laugardagur, desember 31, 2005

enn eitt árið..

er senn á enda.. ég verð að segja að þetta ár hefur verið bara ágætt :) auðvitað hafa komið tímar þar sem mar var kannski ekki alveg sáttur en þegar ég lít til baka er ekkert sem ég sé eftir og ekkert sem ég sleppti sem ég hefði viljað gera.. og þá er ég sátt :D enda móttóið að sjá ekki eftir því sem maður gerði bara því sem maður gerði ekki ;) langar að þakka ykkur öllum fyrir árið og vona að næsta verið bara ennþá betra ;)

Gleðilegt ár !!

þriðjudagur, desember 27, 2005

Kósí jól :)

Já ég hafði það svo sannarlega gott yfir jóladagana.. var að vinna til hádegis á aðfangadag, kíkti svo aðeins við hjá Ellen uppí húsasmiðju lét hana fá jólapakkann sinn og smá spjall :) kom svo við hjá mömmu á leiðinni heim. Þegar ég kom þangað beið Dóra eftir mér fyrir utan, ég lét hana fá jólapakkann sinn og svo kíkti hún inn í smá spjall.. þegar ég var búin að koma öllum pökkunum frá mér var það bara leggj og kúr þangað til mar þurfti að fara gera sig reddý fyrir matinn. Fékk rosa góðan forrétt og rosa gott kjöt í matinn :) og ekkert smá fallegar jólagjafir :D kíkti til Bennýjar (stóru systir hans pabba) eftir mat og pakka uppríf hjá múttu. Þar tók við aðeins meiri matur og auðvitað kom jólasveininn í heimsókn með pakka handa öllum :) þegar ég var búin að fá nóg af kökum og gúmmelaði renndi ég við hjá Dóru á leiðinni heim í stelpuspjall og pínu hangiket.. rosa gott ;)

Jóladagur var kúr og meira kúr.. fór svo til ömmu í hið árlega hangiketsboð þar sem ég borðaði laufabrauð og rækjusalat :) sat og spjallaði við stórfjölskylduna fór svo heim að kúra meir :)

Annar í jólum var ekki mikið frábrugðin deginum á undan..kúr og meira kúr kíkti svo aðeins út með Dóru um kvöldið eftir að við vorum búnar að taka einn hring í Buzz, settumst inná Dubliner Dóra fékk sér hvítvínsglas (sem henni fannst ekki gott) og ég sötraði vatnsglas, við spjölluðum og fórum svo smá rúnt og heim að lúlla.. eins og þið sjáið er ég búin að hafa það alveg svakalega gott :D svo er það bara vinna í dag og svo ekki meir á þessu ári ! úff finnst solldið erfitt að eitt árið í viðbót sé alveg að verða búið ! úff púff..

Endilega segið mér..hvað á að gera af sér á áramótunum !?!

laugardagur, desember 24, 2005

Jólajólajólajóla

Gleðileg jól :D
Vona að þið hafið það rosalega gott um jólin ;)

föstudagur, desember 23, 2005

Blabla..

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og..


1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.

Ef þú tekur þátt í þessu verðuru að setja þetta á bloggið þitt!

þriðjudagur, desember 20, 2005

Púff...og úff líka bara..

Jólin eru alltof stutt í burtu :/ á ennþá eftir að kaupa 2 jólapakka, pakka öllu inn og koma þessu öllu til skila.. sé ekki frammá að þetta takist allt !

miðvikudagur, desember 14, 2005

Jólajóla...

Alltaf tekst jólunum að læðast upp að mér :/ eins og svo mörg ár á ég eftir að gera næstum allt ! er miklu sneggri að telja upp þá hluti sem ég er búin að gera.. baka smákökur, kaupa eina jólagjöf og birgja mig upp af kertum... allt annað er eftir :( ætla samt að skrifa jólakortin í kvöld.. þá er eftir að kaupa jólapakka handa nokkrum..sem væri ekki svo slæmt ef ég vissi hvað ég ætlaði að gefa þessu fólki.

En ætla líka segja ykkur frá nýja sófanum mínum.. hann er æði ;) mér finnst hann vera risastór.. á bara eftir að venjast honum. Svo er hann líka ógislega þægilegur.. það er hægt að liggja bara endalaust og kúra :) og án djóks þá komast örugglega 6 fyrir í honum ! það er helmingi meira en í gamla.. mmmm...nýji sófinn minn er æði :)

þriðjudagur, desember 13, 2005

Sófajól :)

Fór í gær og keypti mér nýjan sófa :D rosa stór og svaka þægilegur.. ég verð heima við næstu daga að hafa það kósý í nýja sófanum mínum ef einhverjum langar að koma og fá sér sæti ;)

föstudagur, desember 09, 2005

Vúhú :D

Föstudagar eru góðir dagar...

mánudagur, desember 05, 2005

Sálin klikkar ekki ;)

Já ég fór á ballið og skemmti mér alveg rosa vel :) kvöldið byrjaði bara rólega.. ég sat heima og hafði það notalegt þangað til að Dóra kom til mín eitthvað eftir 22. Þá sátum við og spjölluðum helling og höfðum gaman af ;) Ellen hringdi svo eitthvað um miðnætti og var þá búin að ákveða að skella sér með okkur ;) ég og Dóra tókum taxa og pikkuðum Ellen upp á leiðinni og héldum á Nasa fórum að sjálfsögðu fram fyrir alla röð :) borgar sig að kaupa í forsölu. Þegar inn var komið fundum við okkur fínan stað til að hrista aðeins á okkur rassinn.. meira segja með fín sæti og allt ! Auðvitað stó Stebbi alveg fyrir sínu og úsaði kynþokka ;) eftir ballið kíktum við á gaukinn þar sem ég hitti Pétur og rölti með honum yfir á amster þar sem Einar, Magga, Þórey og fleira fólk var. Ellen og Dóra gáfust upp aðeins á undan mér og fórum heim en ekki ofurdjammarinn Bengta ! ónei.. ég fór með Pétri, Þórey, Eysteini og 2 fólkum í viðbót sem ég þekki ekki heim til Bergs.. eftir smá stund þar bættist í hópinn Björn Jörundur með ýmislegt sniðugt í tösku ! óhætt að segja að maðurinn hafi mætt tilbúinn í fjörið.. var með náttföt, inniskó, sokka, bók, mynd af mömmu sinni, systir og sér, geisladisk (Björgvin Halldórs) , kaffipoka og síðast en ekki síst lambalæri ! og alls ekki slæmt læri..kom sér vel, mar var orðin pínu svangur eftir nóttina ;) Kaffipokarnir voru svo nýttir sem partýhattar..verst að það voru ekki nógu margir fyrir alla þannig að ég var ekki með kaffipoka á hausnum og gat þar að leiðandi leyft mér að hlæja þeimur meira af hinum sem sátu þarna eins og bjánar..híhí... annars hélt að ég myndi pissa í mig af hlátri þegar hann byrjaði að tína uppúr töskunni.. en þegar leið aðeins á morgunin er ekki alust við að ég hafi öfundað hann frekar mikið af náttfötunum.. hefði alveg verið til í að sitja þarna og hafa það kósý á náttfötunum.

En mikið skemmti ég mér vel... þó að þreytan hafi verið töluverð í gær var það þess virði.. ballið rosa skemmtilegt og svo endaði þetta allt svo krúsulega kúrandi uppí sófa :)

föstudagur, desember 02, 2005

Eins og ungabarn :)

Sæl og blessuð lömbin mín..
..af mér er bara gott að frétta, búin að vera í vinnu hálfan daginn þessa vikuna nema í dag er ég heilan dag :) Og orðin bara nokkuð góð. Hef ekki gert mikið af mér í vikunni..fór nú samt til hennar Dóru í mat og gláp í gær :) það er alltaf næs..smá sona stelpustelpu, góður matur, glápt á stelpuþætti í imbanum og smá stelpuspjall.

Svo er planið að kíkja á Sálina á morgun.. ætla fara á eftir að versla miða fyrir mig og glimmergelluna og þá verður ekki aftur snúið ! ég velti þessu heilmikið fyrir mér síðastliðna daga og komst að þeirri niðurstöðu að ég ætla fara á ballið passa bara að vera ekki mikið í troðning og fara bara heim ef ég verð mikið þreytt eða eitthvað íllt.. nebbla.. eftir síðasta sálarball lét ég hafa það eftir mér að mar á aldrei að sleppa sálinni og get eilla ekki svikist undan :/ og líka Dóru er farið að hlakka svooo mikið til að ég get alls ekki svikið hana ! og auðvitað lang stærsta ástæðan.. Stebbi er Dead sexý ;)

En að öðrum dead sexý manni..Artem í só jú þeink jú ken dens... það er mest sexý maður sem ég hef séð í laaaangan tíma ! mér bara verður heitt og rjóð í kinnum þegar hann sést á skjánum. Mæli hiklaust með því að allir sem hafa aðgang að Sirkus kíkji á þennan þátt á sunnudaginn (endursýnt þá sko) og sjái þegar hann dansar einn í endann..Ó MÆ GOD!!!

uss..var næstum búin að gleyma að segja ykkur afhverju ég er eins og ungabarn.. ég fór til læknisins á miðvikudaginn, hann var að kíkja á skurðina mína og tékka hvort ég hefði það bara ekki ágætt.. og viti menn.. Bengta grær eins og ungabarn ! var ekki alveg viss fyrst hvort það væri gott eða slæmt, en svo sagði mér einn lítill og sætur fugl að það væri mjög gott ;)

Hætt í bili.. en ef einhver þarna úti ætlar á ball á morgun þá væri gaman að heyra frá þér :) bæjó

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter