þriðjudagur, febrúar 22, 2005

bleh.. og aftur bleh...

já eins og ég hef sagt áður eru sumir dagar bara svona bleh dagar :/ og síðustu dagar hafa verið voða mikið þannig hjá mér.. kannski er það bar þokan sem hefur verið síðan á sunnudaginn... en hver sem ástæðan er þá hlýtur þetta að fara að lagast :)
Helgin var fín... fór út að borða og glápti á vídjó á föstudaginn og svo var það þorrablót á laugardaginn.. svaka stuð.. dansaði fullt við fullt af fólki sem ég þekki ekkert voða mikið.. og borðaði mat sem mér finnst ekkert svakalega góður... fékk mér auðvitað brennivín og hákarl ;) en var nú samt voða stillt stelpa og var komin heim uppúr 3...

svo kom mánudagurinn og fór án þess að nokkuð merkilegt gerðist, ég reyndar fór til læknis en það var það eina fyrir utan að vinna sem ég gerði þann daginn... í dag er ég búin að vera á fundum í nánast allan dag.. finnst það ekki mjög gaman :/ byrjaði með því að ég þurfti að mæta klukkan 8 til að fara á fund, svo var næsti klukkan 11.. svo kom smá pása til að fá sér að borða og sollis þá var næsti fundur klukkan 14 og ég var bara að koma af honum... held að ég sé alveg laus við þetta fundastand á morgun... en veit að ég er svo að fara á einn fund á fimmtudaginn en hann ætti bara að vera stuttur :) annars er mjög lítið að frétta af mér... allt við það sama... vinna, borða og sofa.. en ég bíð ennþá eftir að einhver reyni allavegana að geta hvað SU-listinn er ???

föstudagur, febrúar 18, 2005

flöskudagur!!

já enn og aftur er kominn flöskudagur :) og í kvöld er planið að kúra með Ellen fyrir framan vídjó og borða fullt af nammi og hafa það svaka kósý ;) á morgun var ég svo að huxa um að fara í kringluna og reyna finna mér einhver föt.. afleiðingarnar af öllu labbinu að koma í ljós... fötin hætt að passa :/ og Ellen ætlar að finna sér eitthvað að til að vera í á ammælinu... svo er það bara afslöppun þangað til Þorrablótið byrjar, hafði hugsa mér að drekka áfengi, borða mat og hafa gaman þegar ég kem þangað... hef í rauninni ekkert að segja er bara eyða tíma á meðan ég bíð eftir blessaða SU-listanum.. og ef einhver veit hvað það er má sá hinn sami hafa samband og ég mun veita vegaleg verðlaun ;)

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

bjakk...

já núna er ég óneitanlega fegin að vera ekki að vinna á stað þar sem mar þarf að fara út!! ógislegt veður úti... ég þurfti að skjótast í bankann að kaupa peninga og þegar ég kom til baka lenti ég í blindbyl!!! það tekur um það bil 2 mínútur að hlaupa úr bílnum og inn... en ég var eins og snjókall þegar ég kom inná skrifstofu.. og núna er peysan mín öll blaut :( og mér er kalt :( langar eilla bara að vera heima undir sæng og glápa á imbann... gera það þegar ég er búin að vinna... og ætla fá mér eitthvað ógislega gott að borða líka :) hef annars ekkert að segja vildi bara kvarta yfir veðrinu...

mánudagur, febrúar 14, 2005

enn ein helgin komin og farin...

jæja... þá er aftur kominn mánudagur.. þessi helgin fór í að gera EKKERT!! já ekkert... ég horfði á sjónvarpið... borðaði , glápti meira á sjónvarpið.. kíkti í heimsókn til mömmu.. lagði mig og kíkti svo í heimsókn til Sylvíu og glápti á sjónvarpið þar :) svo fór sunnudagurinn í að lúlla út... taka aðeisn til og svo meira af engu :) afslöppunar helgin mikla... sem er ágætt að taka svona af og til :) svo er mar víst að fara á þorrablót um næstu helgi og svo er ammæli helgina eftir það... þannig að það er nóg að gera..

þriðjudagur, febrúar 08, 2005

komin aftur...

já er komin aftur eftir stutta bloggpásu... held bara með þeim styttri sem ég hef farið í... en svo ég haldi áfram að segja ykkur hvað var notalegt að far í bústað...

við komum þarna uppeftir eitthvað um níu á föstudagskveldið og byrjuðum á að láta renna í pottinn, opna áfegni og taka upp spilin ;) eftir smá spil og smá drykkju var farið í pottinn og starað á stjörnurnar... sem voru bara fallegar!! það var svoooo stjörnubjart að ég man bara ekki eftir að hafa séð annað eins... svo var bara farið snemma að sofa...
á laugardeginum var ég í krem baði... tók algjöran stelpupakka og bar á mig öll þau krem sem ég fann, allskonar maska og svo var auðvitað tekið lit og plokk... eftir það var farið í að elda... fylltar kjúllabringur :Þ og byrjað að drekka... verð nú samt að segja að þessar ferðir okkar hafa aldrei verið jafn rólegar og þessi... ekki hjá mér allavegana.. ég tók með mér 3 hvítvín og kippu af bjór og kom með til baka eina og 3/4 hvítvín og 4 bjóra ! sem er náttla engin frammistaða... en þá verður bara tekið betur á því næst þegar ég djamma ;)

eftir smá...

Það verður bara komin önnur helgi eftir smá stund... en sumarbústaða ferðin var bara voða fín.. afslöppun, krem, matur, vín, góð bók og skemmtilegur félagsskapur ;) getur eilla ekki klikkað.. arg get ekki bloggað meir í bili... meira seinna..

föstudagur, febrúar 04, 2005

loksins loksins...

þá er loksins komið að hinni "árlegu" sumarbústaðarferð hjá okkur stelpunum (sem voru að vinna með mér á Mánabrekku) jeij.. held að það sé komin um það bil hálft ár síðan við pöntuðum bústaðinn.. :) þannig að mar er búinn að bíða solldið lengi.. er reyndar ekki orðin alveg jafn hress og ég vildi :/ þannig að mar tekur því bara rólega.. og hvar er betra að slappa af en uppí bústað með fullt af mat, spilum, bók að lesa og skemmtilegu fólki... hef annars ekkert að segja... vildi bara láta ykkur vita hvað ég kem til með að hafa það næs um helgina :)

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

buhu :(

ég er lasin og á svoooo bátt :( fór ekki að vinna í gær.. en ákvað í morgun að fara að vinna... ekki gáfulegasta hugmynd sem ég hef fengið.... og lítur út fyrir að ég fari bara heim í hádeginu... ég á svooo mikið bátt... :(

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter