þriðjudagur, janúar 31, 2006

Gleymdi...

ótrúlegt en satt.. þá gleymdi ég að segja ykkur frá því hvaða hljómsveit var að spila á þorrablótinu.. það var engin önnur en Hljómsveitin Fönn. Ég þekkti ekki nafnið þegar ég heyrði hvaða band yrði þarna til að leika fyrir dansi.. svo þegar ég sá söngvarann rifjaðist allt í einu upp fyrir mér kvöldið þann 29. Okt..

hægt að lesa um það hér..

Það kvöld fórum ég og Dóra á sálina og kíktum svo á Amsterdam þar sem ég varð vitni að mest órokkaralegustu hegðun sem ég held ég hafi nokkurntíman séð.. söngvarinn sem reimaði skóna sína í miðju lagi !! ójá þarna var mætt sama band, reyndar með nýjum trommuleikara og allt öðrum gítarleikara. Og söngvarinn hafði alls ekki skánað neitt :/ hann fær plús fyrir að ekki reima skóna sína í miðju lagi, en það er það eina.. hann var ennþá í þeim pakka að annaðhvort ekki kunna, nenna eða bara ekki geta sungið lögin sem þeir völdu sér að spila.. skil ekki sollis ?? afhverju ekki að velja lög sem söngvarinn kann ? eða bara hreinlega skipta um söngvara...

mánudagur, janúar 30, 2006

Dansidans og sófakartöbbla

Sæl lömbin mín.. já þá er enn ein helgin liðin og hún var bara aldeilis fín :) eins og ég spáði var ég orðin blúús frí seinnipartinn á föstudaginn ;) fór í mat til múttu og svo í heimsókn til Sprellenar á föstudagskvöldið..
á laugardaginn vaknaði ég fyrir 8 !! alltof snemmt.. en gat ekki sofnað aftur og fór og setti í eina þvottavél og gekk frá hreina þvottinum.. eftir allt þetta puð var ég nú bara orðin pínu sybbin aftur og fór uppí rúm að kúra.. tókst sem sagt að vera búin að fara á fætur og gera fullt og leggja mig og vakna aftur fyrir klukkan 11 á laugardagsmorgunin.. veit ekki alveg hversu heilbrigt það er :/ var svo bara eitthvað að stússast yfir daginn..

fór svo á Þorrablót með Ellen ( get eiginlega ekki talið Dóru með þar sem hún gufaði upp rétt eftir matinn og fór heim) um kvöldið, það var bara fínt.. ég skemmti mér alveg ágætlega fyrir utan að það er ekkert gaman að hlusta á fullt af fólki tala um vinnuna sína þegar mar er ekki að vinna með þeim :/ en það var bara smá stund og þegar það var búið (vinnutalið) þá var bara rosa gaman hjá mér.. dansaði, drakk og spjallaði ;) þetta var nú samt búið frekar snemma..voru rosalega margir farnir um eittleytið.. ég og Ellen trítluðum niðrá gauk þar sem við settumst og ræddum hjartans mál. Fljótlega eftir það fór hún heim..ég var pínu lengur og viti menn.. haldiði að sæti strákurinn hafi ekki komið og boðið mér upp í dans ;) það fannst mér ekki leiðinlegt. Í það heila ekkert leiðinlegt kvöld.. hefði alveg verið til í að Dóra hefði vera lengur með okkur.. og Olga hefði alveg mátt vera þarna líka.. en líka bara gaman að vera bara djamma með Ellen.. langt síðan við höfum verið bara tvær útá lífinu, hún hefði mátt vera oggupínu lengur þá hefði hún hitt sæta strákinn...en það verður bara bíða betri tíma. Hápunkturinn var nú samt þegar mér var boðið svona fallega uppí dans :)

Svo var það þynnkudagurinn ógurlegi :( var endalaust óglatt þegar ég vaknaði..hélt ég kæmist ekki framúr.. en það lagaðist þegar ég var búin að borða en þá kom þessi ógurlegi hausverkur..alls ekki gott :( en var orðin mjög fín um kvöldmatarleytið ;) og hafði það ekkert smá kósý allan daginn... var sófakartöbbla allan daginn :) alveg eins og það á að vera..

fimmtudagur, janúar 26, 2006

Aðeins minni blúús..:)

já.. í dag er ég með aðeins minni snert af ððee blúús :) með þessu áframhaldi verð ég orðin blúúsfrí seinnipartinn á morgun ;) ekki amalegt það.. verð nú samt að segja að ég er pínu vonsvikin yfir því að enginn gaf mér ráð ! hvað á það að þýða... kannski bara les enginn þetta blaður mitt, reyndar kæmi mér það ekki mikið á óvart þar sem þessu blaðri verður seint líst sem spennandi :/ kannski ég ætti að fara bæta úr því.. blogga meir um leið og ég hef frá einhverju merkilegu að segja..

miðvikudagur, janúar 25, 2006

Ððee blúúús...

já.. ég held að ég sé með smá snert af ððeee blúúús :(

veit ekki afhverju, vona bara að þetta fari sem fyrst, ekkert gaman að vera blúú allan daginn :( er nú samt búin að vera dugleg að ekki hanga bara heima, fæ nokkur prik fyrir það :) samt leiðinlegt að vera rembast við að gera eitthvað í staðin fyrir að hafa bara gaman af því að hitta vinkonurnar og njóta þess. Þetta líður vonandi hjá sem fyrst.. er alveg að verða búin með farðuoggerðueitthvað orkuna... er meira segja búin að prófa að brosa framan í heiminn og vona að hann brosi á móti, það virkaði bara í smá stund :/ Öll ráð vel þegin !

þriðjudagur, janúar 24, 2006

buhu :'(

sko.. ég var svo kát í gær þegar ég rak augun í frétt um að Friends ætluðu að koma saman aftur og gera nokkra þætti í viðbót.. bara til að heyra svo í útvarpinu í morgun að það er bara ekkert til í þessu ! Enginn vill ekkert kannast við að það hafi verið gerðir neinir samningar um sollis endurkomu :( buhu....

eftirfarandi frétt á mbl.is

Framleiðendur „Vina“ segja ekkert hæft í því að búa eigi til fjóra nýa þætti
Orðrómur um að gera ætti fjóra nýja klukkustundarlanga þætti um Vini fór eins og eldur í sinu um netið í gær, en fulltrúi framleiðanda þáttanna, Warner Brothers, segir „ekki sannleikskorn“ í þessum sögusögnum.

mánudagur, janúar 23, 2006

Þetta bjargaði deginum !

„Vinir” snúa aftur



Eftir að samningar náðust við leikarana í sjónvarpsþáttaröðinni Friends hefur verið ákveðið að taka upp fjóra nýja klukkustundarlanga þætti með þeim Jennifer Aniston, Courteney Cox, Lisa Kudrow, Matt LeBlanc, David Schwimmer og Matthew Perry. Þáttaröðin var lögð niður fyrir tveimur árum en verður nú endurreist, reiknað er með að fjórir tvöfaldir þættir verði tilbúnir til sýninga í Bandaríkjunum að ári.

Rak augun í þessa frétt á mbl.is og mátti til með að deila gleðinni :)

föstudagur, janúar 20, 2006

Hlakka svo til !

Ég er bara orðin frekar spennt fyrir morgundeginum ! er eilla alveg búin að ákveða hvað ég ætla elda og á eina hvítvín inní ísskáp :) hlakka til að sjá stelpurnar, spjalla við þær og jafnvel kíkja eitthvað út.. vildi bara deila þessu með ykkur :)

miðvikudagur, janúar 18, 2006

Alltaf gaman...

Ég var að flakka um í hinum stóra bloggheimi og rak augun í þetta.. langar endilega að sjá hverjir svara þessu...

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

mánudagur, janúar 16, 2006

Alveg ágætt bara..

já ég segi bara fínt.. helgin fín :) já ég get ekki kvartað undan lífinu í augnablikinu..

Katrín og Hilmar urðu foreldrar á föstudaginn..reyndar aðeins seinna en ég hafði spáð.. stelpan kom í heiminn 16:38 og var víst með fullt af hári ;) ég er ekki búin að sjá hana ennþá, ákvað að gefa þeim smá tíma.. eflaust alveg fullt af fólki endalaust í heimsókn og ég get alveg beðið :) hún verður alveg örugglega jafn sæt eftir nokkra daga.

Ég fór í þetta afmæli á föstudaginn og skemmti mér bara rosa vel, eftir fullt af spjalli, dansi og drykkju í elliðárdalnum kíktum við nokkur í bæinn og ég verð að segja að ég og Ester vorum æði ;) slógum í gegn á dansgólfinu á thorvaldsen.. á laugardaginn var ég í náttfötunum allan daginn og naut þess í botn :D var svo glöð með að það væri bara laugardagur og ég gæti (ef ég vildi ) gert þetta (vera á náttfötunum) aftur allan sunnudaginn líka ! fannst það æði... sem sagt glápti á vídjó, dvd og sjónvarpið til skiptis allan laugardaginn. Sunnudagurinn var svipaður nema ég druslaðist í föt uppúr 3 og fór til Dóru í smá heimsókn.. stoppaði nú ekkert lengi en samt nóg til að spjalla og horfa með öðru auganum á mjög fyrirsjáanlega Disney mynd. Fór næst í mat til múttu að borða reyktan lambahrygg, ég var nú ekki alveg viss um hvernig það yrði á bragðið en reyndist svo vera bara alveg ágætt :) meira gerði ekki þess helgina en eins og ég sagði þá get ég ekki kvartað.. hafði það bara mjög gott :)

Svo næstu helgi er ég að fá tvær stelpur í mat.. það verður sko ekki leiðinlegt :) er ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla elda.. einhverjar hugmyndir ?

föstudagur, janúar 13, 2006

13. Janúar..

þessi dagur fer niður í bækurnar sem mikill merkisdagur.. í dag ætlar hún Katrín Rós vinkona mín að eignast barn ! já.. litla stelpan hennar og Hilmars verður væntanlega komin í heiminn um tvöleytið í dag :) aðeins á undan áætlun en henni verður eflaust fyrirgefið það.

Annars er ekki mikið að frétta af mér..vikan búin að vera ágæt.. náði loksins að lúlla almennilega á fimmtudagsnóttina ;) og ooohhhh...hvað það var gott :) gaman að vakna úthvíldur eftir nokkrar andvökunætur. Sjúkraþjálfunin gengur ágætlega.. er ekki búin að vera alveg sú duglegasta að mæta :/ ætla bæta úr því.. ekkert gaman að vera með íllt í bakinu :( Í kvöld er svo planið að fara í afmæli..veit ekki hvort úr því verður djamm eður ei, kemur í ljós.

þriðjudagur, janúar 10, 2006

Þriðjudagsþreyta :(

geeeeiiiiiiiiiiisssssssssp... ég er svo sybbin. Er búin að liggja andvaka síðustu tvær nætur.. ef einhver þarna úti veit um gott svefnmeðal þá endilega láta mig vita.. væri gott að lúlla næstu nótt :)

fimmtudagur, janúar 05, 2006

síðasta vika..

Já fyrst ég hef smá tíma þá ætla ég að segja ykkur aðeins frá því hvað síðasta vika var frábær :) ég var sko bara vinna á þriðjudeginum og var svo í fríi út vikuna ;) og hafði það ekkert smá gott..

á miðvikudeginum var ég að vesenast með sprellen..alltof langt síðan ég hef gert sollis.. kíktum í smáralindina og keyptum allskonar stelpudót ;) svo fór ég heim og kúrði þangað til ég kíkti í te og spjall uppí árbæ. Allt í einu hringdi síminn minn (frekar skrýtið þar sem Dóra og Ellen sátu á móti mér) og það var hinn nýgifti Óskar að bjóða mér að koma niðrá Nordica og fagna með sér og konunni sinni henni Jónínu :) ég var ekkert alltof spennt að kíkja.. hafði það alveg svaka kósý hjá Ellen með tebollann minn. Ákvað nú samt að kíkja smá.. eilla bara til að segja hæ og knúsa þau aðeins meira til hamingju :) og ég sé sko alls ekki eftir því.. skemmti mér alveg rosalega vel ;D

Á fimmtudaginn var heilsan kannski ekki alveg uppá sitt besta, en snarlagaðist eftir að ég var búin í klippingu.. manni líður alltaf betur þegar mar er orðinn fínn um hausinn ;) en ég eyddi samt restinni af deginum uppí sófa að glápa og hafa það úber kósý.. og líka solldið á bleiku skýi útaf því hvað var gaman hjá mér kvöldið áður :)

Föstudagurinn var ekki síðri.. þá kíkti ég í búðir með Dóru og Freyja dóttir Sólrúnar kom með.. við stelpurnar þræddum flest allar búðir í kringlunni áður en við komum Freyju heim til mömmu sinnar svo hún gæti lagt sig, þá héldu ég og Dóra áfram og röltum niður hálfan laugaveginn. Þar fundum við loksins eitthvað til að kaupa ;) Dóra fjárfesti í áramótabolnum og ég í eðal ektagervi búlgörskum demöntum :) svo var það hið árlega gleðikonu matarboð heima hjá Dóru.. þar sem ég sýndi einstaka snilld í brúningum.. bæði á hamborgarahrygg og kartöflum ;) og tókst bara ágætlega (þó ég segi sjálf frá) og allur maturinn bara rosa góður. Eftir mar settumst við niður og spiluðum popppunkt þar sem ég og Stebbi (mæ hubbí) stóðum okkur ágætlega, held samt að við höfum tapað.. man ekki alveg. Fljótlega eftir það fór ég bara heim að lúra..

alveg brilljant 3 dagar.. get ekki annað en verið glöð með þetta :)

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Stjörnumerkin..jáhá

Hrúturinn

Hrúturinn er vormerki. Á vorin fer birta vaxandi og veður batnandi. Mesti athafnatími ársins er fyrir höndum. Eðli Hrútsins endurspeglar þetta og birtist meðal annars í þörf fyrir athafnasemi og innri vissu um að lífið bjóði uppá ótal tækifæri. Hrúturinn er fyrir vikið drífandi og fljótur að framkvæma ætlunarverk sín. Að sama skapi er honum illa við alla bið. Hann vill gera það strax sem hann fær áhuga á.

Frumkvöðull

Hrúturinn þolir illa reglur, kerfi og vanabindingu, en hefur gaman af nýjum áskorunum. Það má líkja honum við landnema. Hann tendrast upp þegar ný mál eru á dagskrá hans, lifnar við og smitar út frá sér með ákafa sínum, en dofnar og verður leiður ef hann þarf að fást of lengi við það sama. Hann er góður í upphafi, sæmilegur þegar verk er hálfnað en verður oft að beita sig aga til að ljúka verkum. Hann er fæddur brautryðjandi og frumkvöðull, en er síðri í rekstri og vanaverkum.

Keppni og áskoranir

Hrúturinn kappsfullur og baráttuglaður að upplagi. Hann er því uppá sitt besta þegar honum er stillt upp við vegg, eða þegar þarf að drífa af ákveðin verk fyrir tilsettan tíma. Þá magnast hann upp. Hann er eldsmerki og þarf því að hafa líf í kringum sig og líður best þegar hann er að keppa eða fást við nýja áskorun. Hann þarf sömuleiðis á hreyfingu og líkamlegri útrás að halda, annað hvort með því að stunda líkamlega vinnu eða í íþróttum, líkamsrækt og útivist. Ef umhverfi hans er líflaust og kallar á vanabindingu og endurtekningar þá tapar hann orku.

Fram á veginn

Hrúturinn er lítið gefinn fyrir að horfa um öxl. Hann vill lifa fyrir daginn í dag og horfa fram á veginn. Hann veltir sér því sjaldan upp úr vandamálum, að minnsta kosti ekki til langframa. Ef erfiðleikar steðja að er hann fljótur að hrista þá af sér. Lífið býður alltaf upp á ný tækifæri, nýjar áskoranir og ný verkefni til að keppa að.

Fljótfær og uppstökkur

Hinn dæmigerði Hrútur er fljótfær og á til að vera uppstökkur. Hann er tilfinningaríkur og skapstór. Þetta kemur sérstaklega fram ef einhver ætlar að stöðva hann eða hindra hann í að gera það sem hann hefur ætlað sér. Hann þolir ekki tafir. Þá er hætt við að hann rjúki skyndilega upp. Á móti kemur að hann er fljótur að róast og fyrirgefa.

Einlægur

Dags daglega, og þegar allt er í lagi, þá er Hrúturinn einlægur og vingjarnlegur í fasi, og yfirleitt hress og jákvæður. Hann er að mörgu leyti það sem kalla má 'hrein sál', eða maður sem flækir hlutina ekki að óþörfu. Hann stundum svolítið barnalegur í einlægni sinni og hreinskilni, en oftast er honum fyrirgefið, því hann meinar í raun ekkert illt með því, þó að hann skjóti á fólk eða slái einstaka sinnum frá sér.

Snerpa og hraði

Segja má að Hrúturinn sé skorpumaður og spretthlaupari. Lífsorka hans er hröð og hann starfar einna best þegar mikið er um að vera og krafist er snerpu og skjótrar ákvarðanatöku. Um Hrútinn er sagt að hann eigi að treysta á fyrstu tilfinningu sína í hverju máli. Slíkt reynist honum best.

Þegar talað er um 'Hrútinn' og 'Hrúta', þá er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Hrútsmerkinu. Þeir einstaklingar hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.
Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.

mánudagur, janúar 02, 2006

*geeiiiiiiisssssp*

já.. áramótin komin og farin.. það er alltaf pínu súrsætt. En mikið rosalega var gaman hjá mér :) fór í mat til mömmu, kíkti í sprengjur og spjall til Jóhönnu frænku og svo var það singstar heima hjá mér ;) þar var sungið og trallað frameftir. Fórum í partý niðrí bæ og kíktum svo á buffið.. ég dansaði heilan helling..komst að því að það er alltof langt síðan ég og Sprellen höfum djammað saman !

Verð líka að segja að ég held barasta að ég sé heppnust í heimi með vini.. ég er svo þakklát fyrir þá alla :) þykir endalaust vænt um þá og lífið væri bara alls ekki jafn skemmtilegt án þeirra.. takk fyrir að vera til ;) þið vitið hver þið eruð...

úff er svo sybbin :( eins gott að það verði ekki mikið að gera í dag.. en jæja það er ekki seinna vænna að fara byrja vinna í áramótaheitinu ;) strengdir þú eitthvað svoleiðis ??

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter