alltaf gaman þegar þau láta sjá sig :) og í dag og eflaust einhverja daga í viðbót kem ég til með að svífa um á einu slíku :)
Helgin mín var alveg frábær ! gerði mest lítið á föstudaginn, var bara dunda mér heima við uppáhalds heimilisstarfið.. þvo þvott ;) fyrriparturinn á laugardeginum var með sama sniði og venjulega..smá rúntur í búðir..þvoði bílinn og eitthvað sona dútl. Svo þegar leið á kvöldið kíkti Dóra til mín..og Ingunn og vinur hennar og svo líka Gríma, við tókum hraðtrivial sem ég og Dóra rústuðum ;) fljótlega eftir það fóru Dóra, Ingunn og Þröstur niðrí bæ en ég og Gríma spjölluðum aðeins meir og svo skutlaði hún mér nirðí bæ þar sem ég hitti fólkið aftur..eða smá hluta af því. Hitti reyndar Ingunni ekkert aftur :/ veit ekki alveg hvað varð um hana. Eeenn ég hitti sæta strákinn.. og honum tókst að gera kvöldið mitt alveg..hmm.. hvað skal segja.. vil ekki vera of væmin en dásamlegt er nokkuð nálægt því :D
Sunnudagurinn var alls ekki síðri.. vaknaði og glápti á formúluna með öðru og kúrði með hinu, fór og fékk mér rúnt uppí sveit (kópavogssveitina) þar sem við keyptum kjúlla og færðum afskaplega þunnu fólki sem var mjög þakklátt. Eftir það fór ég heim og beið eftir Dóru þar sem við vorum búnar að skipuleggja menningarferð um miðbæ Reykjavíkur. Við fórum að skoða 871+ - 2 sýninguna sem er rosalega flott! mæli með því að allir kíki á hana við tækifæri, röltum líka um austurvöllinn og skoðuðum ljósmyndasýningu þar.. gaman að sjá þessar myndir.. mæli líka með því að fólk skoðið þær ;) eftir allt þetta labb ákváðum við að matur væri málið og varð victor fyrir valinu og held að Dóra sé alveg sammála mér um að sú ákvörðun er eitthvað sem við sjáum ekki eftir ;) þar sátu tveir frændur mínir, Kristján og Jóhann og vinur þeirra sem ég bara man alls ekki hvað heitir :/ við settumst hjá þeim og stóðum ekki upp fyrr en 3 eða 4 tímum seinna svo mikið var gamanið.. sátum þarna og spjölluðum um allt milli himins og jarðar og borðuðum fínan mat :)
Eftir allt þetta spjall stakk ég uppá því við Kristján (hann býr sko í kjallaranum hjá múttu og Magnúsi) að við myndum halda grill og/eða potta partý í garðinum hjá múttu fljótlega og það var eilla ákveðið að það yrði 27 maí.. svo er bara sjá hvernig veðrið verður ;)
Helgin var eins og þið sjáið..alveg æðisleg og ég verð eflaust á bleika skýinu mínu í nokkra daga í viðbót..
læv is verí gúd ;)