fimmtudagur, mars 31, 2005

buhu :(

já dagurinn er ekki búinn að vera góður hingað til.. og ég sé ekki beint fram á að hann batni mikið nema kannski þegar ég er búin að vinna... en núna líður mér bara þannig að mig langar að fara gráta :( fara heim og liggja uppí sófa og væla... en það gengur víst ekki..

Ég veit að ég á ennþá eftir að segja frá ammælisdeginum og hvað stelpurnar voru mikil krútt.. en er bara engan vegin í skapi til þess núna...

föstudagur, mars 25, 2005

bara nokkrir klukkutímar eftir....

Og þá verð ég orðin fjórðungsaldar gömul... sem er bara ágætis afrek ;) og ég held að það sé bara miklu skemmtilegra að vera 25 heldur en 24.. þó að það sé vissulega búið að vera gaman..

Annars er ég að fara í nokkurskonar óvissuferð á morgun... stelpurnar held ég, veit að það er allavegana Ellen, eru búnar að bóka mig frá 12:30 á morgun og það eina sem ég veit er að ég á að vera búin að fara í sturtu og sollis þegar þær koma og svo að við endum á gauknum um kvöldið... þannig að ef þið sjáið mig einhversstaðar ofurölvi eða berrassaða á hlaupum þá ber ég enga ábyrgð á því ! Held nú samt að það verði svaka gaman... og langar bara að .akka þeim fyrirfram fyrir æðislegan dag ;) gaman að eiga vini sem hafa miklar áhyggjur af því ég skemmti mér alveg örugglega vel á ammælisdaginn minn :)

Fyrir utan þetta er svo sem ekkert merkilegt í fréttum... nema kannski að ég fékk nafnspjald í vinnunni um daginn... með mynd og öllu.. hef aldrei verið með sollis áður! hmm... held barasta að þetta sé allt... kemst í tölvu aftur á sunnud. eða mánud og segi ykkur þá hvernig ammælisdagurinn var ;) Svona í lokin kannski smá auglýsing... þá var ég að hugsa um að halda pínu ammælisteiti á laugardaginn 2. apr og allir velkomnir.. verðí bandi í næstu viku um það.. bæjó í bili...

fimmtudagur, mars 17, 2005

Hvað er málið??

Mér finnst eins og allir mínir bloggara vinir séu í einhverri blogglægð... kannski er það bara af því ég sit fyrir framan tölvu allan daginn og kíki af og til inná þessi blogg og í marga daga er ekki búið að bætast neitt nýtt við :( mér finnst að allir ættu að blogga að minnsta kosti einu sinni í viku! þó að það sé ekki nema bara til þess að mér leiðist ekki í vinnunni þegar ekkert er að gera...

þriðjudagur, mars 15, 2005

Hvað finnst ykkur..?

Hafiði lent í því að koma inní verslun eða bara fyrirtæki þar sem er fólkið sem ætti að vera þarna til að aðstoða þig er bara að tala í símann... og þá meina ég gemsann sinn... finnst ykkur þetta ekki dónalegt??

mánudagur, mars 14, 2005

Solldið sko..

Já það er ekki laust við að ég sé pínu drusluleg eitthvað eftir helgina... en það er samt alltí læ vegna þess að það var svo gaman hjá mér ;)

Föstudagurinn var Ædoldagur.. kom heim úr vinnunni, borðaði góðan mat :P svo kíkti Ellen til mín og við glápuðum á ædolið.. vorum bara glaðar með sigurhafan.. ekki gerðist meira merkilegt þann daginn, ekki hjá mér allavegana. Á laugardaginn vaknaði ég snemma.. eins ég geri yfirleitt.. fékk mér að borða og las fréttablaðið.. mjög næs. Svo kúrði ég uppí sófa og las bók :) mm... það var sko notalegt.. kíkti svo til Sprellenar um kvöldið þar sem var drukkið, spjallað og farið í drykkjuleiki.. svo þegar klukkan var orðin óhóflega margt þá var haldið í bæinn, beint á amsterdam þar var svona líka svka stuð.. ég dansaði bara allt kvöldið :) svo var ég bara stillt stelpa og fór heim að lúlla :) Ég verð nú samt að lýsa yfir óánægju með Gaukinn :( það er búið að breyta í 18 ára aldurstakmark... ekki það að ég hafi neitt á móti 18 ára fólki en þetta þýðir að það er líka fullt af krökkum sem eru alls ekki orðin 18! og þegar ég fer út að skemmta mér langar mig ekki að vera skemmta mér með 16 ára fólki... þannig að þetta þýðir að mar hættir bara að fara þangað :( kannski breytist þetta.. ég vona það..

Svo var Sunnudagurinn bara eins og sunnudagar eiga að vera... var komin á fætur um hádegið og lá svo uppí sófa þangað til að Ellen þurfti að komast heim til sín og ég þurfti að fara til múttu að elda læri :) þannig að ég gerði eitt góðverk í gær ;) og eftir allt djammið á laugardaginn þá er ég bara frekar drusluleg í dag :/ fer snemma að sofa í kvöld og verð orðin fín á morgun ;)

föstudagur, mars 11, 2005

Púki....

já.. ætli það sé ekki bara veðrið... eða bara að ég er svona púka stelpa :) allavegana er kominn púki í mig og ég sé framm á að ég verði að gera eitthvað í því...

þriðjudagur, mars 08, 2005

bara 17 dagar...

já nú eru bara 17 dagar þangað til að ég á ammmmæli... er ekki búin að ákveða ennþá hvað ég ætla gera... eða hvort ég geri eitthvað.. hef ekki verið mikið í því að halda uppá ammælið mitt... held að ég hafi einu sinni haldið uppá það síðan ég var 12 eða 13 ára.
Reyndar dreymdi mig í nótt að ég ætti afmæli og það voru allir að gefa mér rós og hringa.. solldið skrýtið.. en svaf mjög vel :) En að öðrum málum... helginni... ég gerði ekkert á föstudaginn... vaknaði svo hress og kát á laugardaginn klukkan 9.. og klukkan 11 var ég búin að þrífa eldhúsið mitt, setja í þvottavél, ganga frá öllum hreinum þvotti og þvo bílinn minn ;) svo klukkan 14 fór ég í Bingó með múttu.. Bingó í vinabæ ;) eitthvað sem mig hefur alltaf langað að prófa.. þetta var nú samt ekki svona venjulegt bingó.. heldur var þetta svona páskaeggjabingó.. og við mæðgur unnum 2 stykki.. reyndar vann mamma þau bæði en ég hjálpaði til með því að draga hærra spilið :) þegar bingóið var búið fór ég heim og kúrði í smá stund og fór svo og gerði mig reddí í að fara á ball..
fór svo til Láru og drakk og spjallaði þar alveg heillengi, litli bróðir komog sótti okkur og skutlaði okkur á players og kom svo og náði í mig þegar mig langaði ða fara niðrí bæ :) fínt að eiga bróðir sem er kominn með bílpróf :) kíkti á gaukinn, hitti þar Dóru sem var að skemmta sér svaka vel... bara svona eins og ég, kíkti líka á amster hitti þar Stebba tvö og fulla Berg... sat þar í smá stund og fór svo bara heim að lúlla.. fínt kvöld í alla staði... :)

Nú er það bara að far í málið og reyna ákveða hvað og hvort ég geri eitthvað á ammælinu.. allar hugmyndir vel þvegnar :)

föstudagur, mars 04, 2005

Ég spyr ??

og þið sem svarið megið alveg endilega vera hreinskilin.. þeir sem þekkja mig... er ég þessi leiðinlega nöldur týpa ??? er farin að upplifa sjálfa mig solldið sollis og vil alls ekki vera sú manneskja :/ þá er ég að tala um hvort að ég nöldri í fólki... úff hvað ég vil ekki vera sú manneskja....

miðvikudagur, mars 02, 2005

..

ég var að kíkja á dagskránna á gauknum... og hvað haldiði!! Buffið er að spila þegar ég á ammæli ;)

Flardenblarden....

sæl og blessuð... hef svo sem ekki mikið að segja.. bara langt síðan ég hef bloggað.. er sem sagt á lífi og hef það bara fínt :)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter