Selfoss..
Jább í dag keypti ég mér geisladisk..ekki gert það í mjöööög langan tíma og diskurinn sem varð fyrir valinu..jú Selfoss :) og mæli eindregið með því að fólk skundi útí búð og fjárfesti í einu, jafnvel tveim eintökum..
Annars lítið að frétta.. fór að vinna í gær, var alveg búin á því kl 12 :/ ekki góð frammistaða það.. og sama gerðist í dag :( ég sem hélt að ég væri svo mikið hörkutól ! á morgun fer ég til læknisins og mæti svo í vinnu kl 13 og núna er takmarkið að vera til lokunar. Kvíði solldið fyrir fimmtudeginum ef ég á að vera allan daginn :/ veit ekki hvernig það á eftir að ganga ég nebbla er greinilega ekki alveg orðin jafn hress og ég hélt. Svo er planið að fara á Sálina á laugardaginn.. sjáum til hvernig fer með það, það eru náttla alveg 3 dagar í það og margt getur gerst á 3 dögum !




