fimmtudagur, janúar 27, 2005

þetta er allt að koma...

dagurinn í dag er jaaaa.... hvað skal segja.. ef ég lít á björtu hliðina þá er þessi dagur mun betri en sá í gær... ef ég lít á ekki svo björtu hliðina þá gæti þessi dagur verið alveg jafn leiðinlegur og jafnvel leiðinlegri en gærdagurinn... en þar sem mér finnst ekki mjög gaman að vera pirraða Bengta þá ætla ég að líta á björtu hliðina.. ég fékk til dæmis að sofa alveg þangað til að vekjaraklukkan mín vakti mig.. vaknaði og fór í sturtu, sem er alltaf góð leið til að byrja daginn.. svo ætla ég að skreppa aðeins eftir hádegi í dag og vesenast og reyna að koma við niðrá Mánabrekku :) þá hlítur þetta pirr að hverfa :) annars var ég að pæla í helginni... mér er sem sagt boðið í partý á laugardaginn... sem ég er að huxa um að fara í... svo finnst mér voðalega mikið eins og ég hafi ætlað að gera eitthvað annað líka en ég get bara ómögulega munað hvað það var!! kannski er þetta bara í hausnum á mér en ef ekki þá þætti mér vænt um ef einhver myndi minna mig á hvað það er....

miðvikudagur, janúar 26, 2005

bara tveir og hálfur eftir...

já sumar vikur eru ekkert skemmtilegar :( og eru þar af leiðandi lengi að líða... eins og þið (sem lesið bloggið mitt ) vitið var mánudagurinn einn af þessum bleh dögum... svo kom þriðjudagur sem var svo sem ágætur nema ég sat á fundi í rúman klukkutíma og það var svooo þungt loft þar inni að mér var bara farið að líða ílla... en dagurinn svo sem fljótur að líða og allt það... nema ég var eitthvað pirruð og allt fór í taugarnar á mér :/ þannig að ég fór bara heim eftir vinnu, setti í þvottavél og eldaði mér kjúklingapasta sem var smá sárabót fyrir ekki skemmtilegan dag... nema hvað að ég bara steinsofna eftir matinn... svo í morgun var ég vakin með þessu skemmtilega símtali um að samstarfsmaður minn sé lasinn... eða annaðhvort af börnunum hans.. var ekki alveg að fylgjast með... og ég beðin um að mæta fyrr... :( ég hefði alveg þegið að fá að sofa og vakna bara við vekjaraklukkuna... en nei og auðvitað segi ég bara já... og druslast frammúr og er mætt 20 mín seinna. Núna er ég búin að vera hérna í rúma tvo tíma og deildarstjórinn minn (sú sem hringdi í mig) er ekki einu sinni búin að koma og segja takk... og ég er bara springa úr pirri ! svo ætlaði ég að skreppa í dag aðeins að vesenast en nei... það verður ekkert úr því í dag... argg... er svo pirruð... ætal ekki að blogga meir fyrr en ég hef eitthvað jákvætt að segja...

mánudagur, janúar 24, 2005

bleh

já mánudagar eru stundum svona bleh dagar... get ekki sagt annað :/

föstudagur, janúar 21, 2005

greinilega ekki mikið nörd ;)

I am nerdier than 7% of all people. Are you nerdier? Click here to find out!

fimmtudagur, janúar 20, 2005

þá er bara komið að því...

bara einn dagur enn og þá er komin helgi aftur... skrýtið hvað sumar vikur líða alveg svakalega hratt en aðrar eru þannig að manni líður eins og mar hafi verið að vinna stanslaust í mánuð loksins þegar það kemur helgi... þessi vika er enn sem komið er í fyrri flokknum... helgin er óráðin enn :/ en það eru þessir venjulegu valkostir.. djamm, vera heima.. kannski mar skelli sér í bláa lónið... en eitt er alveg ákveðið... ég ætla taka smá dekur og fá mér eitthvað alveg svakalega gott að borða ;) eins og þið sjáið.. hefur ekkert skemmtilegt eða áhugavert gerst í vikunni þannig að ég hef ekki frá neinu að segja... en það er nú samt alveg lágmark að blogga einu sinni í viku...

föstudagur, janúar 14, 2005

já...

þá er kominn föstudagur og helgin leggst bara vel í mann :) það er í boði þessa helgina að vera bara rólegur og slappa af, fara á djammið... eða kannski stunda einhversskonar útiveru... kannski mar bara geri sittlítið afhverju... annars er vikan búin að vera frekar erfið og leiðinleg :( húsið (í vinnunni) ekki reddý ennþá þannig að það er endalaust verið að saga og smíða og gera og hafa læti í kringum mann :/ frekar pirrandi... svo eru kúnnarnir ekki alveg sáttir... og það virðist ekkert ætla breytast.. þannig að ég er ennþá í því að hlusta á nöldrandi fólk sem virðist ekki skilja að ég er ekki alvaldur þegar kemur að breytingum og byggingu þessa húss.... en það eru auðvitað góðir hlutir í þessu öllu :) ég er eflaust búin að léttast um nokkur kíló vegna þess að fyrstu vikuna var ekkert mötuneyti hérna þannig að mar borðaði mjöög lítið... svo er þetta hús frekar stórt og allar vegalengdir töluverðar og mar er solldið í því að skrölta hér upp og niður stiga.. þannig að eftir 2 vikur í viðbót verð ég komin með alveg svakalega flottan rass ;) og ef þetta heldur áfram með þessum endalausu hlaupum um allt hús verð ég eflaust orðin svaka pía í sumar ;) svo er það náttla meira djamm í vinnunni.. þessa helgina er viðskiptamanna boð... og það verður eflaust eitthvað svaka flott.. það er verið að byggja rosa svið inní vöruhúsi og mar hefur heyrt því fleygt að stuðmenn, greifarnir og einhver hluti sinfóníunni verði þarna að spila... kannski mar kíki á það ?? sé til.. ekkert gaman að fara á sollis geim og svo bara heim að sofa :/ sé til...

miðvikudagur, janúar 12, 2005

:)

já ég get ekki annað en bara brosað :) það er eitt sem er sniðugt við að vera með svona blogg.. þetta er að vissu leyti eins og dagbók.. ég ákvað að kíkja aðeins á hvað ég var að gera fyrir ári síðan.. og komst að því að lífið hefur ekki gert neitt nema batnað :) fyrir ári síðan var ég frekar langt niðri og fannst voða lítið gaman að vera til... en í dag er lífið gott og bara gaman að vera til :) er í fínni vinnu, á góða vini og hef það bara fínt ;)

mánudagur, janúar 10, 2005

Geirmundur !?!?!!!

já þá er enn ein helgin af djammi og vitleysu að baki :) aldrei þessu vant kíkti ég út bæði föstud. og lau... svona er mar duglegur :) skellti mér með Grímu í einn bjór á föstudagskvöldið sem endaði með svaka fullri Bengtu sem var að koma heim til sín rúmlega 7 á laugardagsmorguninn... kvöldið var bara hið besta og ég skemmti mér bara mjög vel... fyrir utan það þegar að það kom einn 18 ára og var eitthvað að spjalla við mig sem var bara fínt þangað ti lað hann sagði mér að honum hefði alltaf langað ti lað vera með "svona eldri konu"!!! ég spurði hann hvað hann héldi eiginlega að ég væri gömul.. hann sagði að það skipti kannski ekki öllu.. ég væri eldri en hann og gæti eflaust kennt honum ýmislegt sem hann ekki kynni.. þrátt fyrir að það sé eflaust rétt þá ákvað ég að ekki fara útí þá vitleysu að dúndra einn 18 ára...

En þar sem ég er nú ágætis æfingu þegar það kemur að djammi þá var mín komin á fætur og út að stússast rétt um hádegi á laugardag :) og mætt aftur í djamm gallann klukkan fimm og farin af stað í kokteilboð.. sem ég er alveg búin að ákveða að sé bara fínt orð yfir fyllerí!! fólk er kannski mjög dannað til að byrja með en svo eftir smá stund þá eru bara allir orðnir frekar drukknir og farnir að láta eins og bjánar... þannig að ég fór þangað þar sem mér finnst ekki leiðinlegt að vera full og láta eins og bjáni ;) eftir að hafa drukkið nokkra bjóra í kokteilboðinu var haldið af stað í mat á fridays... sem var bara nokkuð góður.. og auðvitað drukkið aðeins meira, fékk mér meira að segja frosnar margarítu...mMmMM... eftir át og drykkju var haldið á players.. þetta fólk sem er að vinna með mér er greinilega haldið einhversskonar players fíkn :/ en það er annað mál... players er svo sem ágætisstaður en Geirmundur Valtýrs var að spila !!
ég var nú ekki alveg nógu ánægð með það en viti menn það var bara svona líka gaman að ég bara dansaði heil ósköp og skemmti mér bara svaka vel :) en þegar mér fannst nóg komið af Geirmundi þá hélt ég af stað í bæinn og hitti þar Ellen og Láru.. þær voru eitthvað að pæla í að fara á gaukinn en ég var nú ekki alveg á því þar sem þar var eilla bara solldill félagsstöðva fílingur... sem ég er vaxin uppúr... þá var bara stefnan tekin á skrifstofuna (Amster) þar sem ég hitti fullt af skemmtilegu fólki og nokkur fólk sem voru ekki alveg jafn skemmtileg :/ en þegar klukkan var langt gengin í 4 var ég farin að íhuga það alvarlega að láta mig hverfa.. en einhvernvegin var klukkan orðin 7 þegar ég loksins fór... það kannski tengist eitthvað skemmtilega fólkinu sem ég hitti :) tók svo taxa samfó grameðlustráknum og fór heim að lúlla :)

Sunnudagur fór voða mikið í að sofa bara var ekki komin á fætur fyrr en um 4... og tók þá aðeins til, fór í sturtu...sem var svoooo gott :) fékk mér að borða og glápti svo á imbann það sem eftir lifði kvölds... helgin voða fín og alltaf er ég jafn þakklát fyrir að eiga svona mikið af góðum vinum...

föstudagur, janúar 07, 2005

blehh

já blehh segi ég... það er búið að vera solldið mikið um að vera í vinnunni :/ sem er kannski gott þá leiðist manni ekki á meðan.. en ég verð samt að segja að sumarbreytingar eru ekki endilega til góðs... fyrir ykkur sem ekki vitið þá var vinnan mín að flytja.. stórt og flott hús.. og auðvitað eru kostir við að allt samskipa batteríið sé komið undir eitt þak... en.. EN þegar að húsið er bara alls ekki tilbúið þá getur verið solldið erfitt að vinna vinnuna sína :( og ég verð að segja.. þó að ég sé búin að reyna vera mjög jákvæð útaf þessu öllu þá eru nú samt takmörk fyrir öllu... það eitt að vera vinna í húsi þar sem er endalaust verið að bora, saga, negla, logsjóða og guð má vita hvað er nóg til að mar verði pínu pirraður.. og ekki hjálpar til að viðskiptavinir þessa fyrirtækis eiga greinilega frekar erfitt með að sætta sig við þessar breytingar.. og það fæ ég að heyra.. og þar sem ég hafði nákvæmlega ekkert um þetta að segja og er kannski alveg jafn ósátt við þetta allt þá nenni ég bara ekki að hlusta á þetta væl !! en nóg um það.. það er auðvitað ljós punktur í þessu öllu.. þegar fólk eða fyrirtæki eru að flytja þá er auðvitað haldið innflutningsboð ;) og það er núna á morgun :) en jæja... nóg af bloggi í bili ætla fara borða :)

mánudagur, janúar 03, 2005

Nýtt ár...

já þá er komið nýtt ár.. og meira segja liðnir tveir og hálfur dagur af því... þessir tveir dagar voru nýttir vel... sá fyrsti fór í að vera á náttsloppnum allan daginn og borða fullt :) dagur tvö var svipaður nema ég var frekar slöpp og svaf eilla bara allan daginn.. kíkti aðeisn til mömmu í fjölskylduboð en var komin heim eftir tvo tíma og var farin að sofa klukkan 18... vaknaði svo í morgun og ákvað að druslast í vinnuna og fara þá bara heim ef ég yrði voða slöpp.. en núna er komið hádegi og ég hef það bar fínt :) held nú samt að ég fara bara beint heim að sofa eftir vinnu :) hef svo sem ekkert merkilegt að segja langaði bara að láta vita að ég væri á lífi eftir áramóta djammið sem var btw mjög skemmtilegt... Ellen reyndar gisti ekki eins og hún ætlaði og ég lúllaði bara ein :( á fyrstu nótt þessa árs... sem ég var reyndar þakklát fyrir þegar ég vaknaði um morgunin :)

Verð víst að halda áfram að vinna.. segi ykkur meira frá gamlárs seinna...

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter