laugardagur, apríl 30, 2005

Mallorca here i come...

eða eftir 70 og eitthvað daga ;) ójá haldiði að mar sé ekki bara búin að panta sér far til Barcelona og þaðan til Mallorca í sumar!!
Vill svo heppilega til að ég á eina góða vinkonu sem ákvað (mér til mikillar hamingju, þó að ég mundi auðvitað miklu frekar hafa hana hérna á klakanum) að flytja til Spánar :) eftir að hafa búið mörg ár í Danmörku.. og það tók sko Bengtu ekki langan tíma að panta sér far og bóka gistingu ;) og ekki skemmir það fyrir að farið í heild sinni kemur til með að kosta mig um það bil 16 þús... sem þýðir að ég get eytt þeimur meira af peningum í útlandinu í allskonar vitleysu :D er strax búin að afla mér upplýsinga um hvað breezer kostar þar í landi og er búin að finna það út að þetta kemur út svipað og tveir fyrir einn díll.. sem er bara alls ekki slæmt ;)

En að öðrum málum.. hvað haldiði... loksins þegar Sálin ákveður að vera með ball og ég ákveð að fara á það ball.. ákveða Jet black joe að vera með ball sama kvöld !!! mér finnst þetta náttla bara dónaskapur! en mar verður að finna ásættanlega lausn á þessu máli og ég stakk upp á fara bara á bæði.. þar sem annar staðurinn af þessum tveim lokar mun fyrr en hinn.. en var þá minnt á að gaukurinn gerði þau mistök að lækka aldurstakmarkið sitt og ég hef bara mjög takmarkaðann áhuga á að vera á balli með fullt af 16 ára krökkum... en þetta er ennþá í pælingum og endanleg ákvörðun um hvað skal gera ekki tekin alveg strax. Er samt farin að hallast alltaf meir og meir að þeirri hugmynd að gera bara bæði ;)

Og já... Til hamingju með Verkalýðsdaginn á morgun ;)

miðvikudagur, apríl 27, 2005

Engar yfirlýsingar...

Af fenginni reynslu þá held ég að það sé best að vera ekki með neinar svaka yfirlýsingar um djammpásur.. alltaf þegar mar ætlar að fara slappa aðeins af þá fyllist dagatalið af hlutum sem mar bara verður að mæta á.. þannig að ég hef ákveðið að vera ekki með neinar yfirlýsingar og þá hlýtur að verða rólegt í félagslífinu í smá stund ;) Annars var ég að enda við glimmergelluna um að við stelpurnar myndum skella okkur á Sálarball 7.maí... en það er nú alveg rúm vika í það ;) þá getur mar slappað af um næstu helgi :)

föstudagur, apríl 22, 2005

Mánudagsföstudagur.....

mm... gaman að vera í fríi svona í miðri viku :D og auðvitað hellti mar í sig áfengi og lét eins og vitleysingur af engri góðri ástæðu :) blogga meir seinna...

þriðjudagur, apríl 19, 2005

Ógislega klár ;)

Já það verður sko ekki tekið af mér :) ég var sem sagt að keppa í keilu á föstudaginn.. vorum $ saman í liði.. ég, Karen, Lára Dís og Oddný.. fyrst var keppt um hvaða 10 lið komust í úrslit og auðvitað voru við eitt af þeim :) og urðum svo í 5. sæti sem mér finnst bara alls ekki slæmt.. svo var auðvitað hellt í sig og farið á ball..
og hvert haldiði.. jújú.. players.. alltaf skal það vera players þegar ég er á einhverju svona vinnudjammi.. en það venst :) og að þessu sinni var það skagfirðingaball sem þýðir að Geirmundur var að spila.. reyndar voru alveg 4 aðrar hljómsveitir of ég skemmti mér bara vel :) fór bara snemma heim var nebbla fara á námskeið um morguninn.

Laugardagurinn var dagur þynnkunnar.. vaknaði og fór á þetta námskeið ekkert alltaf hress.. svo var það bara heim og uppí sófa og svo útað borða um kvöldið, fengum voða góðan mat :) en ég var ennþá bara hálf þynnkuleg og fór bara heim að kúra yfir vídjó :) Sunnudagurinn var mjög dæmigerður.. leti og rólegheit.. alveg eins og þeir eiga að vera..

þriðjudagur, apríl 12, 2005

Farin að telja niður...

Heil og sæl.. ég var að átta mig á því að það er bara þriðjudagur og ég er strax byrjuð að telja niður í helgina :/ það er ekki nógu gott.. ætli það sé ekki bara útaf því að síðustu helgar er ég búin að skemmta mér svoooo vel :) ég er búin að segja ykkur frá ammælisdeginum.. þá á ég eftir að segja ykkur frá míni ammælisveislunni sem ég hélt helgina eftir að ég átti ammæli :)

Ég bauð stelpunum, Katrín Rós, Kötu frænku, Heiðbjörk, Hófí, Jónínu, Sylvíu, Sigrúnu og Ingunni heim.. bauð reyndar líka Jónu..hún kom ekki.. Ellen var að vinna þessa helgina, Dóra var á árshátíð og Olga.. hmm ég veit ekki hvað hún var að gera... kvöldið byrjaði frekar rólega.. obara með spjalli og dannaðri drykkju.. en endaði auðvitað með svaka hávaða.. dansi og ekki svo dannaðri drykkju.. ég fékk fullt af ammælispökkum.. átti ekki von á því og fór bara næstum því að væla :) við kíktum auðvitað í bæinn og byrjuðum á Dubliner þar sem var svaka gaman :) þegar lokaði þar fórum við yfir á amster og dönsuðum meira ;) ég var reyndar ein af þeim fyrstu til að fara heim.. samt var klukkan orðin eitthvað um 7.. duglegar stelpur ;)

Svo leið vikan tíðindalaust... bara vinna, sofa, borða og svo allt aftur daginn eftir.. síðasta föstudag var svo viðskiptamannaboð í vinnunni þar var voða gaman, þegar það kláraðasti kíktum við nokkur heim til mín og drukkum meir þangað til klukkan var orðin nógu margt til að kíkja nirðí bæ.. hópurinn skiptist reyndar í tvennt og einn helmingurinn fór á amster og hinn á Hressó.. þið getið kiskað á hvaða hóp ég var í :) allavegana.. dansaði alveg fullt og afrekaði það að verða svo drukkin að þegar ég fór heim um hálf 5 var fólk hætt að skilja hvað ég var að segja... mjöööög langt síðan ég hef afrekað það.. ekki að það sé einhverskonar takmark hjá mér!
Var hress í samræmi við það á laugardaginn þegar ég vaknaði og dagurinn fór í að liggja uppí sófa og borða :) og alltaf brosti ég útað eyrum þegar ég hugsaði til þess að ég gæti gert þetta allt aftur daginn eftir... reyndar sleppt þynnkunni og bara haft það kósý :) sem ég gerði..

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Geisp...

Já ég er nú bara solldið þreytt þessa dagana... kannski er það aldurinn ;) held samt að það sé meira útaf svefnleysi.. þarf að fara gera eitthvað í því.. annars var ég að huxa um að segja ykkur frá ammælisdeginum mínum :) loksins loksins...

það byrjaði með því að ég var vöknuð klukkan hálf átta um morguninn!! sem er bara brjálæði.. ég gafst nú samt ekki upp og lúrði uppí rúmmi til að verða tíu.. þá dreif ég mig í sturtu og fór svo með múttu í nokkrar búðir og fékk ammælisknús frá pabba :) svo koma Ellen að ná í mig rétt uppúr 12 og fór með mig heim til Olgu.. þar sem Dóra kom og með henni voru Sólrún og litla skvísan :) þær fóru reyndar fljótlega aftur og eftir voru ég, Ellen, Dóra og Olga.. við fórum á cafe paris og fengum okkur að borða.. og sátum og spjölluðum. Svo fórum við og gáfum öndunum þar sem var kúkað á Olgu... það er bara langt síðan ég hef hlegið svona mikið.. kannski meira svona jú hedd tú bí þer.
Eftir andagef og borð fórum við í keilu þar sem ég sýndi snilli mína og vann einn leik og var held ég í þriðja sæti í hinum.. ;) þá var komið að því að fá sér ís :Þ það fannst mér sko ekki leiðinlegt.. fórum svo heim til Ellenar í fordrykk... cosmo.. alltaf góður ;) þar var ég sett í prinsessustól og fékk smá dekur... eftir það (þegar stelpurnar voru búnar að skipta um föt og sollis) fór ég heim og skipti um föt á met tíma! og við héldum áfram og fórum á Vegamót að borða.. þar fékk ég ammælispakka :) sem var svaka fallegur hringur... svo fórum við heim til mín þar sem hófst mikil drykkja, spjall og töfrabrögð... héldum í bæinn frekar snemma... kannski um eitt.. fórum á gaukinn þar sem buffið lék fyrir dansi.. ég dansaði og dansaði og dansaði svo aðeins meira.. skemmti mér svaka vel og knústi alla mikið og oft :) góður dagur.. :) TAKK STELPUR...

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter