laugardagur, júní 25, 2005

Rigning og meiri rigning

já það er óhætt að segja að það sé búið að rigna solldið í dag.. ég veit að ég ætlaði að segja ykkur söguna frá síðustu helgi en ég bara nenni ómögulega að skrifa allt sem gerðist.. þið fáið bara stytta útgáfu...

Á fimmtudagskvöldið kíkti Dóra til mín og við skelltum okkur í bæinn.. kíktum meðal annars á Glaumbar (hef ekki komið þangað heillengi).. kíktum svo á gaukinn.. fórum á efri hæðina og snérum eiginlega bara við um leið og við komum upp stigann.. enduðum auðvitað á amster..hvar annarsstaðar. Fínt kvöld.. dansaði, spjallaði, drakk og hafði gaman ;)
Föstudagurinn fór í að liggja uppí rúmi.. vera útí sólinni og liggja meira uppí rúmi mjög fínn dagur.. fór um kvöldið í innflutningspartý hjá Katrínu og Hilmari.. mjög gaman.. fullt af góðum mat og skemmtilegu fólki :) kíkti í bæinn aðeins eftir það.. byrjaði á Nasa og kíkti smá inná amster..fór svo bara "snemma" heim. Laugardagurinn var líka mjög fínn.. alveg æðislegt veður.. fór í smá göngutúr og glápti á DVD og kíkti bara smá út um kvöldið. Var bara edrú í þetta sinn.. keyrði fólk hingað og þangað og fór svo heima að glápa :)
Á sunnudaginn fór ég uppí bústað í algjöra afslöppun.. fór 3 sinnum í heita pottin á innan við sólarhring og borðaði nóg til að endast mér út vikuna :) alveg eins og þetta á að vera...

Svo var þessi vinnuvika mjög fljót að líða.. enda bara 3 dagar hjá mér ;) og þessa helgina veit ég ekki ennþá hvað ég ætla gera...

miðvikudagur, júní 22, 2005

komin úr fríi...

já þá er mar mættur í vinnuna aftur eftir 5 daga helgi :) búin að hafa það alveg svakalega gott.. alltof mikið að gera í vinnunni..verð að segja ykkur sögu seinna..

þriðjudagur, júní 14, 2005

vúhú ;)

jább.. stefnan tekin á bíó annaðkvöld með Guðrún Sellu, svo er eikkvað verið að velta fyrir sér hvort mar eigi að kíkja út á fimmtudagskvöldið..
17. júní er svo innflutningsparteii á Sogaveginum.. Laugardagurinn er ammælisdagurinn hennar ömmu og þá er grill í garðinum þar og svo er það annaðhvort sveitaball í kópavogi, djamm með stelpunum eða bara rólegheit heima á laugardagskvöldið :)
Á sunnudeginum liggur leiðin í sumarbústað þar sem verður afslöppun og notalegheit í eina eða tvær nætur(er sko í fríi á mánudag og þriðjudag).. er ekki alveg ákveðið ennþá. Svona er planið mitt frá og með morgundeginum ;) svona svo þið getið fylgst með...nóg að gera og ekkert nema skemmtilegt :) Reyndar var lítill fugl að segja mér að dúndurfréttir eru að spila á gauknum á miðvikudag og fimmtudag (held ég alveg örugglega) í næstu viku þannig að það er aldrei að vita nema mar skelli sér þangað líka ;) mjööög langt síðan ég hef kíkt á þá spila. Svo eru ekki nema 32 dagar þangað til ég fer í útlandið :D

Æ loovv venn its sömmertæm...

fimmtudagur, júní 09, 2005

oohh...

Alltof margar myndir sem mig langar að sjá í bíó og enginn til að fara með :´( buhu...

mánudagur, júní 06, 2005

jájá... ég veit :/

Hef alls ekki verið nógu dugleg að blogga undanfarið.. það er svona sambland af því að það hefur ekkert merkilegt eða skemmtilegt gerst á síðustu dögum og svo bara leti ! og ég er ennþá löt

En skemmtilegir og merkilegir hlutir hafa gerst ;) Dóra vinkona keypti sér íbúð! óska henni aftur innilega til hamingju með það ;) ætla einmitt að kíkja til hennar í kvöld í nýju íbúðina.. býð hana hér með velkomna í hóp okkar sem eigum aldrei pening en samt er þetta tilfinning sem ekkert jafnast á við ;) að vera í sinni eigin íbúð... en nóg um það.. annað hefur ekki gerst sem mér þykir merkilegt þessa vikuna.. blogga þegar ég hef frá einhverju að segja..

miðvikudagur, júní 01, 2005

púff..

ætlaði að blogga voða mikið... nenni því alls ekki... blogga seinna...

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter