Sálin.. alltaf sálin !
Ef það er einhvern tíman spurning hvort mar á skella sér á ball eða ekki þá er svarið alltaf já þegar Sálin er að spila !
Ég og Dóra ákváðum að skella okkur á ball og ég sé sko aaaalls ekki eftir því.. skemmti mér svoo vel að ég er ennþá með bros á vör :) Við hittumst heima hjá mér þegar Dóra var búin að vinna, drukkum rúbí túsdei og spjölluðum um allt milli himins og jarðar. Tókum svo nokkur dansspor á gólfinu heima við Sálina og drifum okkur svo í bæinn. Vorum bara örstutt í röðinni á Nasa.. þegar inn var komið byrjaði gleðin fyrir alvöru ;) Dönsuðum eilla bara allan tímann.. tróðum okkur meira segja fremst til að Stebbi sæi nú að ég væri komin ;) ég lét eins og alvöru fan og tók myndir eins og ég væri á launum við það..híhí og á í dag fullt af myndum af Stebba en enga í fókus :/
Eftir þessa gleði var skundað yfir á amster þar sem versta hljómsveit sem ég hef séð í langan tíma var að spila.. söngvarinn annaðhvort kunni ekki textana eða gat bara hreinlega ekki sungið lögin sem þeir voru að spila..er ekki viss um hvort er. Og til að toppa vond-heitin þá tók söngvarinn sér pásu í miðju lagi til að reima skóna sína!!! REIMA SKÓNA SÍNA!!! Mest órokkaralegt í heimi!! Þrátt fyrir þessa vondu hljómsveit var bara svaka stuð á dansgólfinu þar sem við héldum áfram að krumpa ;) híhí.. smá einkadjók.. svo var smá spjall eftir að ljósin voru kveikt og ég fékk að vita að ég er algjör dúlluspaði :) og með kyssulegar kinnar.. ekki slæmt það. Svo var bara sagt bless, farið heim og borðað hrísgrjón, skrifuð nokkur sms..hringt í Ellen..glápt pínu á friends og svo lúllað. Þetta var bara alveg rosalega skemmtilegt kvöld og vil ég þakka Dóru Djús fyrir félagsskapinn ;) langt síðan ég hef hlegið svona mikið.
Verð að minnast á Maron áður en ég hætti...metro gaurinn sem við kynntumst í leigubílaröðinni.. hef ekkert um hann að segja nema að þar fer maður með vit í kollinum..sá eini í röðinni sem hafði vit á að vera með húfu og hanska !
En muniði ef einhver vafi er á.. Sálin alltaf Sálin !



