föstudagur, september 30, 2005

Tapað stríð...

Já..þá er vikan liðin og ég tapaði stríðinu við kvebbið :( en er óðum að skríða saman og stefni að því að vera orðin heil á morgun ;) ég hélt að úber svefninn á þriðjudaginn hefði bjargað mér en nei.. er samt orðin mun betri núna og ætla, eins og ég sagði, að vera orðin fín á morgun ;) svo ég geti nú farið á árshátíð. Er bara farin að hlakka helling til skal ég segja ykkur :) er búin að ákveða fötin og hárið! sem er nú mikið sagt.. yfirleitt ákveð ég ekki svona hluti fyrr en þegar ég er að klæða mig og tek handklæðið af hausnum. Annars er lítið að frétta..er bara búin að vera berjast við kvebbið alla vikuna. Mamma og Magnús farin aftur til úglanda, í þetta skiptið til að kaupa sér hús! hver veit nema mar verði bara fluttur til spánar eftir nokkur ár. Jæja.. ætla drífa mig heim..kom bara til að gefa fiskinum. Bæjó í bili

þriðjudagur, september 27, 2005

Ótrúlegt..

Já.. það er ótrúlegt hvað góður nætursvefn getur gert manni gott :)

mánudagur, september 26, 2005

Ekki fyrir mig..

Ég er ekki alveg nógu hrifin af því að það skuli bara vera kominn vetur.. og til að mótmæla þessu þá ætla ég ekki að skafa fyrr en það er kominn Október ! Annars er bara ágætt að frétta.. ég er búin að vera hálf lasin síðan á föstudaginn :( ekki alveg nógu lasin til að vera heima.. og eilla ekki nógu hress til að vera vinna :/ Þannig að ég er í vinnunni.. ekki nógu ánægð með það..pirruð, þreytt, íllt í hausnum og langar að vera uppí rúmi að kúra með sænginni minni. Buhu :'(

fimmtudagur, september 22, 2005

hmm.. var klukkuð..aftur!

Veit ekki hvort ég á fleiri gagnslausar staðreyndir um sjálfa mig.. en mar reynir auðvitað

1. Ég skírði bílinn minn og tala alltaf um hann sem persónu..ef ég þarf eitthvað tala um hann Martein minn.. ;)

2. Ég er alveg ofsalega lofthrædd, á erfitt með að standa upp á stól og finnst hryllingur ef ég þarf að fara uppí sona áltröppur :/

3. Mér finnst alveg rosalega gaman að þvo þvott... allt í kringum það. Hengja hann upp, taka af snúrunum og ganga frá honum.

4. Eitt af því besta sem ég veit er að sofa í nýju rúmi.. þá á ég við þegar mar er búin að skipta á öllu og helst viðra sængurnar :)

5. Mér finnst Janis Joplin ÆÐI !!

Smá stjörnuspeki..




Hrúturinn
Sauður.... æi..ég meinti "tignarlegur" hrútur. Sauðsháttur er ekki til í eðli hrútsins (skoðið fiskana frekar)..en stífni er.. Sauður segir bíddu en hrútur segir bakkaðu... og það er sko eins gott fyrir þig .. þessi horn skapa sársauka! ! Allir Hrútar eru frekir og vita allt, og þeir búta allt niður í línur... stapp, stapp, traðka, traðka, æða áfram. Þeir eru sko fyrstir, einmitt, færðu þig bara og vertu svo ekki fyrir mér, okay? Hrútnum er stjórnað af Mars , guði þeirra sem segja " Ég vinn, þú tapar".


Nautið
Nautsmerkið er belja... sorry...ég meina naut "gripur"... Kýrnar gefa mjólk, en nautin geta ekkert annað enfnæst með logandi nasir og borað hornunum í þig... Þeir taka allt sem þeir vilja, hvenær sem þeir vilja það - matinn þinn, uppáhalds stólinn þinn, tímann þinn, orkuna þína, peningana þína, allir þínir hlutir - það er allt þeirra.. Þeir stara í gegnum lífið, eta allt sem verður á þeirra leið.. Sjálfselskir.. Nautinu stjórnar Venus - gyðja efnis og peninga.

Tvíburinn
Tvíburinn er geðklofi.. - nei bara tvennt af því sama.... Getur ekki haldið sig við sömu stellinga meira en mínútu... og þeir ljúga.. Hverflyndur, ístöðulaus, og algjörlega klikkaður ...úbs.. Farðu ekki út með tvíbura nema að þú viljir missa vitið... Hann elskar mig, elskar mig ekki, hún elskar mig, hún elskar mig ekki. Þú munt aldrei vita raunverulegt svar.. Tvíburanum er stjórnað af Merkúr- guði hugarflugs..

Krabbinn
Krabbinn er "bara" krabbi... Það er bara svoleiðis... Tík, kveina,kvarta, hrekkja,eilif fyrirtíðarspenna - hvort sem krabbinn er karl-eða kvenkyns... Af og til, þegar tunglið er í réttri stöðu, þá verður krabbinn snaróður brjálæðingur ... Það er í eina skiftið sem þú losnar undan þeirra óþolandi væli... Ekkert er nógu gott, enginn hjálpar þeim nóg, þú borðar ekki nóg..bla, bla, bla. Það er engin leið að gera þeim til hæfis Eina lausnin er að setja þá í pott og sjóða þá... Krabbanum er stjórnað af draugalegum Mána - og villtum miskunnarlausum sjávarföllunum......

Ljónið
Ljónið er "bara" skepna...ja að vísu konungleg skepna... Ljónið sprangar um eins og herra eða frú fullkominn... eins og kötturinn þinn... Ég meina líttu á köttinn þinn - til hvers er hann eiginlega? Mataðu mig, er ekki hárið á mér flott...ég sagði er ekki hárið á mér flott?? Er ég ekki fullkomin/n? Klappaðu mér, dáðstu að mér, leiktu við mig- farðu núna í burtu"- kvæs. klór... púff.. Þeir gera ekki brellur, þeir gera ekki það sem þú segir þeim að gera og þeir útdeila engu.... Þá er það upptalið.. Ljóninu er stjórnað af Sólinni - Hr. Geisla sjálfum..

Meyjan
Virgo er meyja. Meyjur eru ekki skemmtilegar.. soo sorry Þær eru tandurhreinar, of hreinar og mjög vandlátar.... Enginn og ekkert er nógu gott fyrir meyjuna.. Þær stara á þig með nístandi augnaráði, skrá niður minnispunkta í huganum um alla þína veikleika og galla.. !dodge Þær þykjast vera vinur þinn og vilja hjálpa þér, pískrandi og hlægjandi að þér á meðan.. Treystu þeim ekki eina mínútu! Meyjunni er stjórnaða af Merkúr - guði "ofur" eitthvað... greininga....
Vogin
Vogin er par af vogarskálum- algjörlega úr jafnvægi... Þær halda áfram að reyna að gera rétt, en gera það samt aldrei... Þær bæta smá á þessa hliðina, smávegis á hina, þar til þær eru svo uppfullar af dóti að þær verða að halda bílsskúrssölu.. En auðvitað munu þær ekki gera það ... Þær vilja líka alltaf meira og meira ... meiri ást, fleiri skartgripi, meira fjör, meiri peninga, meiri fegurð, fleiri vini, bla, bla,bla,... Voginni er stjórnað af Venus - gyðju tonns af dóti og góðgæti.

Sporðdrekinn
Sporðdrekinn er viðbjóðslegur, stingandi illkvittinn óþokki, undirförul og dulúðug ógnvekjandi sköpun myrkursins... Treystu ALDREI Sporðdreka..... Sporðdrekar treysta þér ekki, og þeir drepa þig á einum hjartslætti. Ef að þú ferð rétt að þeim, gæti verið að þeir yrðu góð gæludýr - auðvitað í viðeigandi búri. Sporðdrekinn skríður um ósýnilegur, grefur sig inn í þínar leyndustu hugsanir og drauma og stelur þeim sem þjófur að nóttu ... Það er skelfilegt!! Sporðdrekanum er stjórnað af Pluto - guði kjarnorkusprengingarinnar...

Bogamaðurinn
Bogmaðurinn er þöngulhaus, þrammandi, hneggjandi hross..... Vertu ekki í vegi fyrir þeim..þeir hlaupa á.. Flestir Bogmenn eru eins og hross sem er með hlífar á augunum... Þeir geta ekki séð til hliðanna og vita þessvegna ekki hvað þeir hlaupa á.... Þeir segja líka alltaf röngu hlutina, eins og.." hæ - þú ert miklu ellilegri og feitari núna,en síðast þegar ég sá þig". Eða... hvað kom fyrir andlitið á þér ?????? Þetta er ekki heiðarleiki , þetta er hreinn og klár dónaskapur ... Bogmanninum er stjórnað af Jupiter, frumeintaki af Hr. ég veit allt....

Steingeitin
Steingeitin er - geit...bara ilkvittinn geit.. eða geit"ungur".. Sú tegund sem lítur út eins og gamall nautnaseggur ( eins gott að D.O. sjái ekki þetta ).......... Þær komast örugglega á fjallstoppinn, með öllum tilteknum brögðum sem þær kunna! Svo hafa þær hringuð horn eins og Djöfullinn ... Steingeitin mun nota þig og misnota á allan hátt til að ná sínu takmarki Þeim er sama þó að þær þurfi að eta rusl, eða að það taki óratíma að ná takmarkinu.. en þær ná því.... Steingeitinni er stjórnað af Saturnus - faðir tímans, þessum með orf og ljá.

Fiskurinn
Fiskurinn er fiskur..eða bara þorskur á þurru .. Ja reyndar tveir fiskar sem synda í sitthvora áttina - alltaf vegvilltir, svona lost... Fiskarnir lifa í stöðugum ótta því að þeir vita ekki hvaða hættulega fiskiæta liggur í leyni... allstaðar....
Sjáðu bara hvað þeir æða um, ruglaðir og áttavilltir.. Fiskar geta ekki haldið sig á sama stað í tvær sekúndur, ef þú hendir bragðgóðri beitu út í ..pomm. Í einum hvelli er fiskurinn kominn til þess að gleypa krókinn.. Auðveld bráð þessir fiskar.. (á vissan hátt eins og sauðurinn ) Fiskurinn stjórnast af Neptunus - guði friðar, ástar og rýmis

Vatnsberinn
Vatnsberinn er villtur, geimkadett, vatnsbera strákur /stelpa. Vatnsberar eru gjörsamlega ábyrgðarlausir..... Þeir hafa eina reglu.. ef það er gott, gerðu það... Vetnsberar gera margbrotnar snjallar áætlanir, svo rústa þeir þeim án þess að hugsa sig tvisvar um.. Þeir segja þér einn hlut, og svo láta þeir einhverja brjálæðislega hugmynd teyma sig til Timbúktú... en þú teymir þá ekki neitt... Meðan þeir fara og "bjarga" heiminum..þá getur verið að fjölskyldan "týnist" Reyndu ekki einu sinni að halda í Vatnsbera, þeir eru hálir sem áll, bara geðveikt fólk.... Vatnsberanum er stjórnað af Uranus - guði eldinga, rafmagns og hjóls...


Jæja þá vitum við hvað býr sko "innra" með öllum merkjunum" þýðir ekki að reyna að þykjast eitthvað annað núna...eða..

miðvikudagur, september 21, 2005

Prittí klós...

You Are 24 Years Old
Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.
13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.
20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.
30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!
40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.
What Age Do You Act?

ómægod... ég var klukkuð..

Já ég var klukkuð.. og samkvæmt leikreglum á ég núna að segja ykkur 5 gagnslausar staðreyndir um sjálfa mig...

1. Ég sef alltaf í alvörunáttfötum (náttskyrtu og náttbuxum) ef ég er eitthvað lasin eða líður ílla.

2. Ég hef aldrei komið til vestfjarðanna.. man allavegan ekki til þess

3. Ég borða aldrei súrmjólk... finnst hún ógisleg

4. Ég er nánast alveg dofin í hægra lærinu eftir aðgerð sem ég fór í þegar ég var 14

5. Ég er örugglega eina manneskjan sem ég veit um sem finnst Herbert Guðmundsson í alvörunni kúl ;)

og þar hafiði það...

mánudagur, september 19, 2005

Kassa augu :/

Ef mar fengi í alvörunni sollis þá væri ég pottþétt komin með eitt sett.. glápti þessi heil ósköp um helgina. Þetta byrjaði á fimmtudaginn með bíóferð að sjá The Cave, á föstudaginn var það..ææ með Nicole Kidman..man ekki hvað hún heitir og Beauty shop (ekkert spes).. á laugardaginn var það svo einhver mynd með Tom Cruise og Hide and seek og fullt af friends.. Sunnudagur var eilla bara sjónvarpsgláp. Þannig að núna held ég að ég hafi bara ekki pláss fyrir meira gláp í allavegana 1 dag.. verð samt að horfa á lokaþáttinn af The Contender.. má ekki missa af því í kvöld. Og NEI ég er ekkert glápsjúk!!

sunnudagur, september 18, 2005

Merkilegt nokk...

Ég held að ég hafi engan vegin gert mér grein fyrir vinsældum bloggsins míns.. það eru bara 115 eftir í 10 þús ! og ég setti þennan teljara upp fyrir sona..hmm.. ári síðan.. eikkvað sollis. Og það sem er merkilegast við þetta allt er að það eina sem fer fram hérna er bara bull og vitleysa, man ekki eftir því að ég hafi skrifað eitthvað sem er vit í :/ kannski mar ætti að fara bæta úr því.

En ætlaði bara segja ykkur að eftir 3 mánaða meltinguíhausnum er ég loksins búin að fjáfesta í nýjum síma ;) og jújú opni loki pæjusíma..hvorki meira né minna. Fór aftur yfir í Nokia og er smátt og smátt að komast uppá lagið með að ýta á rétta takka ;) það var nebbla solldið mikið öðurvísi á gamla símanum.. en verð orðin góð í þessu eftir helgi. Og svona fyrst ég er hérna... Jóna á 25 ára afmæli í dag.. TIL HAMINGJU ;) það eru tvær vikur í árshátíðina niðrí vinnu..reyndar bara 13 dagar..og 6 vikur í Landvara, eða 5 vikur og 6 dagar... reyndar bara 5 vikur og 5 dagar (landvari byrjar alltaf á föstudegi)..sko farin að bulla, ætla hætta..bæjó í bili

laugardagur, september 17, 2005

ójá...

Ég verð að segja að ég hafði mikið rétt fyrir mér þegar ég skrifaði titilinn á blogginu hér að neðan.. Bjakk er einmitt orðið sem ég ætla nota til að lýsa gærdeginum. Þetta var sem sagt alls ekki skemmtilegt og ekki gott heldur! En veit núna að það er ekkert að mér þarna og þarf að fara í fleiri rannsóknir :/ en ekki aftur í sona ógeðiseikkvað.. sem er ástæðan fyrir því að ég er bara kát í dag ;)

Annars er voða lítið að frétta.. vikan leið og ég gerði bara það sama og venjulega, mest lítið sem sagt. Fór reyndar í bíó á fimmtudaginn.. The Cave.. alltílæ mynd en alveg hægt að glápa bara á hana á vídjó.. ekkert möst að sjá í bíó. Familían kom heim frá úglöndum á mánudaginn.. þannig að núna á ég fullt af tyggjói og allskonar nammi sem skemmist eflaust bara hjá mér nema einhver komi í heimsókn og hjálpi mér að klára'ða. Helgin..eða það sem eftir er af henni er alveg óráðið, veit ekki alveg hvort ég meika meira vídjó gláp (glápti solldið mikið í gær) þannig að það er alveg spurning hvort ég reyni ekki að finna mér eitthvað að gera..annað en gláp.

fimmtudagur, september 15, 2005

Bjakk..

já á morgun er komið að því.. og mig kvíður eilla bara solldið fyrir :( það er sem sagt komið að magaspegluninni á morgun :/ en þetta verður þá vonandi endirinn á endalausu íllt í malla...

mánudagur, september 12, 2005

Mmmm...

Já.. MMMMmmm segi ég.. við gleðikonur ásamt vinum fórum út að borða á laugardaginn og mmmm ég mæli hiklaust með Skólabrú..maturinn, þjónustan og andrúmsloftið alveg frábært :) ég varð sko alls ekki fyrir vonbrigðum með þetta kvöld. Við byrjuðum á að hittast heima hjá mér í "for"fordrykk og fórum svo niðrá Skólabrú þar sem var tekið á móti okkur með freyðivíni og smá snarli sem var fyrsti rétturinn af því sem varð eiginlega 7 rétta máltíð. Þar sátum við og gæddum okkur á böbblí og einhverskonar kartöflukavíarsnittum þangað til borðið okkar var reddý. Þegar við komum niður sá mar hversu ótrúlega kósý og bara glæsilegt þetta er þarna.. við settumst og þá byrjaði veislan fyrir alvöru.. fyrst var það einhverjir sjávarréttir í hlaupi, rosa gott, þetta var kaldur réttur. Svo kom einhverskonar humar, krabbaréttur með freyðandi hörpuskel..rosa gott ;) þá var það lúða og kartöflu eitthvað með smá grænmeti, svakalega gott! og núna var komið að aðalréttinum.. það voru andabringur með kartöflu og allskonar grænmeti..rosa gott :) og svo eftirrétturinn það var sona brání, sólberjafrauð og sorbei.. þegar mar var aðeins búin að melta þá kíktum við aftur upp þar sem við fengum konfekt og drykk ;) þetta var sem sagt bara nánast fullkomið kvöld í alla staði :) eftir að hafa setið þarna í frábæru yfirlæti í næstum 5 tíma fórum við út á lífið.. ég dansaði nánast allt kvöldið og finn sko fyrir því í dag :/ en óhætt að segja að þetta kvöld fer í bækurnar sem eitt af topp 5.. Takk fyrir mig stelpur og strákur ;)

föstudagur, september 09, 2005

Jahérna...

Ef einhvern þarna úti er laus annaðkvöld, á fín föt og langar í góðan mat þá er bara vera í bandi..

laugardagur, september 03, 2005

Úúúpss...

Jæja.. þá verður mar að fara ritskoða það sem birt verður á þessu bloggi.. sé að familían er óðum að uppgvöta þetta litla blogg mitt :/

Smátt og smátt bætist í hóp þeirra sem kíkja hér við til að fá fréttir og sjá hvað er að gerast í mínu lífi og auðvitað er ég bara kát með það ;) og býð hér með Helenu velkomna í þann hóp. Þetta er svo sem í lagi svo lengi sem mútta kíkir ekki hérna við.. veit ekki afhverju en langar voða lítið til að hún lesi það sem hér er skrifað.. ekki það, hún viti yfirleitt alltaf hvað ég er að gera.. hvort sem það er að vera heima og lesa bók eða úti að gera einhverja vitleysuna af mér á djamminu..

Nóg um það í gær var kósý stelpukvöld hjá Sprellen.. henni tókst loksins loksins að troða mér í kjól,(verið að máta fyrir næstu helgi) henni finnst ég greinilega ekki nógu oft vera í sollis apparati.. mig minnir að ég hafi síðast verið í kjól þegar við stöllur fórum á lögguárshátíðina á Nordica Hótel (tók þá reyndar með mér til föt til skiptana og var fljót úr kjólnum og í "venjuleg" föt áður en farið var í bæinn).. ætli það hafi ekki verið 2003. Núna þarf ég sem sagt að ákveða hvort ég eigi að láta undan þrýstingi og vera í blessaða kjólnum eða það sem mér finnst voða fínt..pilsi :/ leiðast svona ákvarðanir.. ef ég mætti ráða væri ég bara alltaf í joggingbuxum og bol.. einstaka sinnum gallabuxum en samt bara sona spari ;) en þessi kjóll er nú samt.. eins og Dóra benti á.. eins plein og þeir gerast, bara svartur síður með hlýrum og ég er reyndar voða fín í honum :) ætla melta þetta í nokkra daga læt ykkur vita hvað verður. En auglýsi hér með eftir skóm.. verða að vera þægilegir, pæjulegir, flottir, svartir, með hælum og í númerum 37-38, vantar sollis ef ég skyldi ákveða að vera í fína kjólnum ;)

Jæja, ætla halda áfram að gera ekkert, er búin að gera helling af því í dag og líkar bara vel... ;)

föstudagur, september 02, 2005

Pirripirr..

Í dag er föstudagur og mar ætti að vera bara kátur og glaður í dag.. en ekki ég :/ einhverra hluta vegna er ég bara pirruð og svo aðeins meira pirruð :/ en kann þess vegna ennþá meira að meta að á morgun er laugardagur :)
Vikan hefur verið bara ágæt.. ekkert merkilegt gerst sem er bara alveg ágætt og planið fyrir helgina er heldur ekkert merkilegt, ætla reyna hitta han sprellen og hafa pínu kósýkvöld og það er bara það eina sem stendur til. Hef ekkert að segja..bleble

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter