Mánudagur...
blggerinn eitthvað bilaður í gær... kannski virkar þetta núna...
sem þýðir að enn ein helgin er liðin... sem þýðir að það styttist í jólin! ég áttaði mig nebbla á því í gær að það eru bara 4 vikur til jóla!!!! og ég á eftir að gera nánast allt... nema baka ;) er búin að því... en það er nú alveg nóg eftir... en það hlýtur að bjargast.. það gerir það yfirleitt alltaf ;) en mér sýnist að ég verði að vinna mjög mikið í desember mánuði.. opnunartíminn breytist eitthvað smá og svo á að vera opið tvo laugardaga í des, reyndar ræð ég því alveg hvort ég vinn eða ekki..en það er bara ágætt að fá smá meiri pening og það er ekki opið nema í 4 tíma... þannig að mér er í raun engin vorkunn...
Helgin var fín.... fór á smá vinnudæmi strax eftir vinnu á föstudaginn... átti von á að það yrði ekkert neitt voða gaman... en þetta var bara helling stuð.. hellt í mann látlaust þar til allt áfengið var bara búið... og við erum að tala um að það voru þarna í kringum 500 manns, þetta byrjaði klukkan 5 og mar gat drukkið eins og mar vildi... það var bjór, hvítt, rautt og gos... og það var ekki fyrr en klukkan níu sem fría áfengið var búið... þið getið rétt ímyndað ykkur magnið af áfengi! svo var haldið út að borða... og svo á stuðmenn á Players ;) ég fór sem sagt á sveitaball... að mér fannst.. lengst útí buska.. laugardagurinn var bara hinn rólegasti glápti helling á friends.. ætlaði bara vera heima og hafa það kósý.. en ákvað um miðnætti að kíkja á pöbbarölt með Kötu og Heiðbjörku ;) það var bara svona aldeilis fínt :) fórum á fullt af stöðum sem ég hef annaðhvort aldrei komið inná eða fer eilla aldrei inná... hitti fólk sem ég hef ekki hitt í langan tíma og skemmti mér bara virkilega vel :) Takk Kata og Heiðbjörk... þegar klukkan var orðin eitthvað um 5 fór mín á hesthúsið og hitti þar meira fólk sem er reyndar ekki svo langt síðan ég hitti en samt mjög gaman að sitja og spjalla :) var bara komin heim á skikkanlegum tíma og komin á fætur um 12 á sunnudeginum ;) Tók alveg ekta leti dag... fór varla framúr sófanum... nema bara til að skipta um spólu ;) alveg eins og þetta á að vera :)



