Halló halló.. þá er mar komin aftur í borg óttans eftir helgi á Höfn og mikið svakalega var skemmtilegt :D
Við Dóra lögðum af stað í ródtrippið okkar stundvíslega klukkan 9 á laugardagsmorgun og vorum komnar á Höfn klukkan 14:05.. þá var nýja fína tjaldinu skellt upp, búið um og svo farið að hitta krakkana sem voru að fá sér að borða þarna rétt hjá. Kíktum í smá heimsókn til ammælisbarnsins (fengum æðislega góða humarsúpu !!) tókum svo smá labbitúr um bryggjuna og drifum okkur svo uppí fína tjaldið þar sem fyrsti bjórinn var opnaður ;) Þá tók við smá stelpuvesen, gera sig sætari fyrir kvöldið.. svo var bara farið í ammæli þar sem beið okkar fuuulllt af mat og áfengi.. ég smakkaði í fyrsta skipti þetta kvöld dádýr.. það var alveg gott en fékk svakalegt samviskubit yfir því að hafa verið að borða Bamba :( það var líka humar og skötuselur..mmm ekkert smá gott ! svo var allskonar pasta og bara svona venjulegt grillkjöt, sem sagt svaka veisla ! þarna var svo spilað á gítar, sungið, spilað kubb, dansað, spjallað, drukkið og borðað langt fram eftir ;)
Skelltum okkur svo á alvöru sveitaball í íþróttahúsinu þar sem Á móti sól var að spila. Þetta ball var með þeim skemmtilegri sem ég hef farið á.. en það er eilla bara henni Dóru að þakka.. hún missti sig í dansgleðinni og sló gjörsamlega í gegn.. það er ekki hægt að lýsa þessu með neinum orðum.. en ég lá á tímabili í gólfinu vegna þess að ég gat ekki staðið í lappirnar af hlátri ! Dóra þetta var ÆÐISLEGT! en eftir allan þennan dans þá var mar nú orðin ansi sveittur og hvað er þá betra en að fá sér sund sprett í sjónum?? það fannst mér og Dóru allavegana alveg svakalega góð hugmynd.. en engum öðrum :( þannig að við fórum bara heim í tjald og hlógum alveg svakalega mikið bæði á leiðinni heim og þegar við vorum komnar.. veit ekki alveg að hverju við vorum að hlægja en mikið svakalega var þetta gaman !
Viðurkenni alveg að heilsan var ekki góð þegar ég vaknaði á sunnudeginum og skánaði ekkert þegar ég mundi að ég hafði drukkið hálfa brennivín dræ !! úff púff.. en mar er nú orðin ýmsu vön þannig það var bara rifið sig á lappir og farið og fengið sér að borða. Þar hittum við Hauk og Kristján sem höfðu komið um nóttina og við sátum og spjölluðum heillengi ákváðum svo að fara á smá rúnt um bæinn, sá rúntur endaði svo með því að það var ákveðið að fara í þórsmörk á leiðinni heim.. Dóra hafði sko aldrei komið þangað ! Eftir stuttan bíltúr um næsta nágrenni Hafnar, fórum meðal annars upp að Almannaskarði..keyrðum í gegnum göngin og fórum þarna upp á einhvern útsýnispall, ekkert smá flott ! Þá var bara brunað af stað í þórsmörk.. reyndar með stoppi á Jökulsárlóni, Þjóðgarðinum Skaftafellli og bensín stoppi í Fagurhólsmýri. Marteini var svo bara lagt við afleggjarann, við hoppuðum uppí bíl til strákanna og við tók rallýakstur inní mörkina.. þar komumst við öll í einstaklega mikla nánd við náttúruna (híhí..smá einkahúmor) . Þessi þórsmerkur verður án efa sú eftirminnilegast af þeim sem ég hef farið í hingað til :) Þegar við vorum búin að komast í tengls við náttúruna héldum við áfram á Hvolsvöll fegnum okkur smá að borða og svo bara brunað heim.
Þessi ferð var alveg svakalega skemmtileg :D fór á marga staði sem eru alveg svakalega fallegir og var með einstaklega skemmtilegu fólki.. þetta var ÆÐISLEGT!!