föstudagur, mars 31, 2006

Enn og aftur..

komin helgi.. og í fyrsta skiptið í laaaaangan tíma veit ég ekkert hvað ég ætla gera af mér.. hvorki í kvöld eða á morgun ! og mér finnst það bara fínt :) var að hugsa um að nota kvöldið í að hafa það bara ógislega huggó ein með sjálfri mér.. kertaljós, góðan mat og jafnvel bíómynd :) og fara svo snemma að lúlla...vantar sollis kósý kvöld eftir síðustu daga. ja..eða kíkja á ball með stelpunum úr vinnunni.. finnst samt fyrri kosturinn mun líklegri ;)

Á morgun er svo bara allt opið.. kannski kíkja til ömmu og afa í heimsókn.. þau náðu þeim merkilega áfanga í dag að vera búin að vera gift í 50 ár!! og planið að fara og gefa þeim knús..og kannski bara blóm líka :) svo bara ekki hugmynd.. þannig að ef einhver veit um eitthvað skemmtilegt að gera þá bara vera í bandi...

bæjó í bili..

þriðjudagur, mars 28, 2006

Bara minna ykkur á..



að eftir 65 daga verð ég komin í þessa paradís ;)

svona ef þið voruð nokkuð búin að gleyma..

mánudagur, mars 27, 2006

tuttuguogsexííí..

Já.. þá er ég orðin 26 ára.. og búin að vera það í heilan dag :) en sem komið er bara fínt.. er ekki búin að reka augun í nein grá hár eða finna nýja hrukku ;)

Afmælisfagnaðurinn heppnaðast bara vel.. var góðmennt en fámennt.. híhí.. smá einkahúmor fyrir þá sem fatta ;) fékk 4 ammælispakka og fullt af knúsum. Og svo líka alveg rosalega sætt ammælis sms 2 mínútur yfir miðnætti :D Við sátum heima og drukkum, spjölluðum, sungum og höfðum gaman til svona rúmlega eitt þegar við tókum taxa niðrí bæ og kíktum á Hressó.. þar hitti ég ekkert voða mörg fólk sem ég þekki en sæti strákurinn sem sendi mér einmitt ammælis smsið fyrr um kvöldið var þar :) þarna sat ég og dansaði til skiptis þangað til eitthvað um 4 þegar ég trítlaði í leigubílaröðina og fór heim að lúlla.. ég skemmti mér alveg rosalega vel þetta kvöld.. takk allir sem voru memm ;)

Svo var það ammælisdagurinn sjálfur.. vaknaði þegar smsin og símtölin byrjuðu.. sem var eilla alltof snemma fyrir minn smekk :/ en samt gaman.. kúrði til að verða 2 og fór þá að gera mig reddý fyrir 100 ára ammæliskaffi til heiðurs langafa mínum sem hefði átt ammæli 29.mars ef hann væri ennþá á lífi :) þar hámaði ég í mig brauðtertur og flatkökur :) og tók á móti knúsum og kossum í tilefni þess að ég átti ammæli :D þegar ég var búin að borða nóg fór ég heim að kúra uppí sófa og borða meira :/ át svooooo mikið í gær !! kúrði bara þangað til ég fór að lúlla alveg rosa glöð með daginn minn :)

og 26 leggst mikið betur í mig í dag en það gerði á laugardaginn :)

laugardagur, mars 25, 2006

Dadaradadadadaaaa...

Þá er hann runninn upp.. síðasti dagurinn minn sem tuttuguogfimmára úber pæja ! svolítið blendnar tilfinningar í gangi..

Þegar ég var tvítug þá var planið að vera komin á þann stað í lífinu sem ég ætlaði mér að vera á þegar ég væri orðin 25.. það gekk ekki alveg upp.. ég veit ennþá ekkert hvað ég er að gera eða hvað ég ætla mér að gera þegar ég er orðin fullorðin !
Ég er nú samt á ágætis stað í lífinu.. á bestu vini í heimi.. frábæra fjölskyldu og er í fínni vinnu, og finnst mér í rauninni ekki vanta neitt.. væri kannski til í að eiga aðeins meiri pening.. og jafnvel eins og einn kærasta, er samt ekki alveg viss með það.. það endaði ekkert alltof vel síðast :( en það er fortíðin og þýðir ekki að velta sér uppúr því ! Aðeins meiri væmni.. þá var mitt 25. aldursár bara fínt.. ekkert sem ég sé eftir.. ekkert sem ég hefði viljað gera en sleppti.. sem er móttóið sko.. bara sjá eftir því sem mar gerði ekki, aldrei því sem mar gerði !

En þá að kvöldinu ;) planið er afmælisfagnaður heima hjá mér.. veit að það verður að minnsta kosti einn karlmaður þar ;) og svo 5 rosa sætar stelpur.. jafnvel 7.. og það verður alveg örugglega laveg svakalega gaman :D

ef ég fer að væla í kvöld þá verða allir að fyrirgefa mér og vera skilningsríkir.. ég átti bara alls ekki von á því að mér fyndist svona erfitt að eldast :/

miðvikudagur, mars 22, 2006

3 ár.. hvorki meira né minna !

Í dag eru komin 3 ár frá því ég byrjaði að blogga, og ég man það eins og það hefði verið í gær. Tíminn líður alltof hratt !! Fyndið að lesa gömul blogg og sjá hvað mar hefur veriðað bralla síðustu 3 árin.. ég sé að ég hef verið mjööög dugleg við djammið ;) fæ stig fyrir það.. og svo er það svo fyndið.. mar hefur verið að skrifa eitthvað sem bara nánir vinir og mar sjálfur átti að fatta en í dag þegar ég les þetta þá fatta ég bara ekki neitt !! en það er gaman að þessu.

Vikan er fín.. mánudagur var Idolglápkvöld.. ég fór reyndar bara snemma heim, var orðin alltof sybbin. Í gær fórum ég og Ellen í ljós og svo kíkti ég í dinner með Grímu :) alltaf kósý hjá okkur þegar við kíkjum út í dinner.. höfðum reyndar frá alveg ótrúlega litlu að segja í þetta skiptið.. en sátum bara saman og kíktum í blöðin :)

Í kvöld er ekkert plan.. kannski ég noti tækifærið og taki til. Á morgun er það svo klipping :D hlakka svo til.. svo er það bara helgin og þessa helgina ætla ég að halda uppá afmælið mitt ;) og ef þig langar að kíkja þá ætti það nú að vera í lagi..vertu bara í bandi ;)

mánudagur, mars 20, 2006

Sætar stelpur allt í kring..

Já þessa dagana er ég umkringd sætum stelpum.. fékk 5 sætar stelpur í heimsókn til mín á laugardagskvöldið :) og fæ eflaust annan eins skemmt næsta laugardag líka :D

Sylvía mætti til mín um hálf átta og svona voru hinar að tínast inn alveg til klukkan tíu. Eftir að við vorum búnar að borða var tekið smá singstar og bara almenn drykkju ólæti ;) Ellen og Dóra kíktu til mín í smá stund.. held að þær hafi verið alltof edrú :/ veit reyndar að Ellen var það.. svo var alveg sama hvað ég bauð Dóru mikið að koma með okkur á djammið hún gaf sig ekki og fór bara heim að lúlla.. og við húsópæjur vorum sóttar rétt yfir miðnætti af bachelor íslands og Gunnari Helga á þessum líka fína bíl.. alvöru limmi ;) ég tók með mér bubblí og við vorum þarna eins og alvöru eðalpíur rúntandi um á limma með bubblí í annarri og myndavélina í hinni ;) Eftir rúntinn fórum við á Sólon þar sem ég dansaði og dansaði þangað til mér var sagt að við værum að fara.. þá lá leiðin á Pravda þar sem ég sagði skilið við skvísurnar (þessar tvær sem voru eftir, veit ekkert hvað varð um allt hitt fólkið) og trítlaði í leigubílaröðina.

Eins og alltaf var fullt af skemmtilegu fólki í röðinni og ég eignaðist aðdáanda.. er ekki alveg viss um hvort ég kæri mig um hann.. í annað skiptið á einu ári var ég kölluð "eldri kona" !! og er ekki einu sinni orðin 26 !!!! ég var ekki að fíla þetta.. ég veit ekki hvort það er að ég er svona ellileg eða hvað !?! en þessi var alveg með það á hreinu, eins og hinn gaurinn sem kallaði mig "eldir konu" að ég gæti eflaust kennt honum eitthvað sem kæmi að góðum notum í framtíðinni.. ég sagði honum að ekki kalla stelpur..alveg sama á hvaða aldri þær eru eldri konur !! hann var ekki alveg sáttur og útskýrði fyrir mér að hann hefði verið að meina meira svona "líkamlegt eitthvað" eins og hann orðaði það.. ég hló svo mikið af honum að hann gafst fljótlega upp og spurði mig hvert í bæinn ég væri að fara og hvort við ættum að vera samfó.. þá hló ég ennþá meira.. en það kom í ljós að við vorum að fara í sömu átt og ég sparaði mér fullt af peningum með því að vera samfó honum í taxa ;) þannig að það var nú ekki alslæmt að hafa rekist á þennan unga mann þarna í röðinni. Og svo endaði kvöldið á því að ég fékk knús og koss frá sæta stráknum ;)

Þannig að kvöldið var alveg hreint frábært.. frá byrjun til enda :D

laugardagur, mars 18, 2006

Þá er komið að því..

Laugardagurinn 18. mars runninn upp og um það bil 8 klukkutímar þangað til mitt litla hús fyllist af sætum stelpum ;)

Planið í dag var að klára gera grjónréttinn fyir kvöldið.. gera skattaskýrsluna mína, ryksuga smá og taka aðens til og fara útí búð ða kaupa snittubrauð.. og þar sem ég var samkvæmt venju vöknuð um áttaleytið er ég búin að öllu þessu nema fara útí búð.. þannig að það fer bara koma að því að leggja sig og gera sig svo ennþá sætari fyrir kvöldið ;)

Hef ekkert að segja.. nema kannski að Jet black joe er á gauknum í kvöld.. það er sko ekki leiðinlegt !

fimmtudagur, mars 16, 2006

Limúsína eða limósína ??

Ekki að það skipti öllu en lítill fugl var að segja mér að allar líkur væru á að við húsógellur yrðum á rúntinum á einum sollis á laugardagskvöldið ;) ekki væri það leiðinlegt ! ég hef bara einu sinni áður á ævinni sest uppi sona tryllitæki og það var sko alls ekki leiðinlegt :)

Annars er þetta bara alveg að bresta á.. ég og Sylvía ætlum að fara versla eftir vinnu á morgun, kaupa fullt af gúmmelaði ;) planið er að hafa eina köku.. Sylvía er alveg óð í að baka marengs ;) og ég ætla gera ostasalat og kannski hrísgrjónarétt líka. MMmmm.. þetta verður æði :D

mánudagur, mars 13, 2006

Ferðasaga..


já þá er mar komin heim eftir frábæra ferð :)

Við lögðum af stað héðan úr vinnunni rétt yfir 12..komum við í ríkinu og í sjoppu og svo bara brunað af stað úr bænum.. vorum komin á Akureyri rétt yfir 17 ;) held meira að segja að klukkan hafi veið 17:13.

Byrjuðum á að kíkja niðrá FMN (Landflutningar á AKU) þar sem við hittum Villa og fengum þær fréttir að við þyrftum að vera reddí um 7 leytið. Þá var ekkert annað að gera en að drífa sig í að gera sig aðeins meira sæta ;) svo hittum við Villa á Kaffi Akureyri og þar hófst óvissukvöldið mikla.. frá Kaffi Akureyri trítluðum við yfir á veitingahús sem heitir Strikið.. ekkert smá fínn staður og maturinn og allt alveg frábært þar ! mæli hiklaust með þeim stað. Eftir matinn fórum við yfir á stað sem heitir Cafe Amor (minnir mig) og horfðum á Idolið.. mikið er ég fegin að Ingó datt út en ekki Ragnheiður eða Snorri ! Við sátum þar, drukkum og gláptum alveg þangað til við trítluðum yfir á Kaffi Akureyri þar sem var happy hour..2 fyrir 1 algjör snilld ;) drukkum og dönsuðum þar fram eftir nóttu, svaka stuð.. fórum líka á stað sem heitir Vélsmiðjan.. aldrei komið þangað áður.. þar var fólkið í eldri kantinum og ekki alveg staður fyrir mig. Svo þegar klukkan var langt gengin í 4 fórum við að tía okkur heim þar sem ég sofnaði sátt og sæl eftir alveg brilljant kvöld ;D

Á laugardeginum var svo fótboltamótið góða.. ástæðan fyrir ferðinni sko ! þar mættum við galvaskar og vorum settar í hlutverk stigavarða.. og svo var ég sett líka í að fylgjast með því hver var að skora mörk og hversu mörg.. eftir mótið var matur á Greifanum og verðlauna afhending. Þegar þarna er komið er ég nú orðin frekar þreytt og hálf asnaleg öll og ekki laust við að ég hafi fegnið pínu heimþrá.. (held það hafi samt bara verið af því að sæti strákurinn hringdi) :/ kíkti nú samt í partý og sat þar við söng og gleði til rétt yfir miðnætti þegar ég dreif mig bara heim.. sem var kannski bara ágætt þar sem ég var að keyra heim á sunnudeginum :) og við vorum komin í bæinn rétt um 4..

Þessi helgi var alveg frábær og hann Villi fær miklar þakkir fyrir ;)

núna tekur hversdagsleikin við aftur.. alveg þangað til um næstu helgi þegar það er húsóhittingur heima hjá mér ;)

föstudagur, mars 10, 2006

Akureyri here i come ;)

já.. brottför eftir 60 mín.. áætlaður komutími 17:15.. er að springa úr spenningi.. segi bara að það sé eins gott að það verði gaman !!!

fimmtudagur, mars 09, 2006

Hjartans mál..

Hafiði tekið eftir því hvernig sumt fólk nær að troðast inní hjartað manns og búa sér til alveg sérstakan stað þar jafnvel án þess að maður taki eftir.. og bara allt í einu getur mar ekki hugsað sér lífið án þess.. ég var eitthvað að velta þessu fyrir mér í gær þar sem ég lá andvaka ( sem ég þoli ekki ) og komst að því að það eru eflaust nokkrir sem eiga svona pláss í hjartanu á mér en ég á ekki svona pláss í hjartanu á þeim :/ það finnst mér alls ekki nógu gott.. og það er náttla ekkert sem ég get gert í þessu.. mar getur ekki látið einhvern finnast mar sérstakur ! og auðvitað urðu þessar vangaveltur mínar bara til þess að mér gekk ennþá verr að sofna :( þannig að núna sit ég hérna í vinnunni og velti því fyrir mér hvernig mar getur reynt að koma í veg fyrir að þetta gerist.. ætli það sé hægt ??



Að öðrum málum sem eru líka miklu skemmtilegri.. eftir sirka 31 klukkutíma verð ég komin til Akureyrar ;) er búin að gera allt nema pakka.. þannig hlutirnir ganga bara akkúrat eftir planinu sem ég gerði í byrjun vikunnar ;) Ég hlakka svo mikið til að fara.. er búin að vera springa úr spenningi alla vikuna.. þetta verður æði :D

mánudagur, mars 06, 2006

held ég sé orðin gömul !

ok.. kannski ekki gömul.. eldri... ég var nebbla að pæla í því á laugardaginn að síðustu helgar þegar ég hef farið á djammið þá hef ég yfirleitt verið komin heim um 3.. sem er svo sem alltí læ svona einu sinni en þetta er búið að gerast núna 4 helgar í röð !! og það sem er verst við þetta er að ég hefði svo sem alveg verið til í að fara fyrr heim !! kannski er ég bara loksins komin með nóg af djamminu..

Kíkti út á föstudagskvöldið.. fór á sveitaball í kópavogi ;) skemmti mér bara ágætlega.. hitti alveg nokkur fólk sem ég þekki og spjallaði fullt við sætann strák ;) ekki leiðinlegt.. var nú bara í rólegri kanntinum drakk sama og ekkert og var komin uppí rúm um hálf 4.. og eins og alvöru gamalt fólk var ég komin á fætur 6 tímum seinna.. og frá því klukkan 10 á laugardagsmorgninum til eitthvað eftir miðnætti stóð ég tvisvar uppúr sófanum í bæði skiptin til að skutla fólki hingað og þangað, annars lá ég bara las og glápti til skiptis ;) það var yndislegt. Sunnudagurinn var svipaður nema þá tókst mér nú að fara aðeins út og hitta fólk.. þá er það nú upptalið sem ég gerði um helgina.

Vikan verður með svipuðu sniði og venjulega.. idolgláp með stelpunum í kvöld.. reyna fara rukka á morgun, hugsanlega smá pynting á miðvikudaginn, fimmtudagskvöldið fer í að pakka og á föstudaginn bruna ég norður í land ;)

miðvikudagur, mars 01, 2006

solldið langt en læt það flakka..

Ég hef...

( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(x) faðmað einhvern ókunnugann
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
(x) læðst út meðan ég bjó ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
(x) verið handtekin/n
(x) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
(x) Reykt sígarettu
(x) drukkið áfengi
(x) ferðast í flugvél
(x) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) grátið svo mikið að þér finnst þú aldrei ætla að hætta
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið DEISJAVÚ
(x) dansað í tunglskininu
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið tínd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
( ) stungið Lögregluna af
( ) verið kysst undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x ) kveikt bál á ströndinni
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti
(x)kysst manneskju af gagnstæðu kyni
(x)kysst manneskju af sama kyni

Tataratatatataaaa..

Hef ekkert að segja nema...
Gleðilegan bjórdag ;)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter