þriðjudagur, júlí 26, 2005

Komin aftur :)

Já.. ég er komin frá útlöndum ;) hafði það rosa gott.. slappaði vel og mikið af og langar að þakka Grímu og Geira fyrir gestrisnina ;) nenni voða lítið að blogga núna.. er bara í smá pásu frá sólbaðsliggi.. segi ykkur útlanda söguna seinna..bæjó

fimmtudagur, júlí 14, 2005

bara 2 dagar...

Já eftir 2 daga þá verð ég á leiðinni til hennar Skrímslu minnar í sólina ;) og hlakka ekkert smá til.. er alveg að verða óþolandi í vinnunni en verður auðvitað fyrirgefið það :) það verða allir pínu óþolandi svona rétt áður en mar fer í frí.. Núna á ég bara eftir að pakka og finna til nokkra hluti fyrir Grímu og Geira og þá er ég bara reddý að fara ;)

Annars er voða lítið að frétta af mér.. dagarnir líða og ég vinn, borða glápi á vídjó og sef.. er reyndar búin að fara alveg tvisvar í bíó á jafn mörgum vikum, sem er alveg svakalega mikið á mínum mælikvarða.. fór að sjá Sin City í síðustu viku og fannst hún bara svaka góð.. solldið eins og Kill Bill myndirnar.. en samt allt öðurvísi... þið sem farið að sjá hana fattið hvað ég á við :)

Ég hef annars ekki frá neinu að segja, ætla halda áfram að vinna.. bæ í bili..

mánudagur, júlí 11, 2005

5 og hálfur dagur !!

Og þá er ég farin til útlanda!! Hlakka svooooo mikið til !!

En að öðrum málum.. um helgina skellti ég mér á Írska daga á skaganum og svei mér þá hvað var gaman hjá mér. Við komum uppettir um hálf sex á laugardaginn og byrjuðum á því að fá okkur að borða og auðvitað fá okkur bjór ;) svo þegar klukkan var orðin eitthvað um miðnætti var farið á eitt skemmtilegasta ball sem ég hef farið á í solldinn tíma.. Paparnir og Sálin að spila og mar bara á stirgaskónum sem þýddi að mar var þarna hoppandi um eins og vitleysingur allt kvöldið.. það gerðist svo sem ekkert sérstak sem gerði kvöldið svona rosa skemmtilegt.. bara allt eitthvað svo gaman :D fullt af fólki.. svona 2-3 þús manns.. allir í góðum fíling, góð tónlist skemmtilegt fólk, gerist ekki mikið betra ;)

Og já.. ég fer til útlanda eftir 5 daga og Sprellen og Elga koma heim á miðvikudaginn.. læv is gúd :)

miðvikudagur, júlí 06, 2005

æ nó... alls ekki nógu dugleg

.. ég er bara búin að vera mikið upptekin og brjálað að gera í vinnunni.. hef ekki frá neinu merkilegu að segja, vildi bara láta vit að ég er á lífi ;)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter