fimmtudagur, maí 26, 2005

Ótrúlegt..

Suma daga er mar ekkert að gera og að drepast úr leiðindum.. og svo ákveður mar að gera eitthvað og þá hlaðast inn hlutir sem eru að gerast og allt á sömu dagana!
ágætt dæmi um þetta.. núna um helgina er planið búið að vera heillengi að fara á vinnudjamm á laugardaginn.. en viti menn.. núna er líka vinnudæmi á föstudaginn og svo ammæli og vinnudæmi á lau.. ekki að ég sé að kvarta en væri samt ágætt ef þetta mundi dreifast aðeins meira.

En sem sagt í kvöld.. klipping ;D sem mér finnst bara mest skemmtilegt.. á morgun kíkka aðeins í þetta vinnudót og svo bara sjá til hvað verður gert.. laugardagur byrja á dekri klukkan 10:30 og ætla svo að fara fá mér hádegismat.. eitthvað voða gott.. svo kíkir mar kannski í eina eða tvær búðir.. heim að kúra og fara í sturtu og sollis, gera sig reddý fyrir djammið ;) held að stelpurnar ætli að kíkja til mín fyrir djamm og svo liggur leiðin niðrí sal þar sem verður dansað og haft gaman þangað til mar fer á ball ;)

Eins og þið sjáið ekki mikið í fréttum hjá mér..

miðvikudagur, maí 18, 2005

Sumt fólk..

er bara öðurvísi en annað..

laugardagur, maí 14, 2005

gafst upp á nr 19...

Ég ákvað að prófa gúggla mig.. þar að segja nafnið Bengta og ég gafst upp á síðu 19 og var ekki ennþá búin að finna neitt sem tengdist mér á neinn hátt :( þannig að ég ákvað að prófa Bengta María og viti menn.. þar kemur þessi síða fyrst á blaði á fyrstu síðu ;) og þá fannst mér ég einfaldlega þurfa blogga um það ;) hef annars ekki frá neinu merkilegu að segja.. fór í bíó í gær, sem þýðir að á síðustu tveim vikum er ég búin að fara oftar í bíó en á heilu ári þar á undan! eins og ég sagði... ekkert merkilegt að segja frá...

þriðjudagur, maí 10, 2005

Jæja.. búin að jafna mig..

þá er ég loksins orðin heil heilsu eftir svaka djammið á laugardaginn..
djammið byrjaði með því að Ingunn, Gunni, trausti og Kiddi komu til mínmog planið var að Dóra kæmi líka en svo ekki mikið fleiri.. Dóra kom og um það bil 15 manns í viðbót.
Ekki það að Dóra hafi komið með allt liðið.. það var nebbla bílstjóra ráðstefna hjá mikið af mínum vinnufélögum og þar á meðal var pabbi.. honum fannst það bara alveg upplagt að allir myndu kíkja í partý til mín áður en haldið væri á ball.. Það var svaka stuð heima, dansað og drukkið :) Ég lofaði mér í sauðburð (held samt að enginn muni eftir því þannig að kannski slepp ég) og ég veit ekki betur en að allir hafi farið sáttir og vel fullir ;)
Ég, Dóra, Gunni og einhver gaur sem enginn veit hver er fórum á Sálina og restin á Players en enduðu flest öll á Nasa þegar leið á nóttina. Ég skemmti mér alveg rosalega vel bæði heima og á balli.. þegar ég var orðin pínu þreytt á troðningnum á Nasa þá trítlaði ég yfir á Gaukinn þar sem Olga og Ellen voru.. ég gerði heiðarlega tilraun til að skemmta mér þar en fannst ekkert voða gaman og við fórum á amster.
Þar var hljómsveit að spila sem ég veit ekki hvað heitir en var bara alveg ágæt ;) ég allvegana dansaði fullt og skemmti mér mjög vel.. og sunnudagurinn var í stíl við fjörið kvöldið áður..
leið alls ekki vel þegar ég vaknaði og leið ennþá verr þegar ég kom fram og sá allt draslið :/
var nú samt (sem betur fer!) búin að færa allt draslið, bjórdósirnar og vínflöskurnar inní eldhús áður en ég fór út á laugardaginn þannig að það átti bara eftir að setja þær í poka og þurrka af og sollis.. en samt ógislegt!
ég snéri við um leið og ég sá allt ruslið og lagðist aftur uppí rúm.. fór svo um tvöleytið og keypti mér að borða.. komst þá að því að ég ætti kannski ekkert að vera keyra :/ þannig að ég lagðist bara aftur uppí rúm þangað til Dóra komog var að sækja bílinn sinn.. þá tók ég mig til og henti draslinu og þurrkaði af og sollis, kúrði svo til klukkan 6 :) fór þá í mat til múttu og borðaði þetta líka fína grillkjöt :)

Mánudagurinn var ekki mikið skárri.. reyndar var hann eilla verri :/ ég var svoooo þreytt að ég ætlaði aldrei að geta farið framúr rúminu en það hafðist á endanum og ég mætti á réttum tíma í vinnunni ;) og var svo eins og einn þriðji af manneskju hérna allan daginn.. en alveg þess virði.. ég skemmti mér svoo vel :D

laugardagur, maí 07, 2005

Vúhú!!

Já, þá er komið að því... eftir um það bil 7 klukkutíma byrjar fjörið ;) við ætlum að hittast heima hjá mér.. fá okkur pínu að drekka.. kannski aðeins meira en pínu og fara svo á Sálina ;) ef einhver þarna úti er að fara á djammið í kvöld eða langar á djammið í kvöld þá er bara vera í bandi ;) segi ykkur síðar frá því hvað það var svaka gaman í kvöld...

fimmtudagur, maí 05, 2005

Hverjum hefði dottið það í hug...

Ég þarf greinilega að drífa mig í heimsókn þangað...






You Belong in Rome


You're a big city girl with a small town heart

Which is why you're attracted to the romance of Rome

Strolling down picture perfect streets, cappuccino in hand

And gorgeous Italian men - could life get any better?


What City Do You Belong in? Take This Quiz :-)



Find the Love of Your Life
(and More Love Quizzes) at Your New Romance.



Sálin...

já það hefur verið ákveðið.. Sálin er málið á laugardaginn ;) við komumst að þeirri niðurstöðu síðasta sunnudag. Mar getur þá bara kíkt á gaukinn þegar mar er búin að dansa frá sér allt vit á nasa :)
Annars er mest lítið að frétta, ég er bara búin að vera stillt stelpa.. var bara heima að hafa það kósý um síðustu helgi. Í gærkvöldi glápti ég á tv og kíkti í heimsókn til Katrínar í nýja húsinu.. og fór svo bara að lúlla :) spara sig fyrir sálina sko.. hef þar af leiðandi frá engu að segja.. nema að mér finnst þessi fimmtudagsfrí yndisleg ;)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter