föstudagur, júní 30, 2006

Löbsterfestíval it is :)

Já það er ákveðið.. ég og Dóra ætlum að bruna á Höfn í fyrramálið :) þar ætlaum við að háma í okkur humar.. drekka bjór.. fara í grill og eitt stykki afmæli ;) ég get ekki sagt annað en að ég hlakki bara fullt til :)

Held að þetta verði gaman og mér veitir sko ekki af smá skemmtun eftir síðustu daga.. en núna er bara klára vinnudaginn..fara svo að versla.. fórum immitt í gær og fjárfestum í einu tjaldi í búið ;) Svo verður bara lagt af stað klukkan 9 í fyrramálið og áætlaður komutími er eitthvað uppúr 14.. mér finnst auðvitað að allir ættu að kíkja með okkur og hafa gaman :)

fimmtudagur, júní 29, 2006

Hrukkur dauðans :(

Ég held að eftir gærdaginn og daginn í dag eigi hugsi og áhyggju hrukkrnar mínar eftir að tvöfaldast..jafnvel þrefaldast :( og ég er ekki sátt !!
vil ekki verða hrukkótt gömul kona með stóran áhyggjuböggul á bakinu...

Karlmenn.. hvað er málið ! það skal enginn segja að ég sé ekki þolinmóð eða skilningsrík..

Er helling pirri pú og kemur að því alveg rétt strax að ég gefst upp !
skil ekki hvers vegna í ósköpunum þetta þarf að vera svona flókið !! ekki sanngjarnt ! og ég á skilið að heimurinn sé sanngjarn við mig !! Og ekki má gleyma að ég er með viðurkenningu frá karlmanni um að ég sé algerlega vesenisfrí !

Er bara frekar pirri pú.. frekar sár og bara alls ekki nógu sátt.. og hana nú!!

mánudagur, júní 26, 2006

ekki hægt að kvarta..

Nei get ekki sagt annað en að lífið sé bara nokkuð gott um þessar mundir. Fór í brúðkaup um helgina og það var engin önnur en Skvísellan sem gifti sig :) og allt bara alveg æðislegt um það að segja.. athöfnin var mjög falleg, veislan svaka skemmtileg, maturinn svaka góður og allar ræður mátulega væmnar og mátulega fyndnar.. hvað getur mar beðið um meira !
Eftir allt þetta fórum við gleðikonur heim til mín í smá singstar og Buzz. Kíktum svo í bæinn.. reyndar bara ég, Ellen og Dóru (Olga fór heim að lúlla) trítluðum á Hressó þar sem ég og Dóra dönsuðum þangað til það var farið að rjúka úr skónum okkar ;) Ellen var eitthvað ekki alveg í jafn miklu dansi stuði :( fórum smá á amster.. eilla bara til að súpa eitt vatnsglas og svo bara heim :) skemmti mér ekkert smá vel og var alveg búin á því í gær.. íllt í fótunum, með hausverk frá helv... og mallinn á mér ekkert sáttur en allt var þetta þess virði ;D

Veit ekkert hvort þau lesa þetta.. langar samt að óska þeim nýgiftu alveg rosalega mikið til hamingju og veit að þau eiga eftir að vera svakalega happý saman ;)

En þá fer að líða að hestamóti eða humarhátíð.. er ekki ennþá búin að ákveða alveg hvort verður fyrir valinu, geri það í vikunni. Svo er ekki langt í að við pæjur förum á Akureyri í frí ;) hlakka til..

fimmtudagur, júní 22, 2006

Sumarið er tíminn..

einhversstaðar er sungið um það hvernig sumarið sé tíminn og ég er alveg á því að það sé bara rétt... tíminn til að vera endalaust að leika sér, hafa gaman og eyða tímanum með vinum sínum ;) og ég er einmitt búin að vera alveg svakalega dugleg við að gera akkúrat það.. reyndar alveg nokkrir vinir sem ég hefði viljað hitta meir en hef nægan tíma til þess næstu vikur ;)

Eins og ég sagði ykkur um daginn var ég svaka dugleg helgina eftir að ég kom heim að gera eitthvað og var bara varla búin að sofa þegar helgin var búin og ég hef sko ekkert slakað á, á mánudaginn fórum ég og Dóra að fá okkur að borða og fórum svo í ísbíltúr..mMMmmmmMm.. íííss.. á þriðjudaginn gerði ég reyndar ekki neitt voða mikið en fór samt alls ekki nógu snemma að lúlla :/ og svo í gær fór ég í ammæli eftir vinnu og sund eftir ammæli ;) og svo smá rúnt eftir sundið. Þetta er búið að vera alveg brilljant og ég hlakka bara til að þetta verði svona áfram ;) eini gallinn er að ég er orðin sooo þreytt :( hef ekki farið snemma að sofa síðan ég veit ekki alveg hvenar :/ en mar er ungur og getur sofið þegar mar verður gamall ;)

Verð líka að segja ykkur... er að fara í klippingu á eftir :D verð ekkert smá sæt eftir það..

mánudagur, júní 19, 2006

nóg að gera..

Líður solldið eins það séu margar vikur síðan ég kom heim er nebbla búin að vera so dugleg að gera fullt :D

Ætla samt að byrja á að segja ykkur frá ferðinni minni.. ég hafði það alveg svakalega gott.. slappaði endalaust mikið af, keypti mér alveg nokkur föt og varð pínu brún ;) í stuttu máli var þetta allt..en alveg æðislegt ;)

Svo kom ég heim á fimmtudaginn.. lenti um hádegi og var þá búin að vera vakandi síðan klukkan 3 um nóttina og orðin pínu þreytt :/ þurfti svo að byrja á því að fara niðrí símabúð að fá nýtt kort, þegar það var komið dreif ég mig heim og reyndi að leggja mig svo ég yrði nú hress um kvöldið ;)
það tókst ekkert voða vel..lá bara og bylti mér í klukkutíma :/ reif mig á lappir og hringdi í Dóru sem segir mér að við séum að fara hittast klukkan 18 (klukkan var korter í ) og hvort ég hafi ekki vitað það.. þá var ekkert annað að gera en að drífa sig bara í sturtu og henda sér í föt. Dóra kom svo og sótti mig, við komum aðeins við í ríkinu og svo hófst gleðin ;) við komum uppí árbæ þar sem tók á móti okkur svakalega góð matarlykt og svaka sæt Ellen sem var að elda ;) Teddy og Dísella komu svo aðeins á eftir mér og við borðuðum þessa líka rosa góðu humarsúpu :þ (hún var sko alveg æði Ellen ;) takk ) og drukkum hvítt vín og létum eins og bjánar..
Eftir að hafa látið eins og bjánar í smá tíma fórum við niðrá victor þar sem við vorum svo til að verða 2.. verð að þakka strákunum Matta, Pétri og Einari fyrir alveg brilljant kvöld.. alltaf hægt að treysta á þá ;) þegar við vorum beðin um að fara af victor trítluðum við nokkur uppá Bergstaðastræti þar sem tók við meiri gleði og aðeins meiri vitleysa.. held að klukkan hafi verið langt gengin í 7 þegar gleðin tók enda. Þá var ekkert annað að gera en að fara lúlla áður en mar átti svo að mæta í vinnu eftir smá stund :(

Föstudagur var dagur mikillar þreytu og þynnku :/ en þess virði og ég náttla svoddan hörkupæja að þetta var ekki mikið mál ;) kvöldið fór svo í að ganga frá og taka til eftir útlanda draslið..

Laugardagurinn var rólegur framan af, kíkti aðeins til Dóru.. lenti í smá ævintýri þar.. varð rafmagnslaus :/ en mar lætur ekki sollis stoppa sig mjög lengi, startköplum reddað og Marteinn kominn í gang eftir smá ;) kíkti við hjá Ellen í eitt mjög stutt augnablik og fór svo heim að taka meira til og horfa á fótbolta ;) tók svo þá ákvörðun að það þýddi ekki að hanga heima á laugardagskvöldi að gera ekkert þannig að ég dreif mig að hitta Dóru sem var heima hjá Anítu að fá sér bjór. Við kíktum svo í bæinn, dönsuðum, drukkum og ég skemmti mér bara svaka vel ;) urðum samt að fara snemma heim vegna þess að á sunnudaginn var komið að því að gæsa Dísellu :D þannig að við (ég og Dóra) fórum heim um 4 og vorum að sjálfsögðu vaknaðar á réttum tíma, svaka hressar og til í hvað sem er ;)

Þá er komið að gæsuninni.. þetta var æðislegt !!! já segi það bara aftur ÆÐISLEGT!! við hittumst heima hjá Þórunni (systir hennar Dísellu) vorum örugglega svona 12 og tókum svo á móti Dísellunni með ópum og öskrum þegar hún kom inn alveg klúless um hvað var um að vera ;) (hún hélt sko að hún væri að fara veiða með systir sinni og mági..híhí) viðbrögðin voru æði.. henni brá svo mikið að hún eilla bara fraus og snéri svo bara við og ætlaði bara fara aftur út. Eftir að allir voru búnir að jafna sig á sjokkinu og sulla í sig einni mímósu var farið út í pikknikk :) þangað kom Sigríður Klingenberg, hún er sko one of a kind ! hún spáði fyrir okkur öllum með svona talnaspeki og kenndi okkur svo að spá í bolla.. og auðvitað fullt af spjalli og mar fékk svör við allskonar dóti sem er eitthvað búið að vera veltast um í hausnum á manni ;) eftir þetta fórum við í keilu, ég sökkaði alltof mikið :( ætla fara æfa mig !! svo tókum við bara smá rúnt á litla rútlingnum og enduðum svo aftur heima hjá Þórunni þar sem beið okkar svaka veisla.. grísk veisla ;) alveg rosalega gott !! fljótlega eftir matinn var ég orðin ansi þreytt enda ekki búin að sofa nema einhverja 9 tíma síðan á miðvikudaginn :/ þannig að ég dreif mig heim eftir æðislegan dag :D

svo er framundan, brúðkaup, fullt af keilu æfingum, mögulega ferð á Höfn, kannski hestamót og Akureyri.. og þetta er fyrir utan allt þetta venjulega sem mar gerir á sumrin !! eins og þið sjáið er mar bara frekar bizzí næstu vikurnar ;)

föstudagur, júní 16, 2006

Komin heim :)

Já ég er komin aftur á litla íslandið :) og er bara kát með það.. ætlaði að blogga voða mikið það er bara alltof mikið að gera í þessari vinnu minni :/ verð að gera það seinna..

mánudagur, júní 12, 2006

alveg ad koma..

tha er farid ad styttast i ad eg komi heim a klakann.. og hlakka bara til :) utlondin eru fin en mer finnst alltaf heima best :) mar faer fljott leid a ad gera ekki neitt i marga daga i rod.. eg er senst buin ad liggja i leti..solbadi, sem virkar ekki neitt :( eg bara virdist ekki hafa i mer "adverdabrun" genid :/ og svo audda versla sma.. samt ekkert mikid.

Hef svo sem ekkert i frettum nema ad simanum minum var stolid :( buhuhuu.. thannig ad.. nuna verda allir ad senda mer numerid sitt.. ef folk vildi annadhvort senda mer bara meil a atgneb@hotmail.com eda bara a sms, en thad ma tha alls ekki vera fyrr en a seinnipartinn a fimmtudaginn thegar eg verd buin ad fa nyja kortid mitt :) og eg verd med sama numer (847-4440) thaetti mjog vaent um ef allir vaeru til i thetta :) svo eg geti nu hringt einhvern timan i ykkur ;)

En ja.. eg kem senst heim a fimmtudaginn.. og aetti ad vera komin i fullt fjor bara strax um thrjuleytid, med sima og allt ;)

Segi bara baejo i bili og hlakka mikid til ad fa fullt af meilum med numerum.. og svo audda smsum seinnipartinn a fimmtudaginn ;)

þriðjudagur, júní 06, 2006

Kvedja fra Spani :)

Hallohallo.. eda hola, eins og mar segir vist herna i utlandinu :) ja her er eg i utlandinu med enga islenska stafi :( thessir spaensku verda bara duga. Ferdasagan hingad til er svo sem ekki merkileg.. friid mitt byrjadi alls ekki vel.. eg kom til utlanda ekkert sma happy med ad vera loksins komin og tha finnst ekki taskan min !! og eg var sem sagt fyrsta solarhringinn a spani bara i somu fotunum og eg for fra islandinu i.. ekki mjog skemmtilegt thar sem thad er adeins heitara herna en heima :/ thegar eg var buin ad jafna mig adeins a thessu og vid komin i husid sem mutta og Magnus eiga var ekkert rafmagn! sem thyddi audvitad engin ljos og ekki neitt.. og audvitad komid kvold og vid saum bara ekki neitt :/ og eyddum kvoldinu vid mjog romantiska farsimalysingu og volgan bjor :) en thetta vard allt miklu betra strax morgunin eftir thegar rafmanginu var reddad og svo vard allt gott thegar saeti italski strakurinn kom med toskuna mina seinnipartinn og eg gat skipt um fot :) hef ekki meir ad segja i bili.. bid rosa vel ad heilsa heim til islands og vona ad allir hafi tad gott :D

baejo i bili

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter