föstudagur, desember 31, 2004

Vúhúúú...

hef ekki mikið að segja... gamlárskvöld að hefjast.. og ég er ekki búin að ákveða markmið kvöldsins.. en ætla skemmta mér vel og knúsa alla sem mér þykir vænt um :) þá er ekkert eftir nema
GLEÐILEGT ÁR!!!



og takk fyrir það gamla ;)


Góða skemmtun í kvöld....

þriðjudagur, desember 28, 2004

eitt frá ;)

já þá er mar búin að fara í áramótaklippinguna ;) sem þýðir að það er einu færra að huxa um þegar kemur að áramótunum... núna þarf ég bara að ákveða hvar í ósköpunum ég ætla vera þangað til mar kíkir í bæinn :/ en eitt er víst að sama hvar ég verð ætla ég að skemmta mér heil ósköp og er að melta það með mér að setja mér einhversskonar markmið fyrir þetta kvöld... hmm... hvað það ætti að vera er ég ekki viss um... einhverjar hugmyndir...???

mánudagur, desember 27, 2004

Jólin...

þá eru jólin búin... búin að hafa það fínt :) jólin alltaf fínn afslöppunartími.. búin að borða fullt... horfa aðeins á sjónbardið.. borða aðeins meira og horfa svo aðeins meir á sjónbardið... fór í þessi venjulegu familíuboð... svo var það toppurinn í gær þegar ég var á náttfötunum allan daginn :) lá ýmist uppí sófa.. uppí rúmi eða stóð inní eldhúsið að búa mér til eitthvað að borða ;) klæddi mig reyndar í smá föt þega rég fór yfir til mömmu að glápa með þeim á LOTR.. smá sona jólahefð.. fjölskyldu bíó :) að er nú samt ekki laust við að mar sé smá þreyttur í dag eftir allt átið og liggjið..

En þessi vika verður fljót að líða... á morgun er það klipping fyrir hádegi :) þá er dagurinn eilla búin þegar ég kem í vinnuna... svo er bara miðvikudagur sem er alltaf skemmtilegur... og þá er líka vikan eilla búin þar sem ég er í fríi á föstudaginn ;) þetta þýðir líka að það eru bara 4 dagar til áramóta... sem þýðir að mar ætti kannski að fara pæla í alvarlega í því hvað í and****** mar á að gera af sér þá... hef nú samt engar stórkostlegar áhyggjur af þessu.. verð væntanlega í mat hjá mömmu.. svo verður eitthvað skotið upp.. svo get ég valið um að fara til Katrínar.. eða bara verið heima þar til mar heldur í bæinn... ef ég vel seinni kostinn þá get ég að sjálfsögðu boðið einhverju fólki að vera með mér.. en ef ég vel fyrri kostinn þá gæti ég sloppið ansi vel við leigubíla kostnað... hmm... þarf eitthvað að pæla í þessu.. ef einhver þarna úti er með hugmynd um hvað er hægt að gera af sér þá er bara að hafa samband :)

föstudagur, desember 24, 2004

jóljóljóljól...

jæja börnin mín þá er komið að því.... Jólin eftir 10 tíma... ég ætlaði að vera búin að blogga fullt.. bara búið að vera brjálað að gera í vinnunni enginn tími fyrir blogg :( og núna man ég ekki eftir öllu sem ég ætlaði að blogga um :/ segi bara


GLEÐILEG JÓL :)

mánudagur, desember 13, 2004

Mr. Pursjút...

já.. í dag er kominn mánudagur og ég er komin eftur í vinnuna :) gerði ekki mikið þessa helgina.. var eilla bara í því að spila trivial.. kíkti til Katrínar aftur á laugardaginn og spilaði meira trivial :) skrýtið hvað ég gleymi því alltaf hvað mér finnst gaman að spila! verst að ég er ekkert neitt voða klár í að spila :/ en ég set það ekki fyrir mig... sem sagt spilaði á föstudagskvöldið... og aftur á laugardagskvöldið... kíkti í búðir með mömmu á sunnudaginn... keypti tvær og hálf jólagjöf.. og kláraði að skrifa öll jólakortin!! bara eftir að senda þau... þá er eilla allt komið fyrir jólin... bara eftir að kaupa nokkrar jólagjafir ;) hef ekki miklar áhyggjur af því... jólin koma hvort sem ég er búin að öllu eða ekki.. og líka miklu meira gaman að pæla í áramótunum!!! endilega nýtið ykkur kommenta systemið og segið mér hvað þið ætlið að gera á gamlárs....

laugardagur, desember 11, 2004

vinna...vinna...

já þá er mín mætt í vinnuna á laugardegin í fyrsta skiptið í 3 ár!!!! jahá.. ég hef ekki verið í vinnu þar sem mar þarf að vinna um helgar í 3 ár!! ... mér finnst ég auðvitað vera alveg svakalega dugleg að hafa vaknað og mætt í vinnu vel fyrir klukkan tíu í morgun :) er reyndar bara vinna í 4 tíma þannig að þetta er kannski ekki neitt voða mikið mál... en ég er samt dugleg ;)

Kíkti í gærkvöldi til Katrínar Rósar... aaaaaaallltof langt síðan ég hitti hana ! við spiluðum trivial og spjölluðum :) og af þeim 4 sem voru að spila þá var ég í öðru sæti ;) var komin heim eitthvað um hálf þrjú.. og var þar af leiðandi solldið þreytt þegar ég vaknaði.. en ég legg mig bara þegar ég kem heim :) annars er ekki mikið að frétta.... ekkert planað fyrir kvöldið.. annaðhvort er það bara vídjógláp eða mar kíki bara út á ball... læt það ráðast :) bæ í bili

miðvikudagur, desember 08, 2004

MmMmMmMmmm....

já... mmmm segi ég :) mikið eru piparkökur góðar!! kannski mar ætti að fara í bónus kaupa sér piparkökur og skreyta þér með glassúr eins og mar gerði í gamla daga??? kannski ætti mar bara að búa sér til piparkökuhús!!!

mánudagur, desember 06, 2004

Hasssspérur.... again...

Ég er búin að komast að því að ég er alls ekki í nógu góðri æfingu!! ónei.. er með svooo mikið af hassssperum í dag :( það er vont að standa upp, vont að hreyfa hendurnar og tölum ekki um að þurfa lyfta einhverju!!!! verð nú samt að segja að þær eru alveg þess virði ;) og þó að þær væru fleiri og verri... myndi ég samt vera bara sátt :)

en nóg um það... helgin var bara hin fínasta.. kíkti til Sprellenar á föstudagskvöldið og við spjölluðum um allt mögulegt.. það var nú samt óneitanlega eitt umræðuefni sem mestur tími fór í :) en það var bara kósý og notalegt og alltof langt síðan við höfuð setið bara tvær og spjallað.. laugardagurinn var tekin snemma og ég var komin útí búð með múttu og litlu sys fyrir ellefu! keypti eina jólagjöf ;) dugleg.... svo var farið í smá kaffi (ég drakk náttla bara vatn) til múttu þar sem pabbi kom við og ég klippti hann aðeins.. gera kallinn fínan fyrir kvöldið ;) svo fór ég heim að gera mig fína... gerði reyndar heiðarlega tilraun til að leggja mig það gekk ekki betur en svo að ég var komin fram eftir að hafa legið klukkutíma uppí rúmmi að velta fyrir mér hvort mar ætti nokkuð að vera fara á sálina?? komst að því að það væri kannski ekkert sniðugt.. nennti ekki að vera í troðningi og það væri líka bara miklu skemmtilegra að fara á Buffið ;)

kvöldið byrjaði á því að ég fór í mat í boði vinnunnar.. fékk mikið og gott að borða og auðvitað var allt fljótandi í áfengi :) ekki mjög leiðinlegt... svo fór ég á sveitaball í kópavogi.. entist reyndar frekar stutt þar.. Ellen kom..við dönsuðum pínu.. drukkum pínu og fórum svo á gaukinn
þar tók við meiri drykkja... miklu meiri dans og smá pool þar sem það staðfestist að ég er bara alls ekkert góð í þeim leik! en finnst gaman að spila og það er fyrir öllu ;) þegar það var búið að taka okkur (mig og Ellen... við vorum sko sama í liði á móti dansfélaganum okkar) í r****** tvisvar í pool þá var haldið á dansgólfið og þar vorum við og dönsuðum eins og okkur einum er lagið ;) alveg þangað til buffið sagðist ætla í pásu þá fórum við upp og sátum þar að drykkju til klukkan eitthvað... tímaskynið var ekki alveg í lagi hjá mér þetta kvöld... hitti fullt af fólki sem er alltaf gaman að hitta og hitti líka nokkur fólk sem ég sé alls ekki oft en er alveg jafn gaman að hitta :) svo endaði kvöldið..eða nóttin með smá gítarspili og söng í kjallaranum á amster.. svo var haldið "heim" á leið og farið í rúmmið ;)

Fín helgi... er reyndar frekar þreytt í dag þar sem það var lítið um svefn... held að ég hafi náð í kringum 10 tímum yfir helgina... en ég lifi það af og það gildir bara það sama og um hel***** hassssspérurnar.. alveg þess virði...

miðvikudagur, desember 01, 2004

Argiparg!!!

Mikið er bloggerinn leiðinlegur þessa dagana!! en við ætlum ekki að pirrast yfir því.. ónei.. ég var að frétta í dag að þetta dæmi sem er um næstu helgi í vinnunni er bara alls ekki jólahlaðborð.. ekki beint jólaglögg.. heldur bara borðhald með svaka matseðli og fljótandi veigum eins og mar getur í sig látið ;) það er eitthvað fyrir Bengtu :) og ekki skemmir fyrir að Sálin er á nasa og Buffið á gauknum þetta sama kvöld!! og mér sýnist bara allt stefna í að mar kíki á Sálina og endi svo á gauknum... nott tú sjabbí för Bengta ;)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter