkutíma eftir að fá að fara heim :( ekki beint mín ædél leið til að eyða deginum... en eitt gott við þetta samt sem áður.. lækninum á spítalanum tókst að minnka magaverkinn minn heilan helling!! núna eru þetta bara pínu óþægindi í mallanum :) svo á mar bara taka því rólega yfir helgina og á að verða orðin góð á mánudaginn ;) sem er mjööög fínt.. er orðin frekar leið á að hanga hjemme og gera ekkert... var að hugsa um að fara og taka mér vídjó á bókasafninu.. get þá legið yfir því um helgina... jæja.. ætla prófa borða eitthvað... blogga örugglega meira á eftir..

fimmtudagur, október 14, 2004

buhu :´(

það er bara ekkert gaman að hanga heima lasin :( ekkert í sjónvarpinu... enginn heima til að hjúkra mér :( og ég get ekki einu sinni fengið mér að borða... ekki góður dagur.. en kannski lagast þetta á eftir.. á nebbla tíma hjá lækninum klukkan hálf þrjú.. kannski hann geti sagt mér hvað er eilla að mér.... ple... hef ekki neitt að segja.. leiðist.. ætla fara finna mér eitthvað að gera...

miðvikudagur, október 13, 2004

ennþá :(

jæja.. ég gafst upp klukkan eitt í dag og fór heim.... sofnaði rúmlega 2 og svaf til klukkan hálf 7... fór þá til mömmu... ekki gott að vera einn þegar manni líður alls ekki vel :/ þannig að hér er ég ennþá og er að huxa um að fara heim... kannski mar lúlli bara hér... það er nebbla nokkuð víst að fer ekki að vinna á morgun ef ég verð ennþá svona.. er öll í keng :/ ætti kannski að fara til læknis ef þetta verður ekki farið á morgun... sem sagt ekki mikið sem gerðist í dag...

Mamma og Magnús fara til úglanda í fyrramálið þannig að ég verð í mömmó yfir helgina... það er bara fínt... slappa af og glápa á fullt af vídjó... kannski kíkja aðeins út á laugardagskvöldið.. en bara í smástund!! Drífa er nebbla að koma í bæinn og svo er pínu sjéns að ég sé að fara á nokkurskonar deit... en það verður bara stutt.. þegar mar er með eina 11 ára heima þá getur mar ekki leyft sér að vera úti langt frameftir... kannski bara tvö tíma eða svo... og svo verð ég kannski bara ennþá að drepast í mallanum og geri bara ekkert... jæja.. ætla fara glápa aðeins meira á sjónvarpið áður en ég fer að lúlla :) bæjó

:(

mér líður afskaplega ílla :( vaknaði í nótt klukkan rúmlega 4 við það að ég var að drepast í maganum!! og mér verður nú ekki oft íllt í maganum.. en þetta var alveg nóg til að endast mér í nokkrar vikur.. þegar ég var búin að vera vaknadi í klukkutíma og ennþá alveg jafn ógislega íllt ákvað ég að ef þetta lagaðist ekki eða mér tækist að sofa á næstu tíu mínútum þá mundi ég hringja í læknavaktina... sem betur fer tókst mér að "næstum" sofna og lá í keng þangað til klukkan rúmlega 7 í morgun :( þannig að í dag er ég ekkert alltof hress... svakalega þreytt.. ennþá solldið íllt í maganum og með hausverk ofaná allt!! ekki góð byrjun á deginum.. ég er nú samt að huxa um að þrauka til hádegis og ef ég verð ennþá svona að fara þá heim...

sunnudagur, október 10, 2004

Sunnudagar....

Sunnudagar eru yfirleitt alveg svakalega fínir dagar :) dagar leti og afsöppunar... ég eyði mínum sunnudögum yfirleitt í að sofa frameftir... glápa á tv og lúra uppí sófa og kannski lesa :) svo borðar mar góðan mat og safnar orku fyrir komandi viku :) og þessi sunnudagur er sko engin undantekning á þessu ;) ég vaknaði í hádeginu.. fór og náði í stelpurnar og við fengum okkur Ameríkustíls borgara... skutlaði svo skvísunum aftur hjem og kom eðins við hjú múttu.. er eimmitt þar núna.. næst á dagskrá er að fara heim glápa á mynd sem mútta tók upp fyrir mig í gær og jafnvel bara sofna yfir henni :) þá er það góði maturinn og svo bara imbagláp þangað til mar fer að lúlla :) algjör leti dagur :D

Gærkvöldið var fínt... kíkti í ammæli til Valdísar (vinnufélagi) fór þaðan niðrí skútuvog til Ellenar.. datt pínu úr stuði þar.. ekki beint mæ ædea off fön að hlusta á fólk tala um vinnunna sína :/ sérstaklega þegar ég hef ekkert til málanna að leggja þar sem ég vinn ekki á sama stað og fólkið sem var þarna... var þar til 4... hefði kannski bara átt að fara í bæinn.. en svona er mar skrýtinn... það var nebbla alltaf "bara tíu mín í viðbót" þessar tíu mín urðu á endanum hátt í klukkutími! en jæja.. fór í bæinn á endanum.. ætli klukkan hafi ekki verið rétt um hálf fimm þegar mar var komin í bæinn.. stoppaði mjög stutt þar.. var komin í taxa og haldin heim rúmlega hálf sex... en mjög fínt í ammæli ;) og þegar ég var loksins kominn í bæinn var það bara fínt :) samt ágætt til tilbreytingar að vera komin heim fyrir morgunmat... er nebbla bara mjög hress í dag ;) ekkert þunn.. bara pínu bottomlesspytt í gangi :/ og solldið þreytt... jæja.. ætla fara hjem og glápa

fimmtudagur, október 07, 2004

Er verkfall frí???

Ég tók nú reyndar þá ákvörðun einu sinni að ekki nota þetta blogg mitt í svona umræður en get bara ekki orða bundist... fyrir nokkrum dögum síðan var ég að lesa í einhverju blaði (fréttablaðinu eða Mogganum) að kennarar úr einhverjum skólanum væru að fara til útlanda í verkfallinu.. þeir sögðu að þetta væri "námsferð" en foreldrar barnanna sem ganga í þennan tiltekna skóla vildu nú meina að þetta væri "skemmtiferð" gott og blessað með það... vel skiljanlegt að þessir hópar séu ósammála um það... en svo lætur hann Eiríkur (formaður Kennarasambandsins) hafa eftir sér að það sé ekki hans má hvað kennarar gera í sínum frítíma!!!!! þess vegna spyr ég... er verkfall bara frí???

Þetta á kannski eftir að gera suma reiða eða pirraða... en það verður eilla bara hafa það... ég styð það fullkomlega að kennarar eigi að hafa góð laun fyrir erfiða vinnu... en get ekki sagt að ég styðji þetta verkfall þeirra með heilum hug þegar í augum formanns kennarasambandsins sé þetta bara frí... kennarar þurfa ekki meira frí... þeir þurfa hærri laun fyrir vinnunna sína! svo fyrst að ég er byrjuð þá langar mig líka að segja að hann Eiríkur ætti að fara varlega í að vera með þessar endalausu hótanir... það er ekki til að afla málstað þeirra mikla samúð.. jæja.. ætla hætta núna.. og vil að lokum segja að allir vinna hart fyrir sínum launum og allir ættu að fá borgað í samræmi við það! og hana nú!

miðvikudagur, október 06, 2004

Vikan hálfnuð...

jújú... það er víst þannig að þegar það kemur miðvikudagur að þá er vikan hálfnuð :) get reyndar ekki sagt að þetta sé góður dagur... er að drepast í hausnum :( var líka svona í gærkvöldi :/ var farin að sofa bara klukkan 9 af því að mér var svo íllt í hausnum mínum.. og ég sem ætlaði að gera svo mikið í gær... en ég verð víst bara að bíða þangað til hausverkurinn fer... ætla reyndar að kíkja aðeins til Kötu eftir vinnu í dag... en bara örstutt... svo held ég barasta að ég fari bara aftur snemma að lúlla :/ svona er mitt líf spennandi í dag... ég verð að bæta úr þessu... held bara að ég fari og taki mér spólu eða eikkvað sollis á morgun kannski fái mér líka eitthvað svaka gott að borða ;) og svo held ég að ég ætli að fara út á föstudagskvöldið ;) stelpurnar í gömlu vinnunni eru að fara á djammið og ég var að pæla í að fara hitta þær :) svo er það afmæli hjá Valdísi sem vinnur með mér á laugardagskvöldið... eins og þið kannski sjáið þá hefur ekkert gerst hjá mér þannig að ég hef ekki frá neinu að segja :/ ætti kannski bara að hætta þessu og halda áfram að vinna...

mánudagur, október 04, 2004

Mánudagsþreyta :(

já.. það er ekki laust við að ég sé frekar þreytt í dag :/ en það þýðir ekki að kvarta yfir því.. ég ætla nebbla fara suðrí Keflavík í kvöld ;) ætla kíkja með Guðrúnu Og Þórönnu(held ég) á hana Guðrúnu Huldu ;) hún býr sem sagt uppá velli með manninum sínum og barni... híhí.. solldið fyndið að segja svona.. hún er nebbla bara 21... en.. við ætlum sem sagt að rúlla til hennar eftir vinnu í dag... skilst að brottför sé um 19 þannig að ég ætti að geta lagt mig í 30 mín þegar ég kem heim... fengið mér svo að borða og þyrfti svo eilla líka að fara í sturtu svona aðeins til að hressa mig við ;) En að öðrum málum... helgin!! föstudagur var bara rólegheitakvöld... lá heima með svaka hausverk :( og fór bara snemma að sofa... vaknaði klukkan 8:17 á laugardagsmorguninn... en ákvað að það gengi bara alls ekki neitt og tókst að sofa til 11:26 ;) og var svaka kát með að hafa tekist að lúlla svona lengi... fór á fætur og kíkti með múttu á ostadaga í Smáralind...mMMMmmmMmMmmmm... borðaði yfir mig af alls konar góðum ostum :Þ fór svo hjem og var að koma mér fyrir í sófanum.. þá hringdi síminn.. það var pabbi að segja mér að bílnum hans hefði verið stolið... STOLIÐ... ég meina halló!! bíllinn hans er 16 ára gömul Mazda... ekki skil ég hvað einhver er að vilja með hann...en ég fór og náði í kallinn uppí laugar (bílnum var sko stolið á meðan hann var í sundi!) og keyrði hann niðrá löggustöð þar sem hann gaf skýrslu... verð nú samt að segja að mér fannst löggan vera einstaklega áhugalaus um þetta mál.. svo fór ég bara heim og gerði mig reddý fyrir djammið :) kíkti með Ellen í bæinn... byrjuðum á glaumbar..svo var það amster... svo gaukurinn.. á gauknum hittum ég fullt af fólki sem ég þekkti.. strákarnir(buff) voru að spila.. þegar þeir voru hættir og ég hætt að dansa þá kíktum við upp og sátum með strákunum þar til við fórum öll yfir á Amster ...aftur.. nema núna var töluvert meira af fólki þar og þar á meðal ein alveg afskaplega leiðinleg stelpa... en ég hló aftur á móti mjög mikið að henni... kannski ekki fallega gert en hún var svoooooo full að það var eilla bara ekki annað hægt... eníweis.. þá fór Ellen eilla bara heim um leið og við komum yfir áamster þannig að hún missti af fullu stelpunni og öllu hinu sem var svo fyndið að ég hló bara og hló :D það er svo gaman þegar mar á sollis kvöld ;) svo þegar ég var búin að hlæja í örugglega 2 tíma þá leit ég á klukkuna sem var rúmlega 8 :/ þannig að ég dreif mig bara heim... en skemmti mér alveg svakalega vel ;) hitti skemmtilegt fólk, dansaði mikið, hló mikið og var eilla bara ekkert þunn á sunnudeginum ;) en mjög þreytt... svaf í kannski 4 tíma... á sunnudaginn... og ætlaði svo svaka snemma að lúlla í gær... en festist yfir James Bond ;) var farin uppí rúm um miðnætti.... og var svvooooooo þreytt þegar ég vaknaði í morgun :( langði bara að lúlla meira... en druslaði mér frammúr og dreif mig í vinnuna :) var að taka eftir því að það er búið að taka mig þrjá tíma að skrifa þetta blogg... er nebbla bara ein í vinnunni og búið að vera solldið mikið að gera :/ ætti kannski bara að hætta blogga og einbeita mér að vinnunni :/ bæjó í bili...

föstudagur, október 01, 2004

EGOEGOEGOEGOEGO!!!

ég sem hélt að ég hefði misst af þeim forgúd þegar ég ákvað að fara ekki norður um síðustu helgi!! en nei.. helduru að þeir séu ekki bara að spila á Nasa um helgina... þannig að ég var nú bara að pæla í að drífa mig þangað... annars er planið um helgina ekki komið á hreint... veit bara að ég ætla á EGO :)

Annars hef ég voða litlu frá að segja... kíkti niðrá Mánabrekku um daginn.. mikið var gaman að sjá krakkana mína aftur :D og ég verð að segja að ég komast að því að ég sakna stelpnanna miklu meira en ég gerði mér grein fyrir :/ ég verð þá bara að bæta úr því með að hitta þær oftar ;) það er nú ekki svo erfitt... en ég get líka sagt að ég sé ekki eftir því að hafa hætt... mórallinn þarna niðurfrá er sko ekki uppá marga fiska.... sem er náttla mjög leiðinlegt og ég veit að það er ekki gaman né auðvelt að standa í því að vinna í svona umhverfi alla daga... þannig að ég er bara fegin að hafa hætt :)

ætla halda áfram að vinna... bloggameiraseinna...

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter