fimmtudagur, september 28, 2006

*stóóórt kraftakonu öskur*

Játs.. það er sko engin tjelling hér á ferð.. ónei.. mætti á æfingu þrátt fyrir úbersúper hassssperur dauðanz og lyfti lóðum, tók armbeygjur, gerði magaæfingar og skokkaði smá hring.. (oggu pínu hring á bootcamp mælikvarða) úúújjééé ;) er sko alveg ánægð með sjálfa mig og ætla bara vera það í smá tíma :) finnst ég algjör hetja..

Boot Camp kvíði :/

Óhætt að segja að mannskapurinn sé ekki alveg uppá sitt besta í dag.. allir sem ég hef hitt í dag, af þeim sem eru með mér í geðveikinni.. eru hreint út að drepast í skrokknum og ég engin undantekning þar á :( held í alvörunni að ég hafi aldrei fengið jafn slæmar hassssperur.. í hvert einasta skipti sem ég var eitthvað snúa mér í nótt vaknaði ég útaf verkjum.. og átti svo í mestu erfiðleikum með að komast fram úr og klæða mig.. og það versta við þetta ástand er að það er æfing í kvöld !!

Er komin með nettan hnút í magan sem á eflaust bara eftir að stækka eftir því sem líður á daginn.

Veit ekki hvort ég meika að fara á æfingu í þessu ástandi.. en get ekki verið kelling ekki mætt !! þannig að...

Ef einhver er með skothelda og úber fljótlega leið til að losna við eða bara minnka hasssperur dauðanz þá er sá aðili beðinn um að hafa samband ASAP !!

þriðjudagur, september 26, 2006

Bootcamp brjálæði..

já.. get sko ekki sagt annað en að þetta sé eiginlega bara geðveiki þetta bootcamp ! en geðveiki getur verið skemmtileg í réttu magni ;) og þetta er immitt þannig geðveiki..skemmtileg

Var í þriðja tímanum núna í kvöld.. og men ó men hvað þessi tími var erfiður !!

Í þetta skiptið byrjuðum við á að para okkur saman.. tveir og tveir.. og á meðan annar hoppaði saman og sundur með fætur og hendur (svona eins og mar gerði í leikfimi þegar mar var lítill), heitir jumping jacks á útlensku.. veit ekki hvað þetta er kallað á móðurmálinu, þá átti hinn að hlaupa niður og upp stigann ( 3 hæðir) og svo var skipt... mar þurfti sem sagt að fara 5 sinnum í stigann og alltaf eitthvað nýtt hopp á milli..
þegar þetta var búið fengum við smá vatnspásu.. svo var hvíldarstaða 3 ( sitja uppvið vegg með lappirnar í 90° og hendur á hnakka) og henni þurftum við að halda á meðan félaginn fór 3 ferðir um salinn í svona risa skrefum.. ææ þið fattið mig.. tvær umferðir af þessu. Svo okkur til mikillar ánægju fórum við út að hlaupa og gera fleiri æfingar alveg spes hannaðar til að láta læra og kálfa vöðvana loga !!
heirru ég er að gleyma öllum armbeygjunum.. áttum að gera 30 stykki og gefa félaganum "five" alltaf á milli ! úff púff.. það var erfitt. Held að ég sé búin að segja ykkur frá öllu.. nei.. gerðum örugglega svona hátt í 200 magaæfingar..þá er það komið.. segi það bara aftur men ó men þetta var erfiður tími !

Samt alveg ótrúlegt hvað manni líður vel í skrokknum eftir á.. það er tilfinning sem gerir allt þetta brjálæði þess virði ;)

það verður nú samt eitt af litlu kraftaverkum lífsins ef mér tekst að standa upp úr rúminu í fyrramálið :/

mánudagur, september 25, 2006

Eins og sálin segir..

Það rofar tiiiiil iiinnnnííí mér.. já.. get ekki annað sagt en að mér líði bara mun betur en í gær :) kannski var lausnin á þessu einfaldlega að segja einhverjum frá því hvernig mér leið.. það er oft svo miklu betra en að halda hlutunum fyrir sjálfan sig. Hef ekkert meir að segja.. vildi bara láta ykkur vita

og já.. Takk Ellen og Pétur.. alltaf gott að vita að mar er ekki einn í heiminum ;)

sunnudagur, september 24, 2006

ein í heiminum :(

já.. er solldið búin að vera upplifa þá tilfinningu undanfarna daga.. finnst það ekki gott :( held barasta að þetta sé sú tilfinning sem er í minnstu uppáhaldi hjá mér, það versta við þetta er að ég virðist ekki getað losnað við hana.. sem er ekki gott :( það er ekki gott að líða ílla..

ætlaði líka voða mikið að segja ykkur frá tíma nr 2 í bootcamp.. er bara ekki í alveg í stuði núna.. í stuttu máli.. ógó erfitt en alveg rosalega skemmtilegt og ég var algjör hetja ;)

föstudagur, september 22, 2006

one down, thirteen to go ;)

Já.. fyrsti tíminn í bootcamp búinn og ég lifði af ;) vúhúúú

þetta var alveg svakalega erfitt og líka rosalega skemmtilegt..svo líður manni svooooo vel eftir á :D við mættum þarna reddý í hvað sem er og jújú.. vorum látin hlaupa upp og niður stigana í húsinu 3svar sinnum, vissi ekki að það væru 5 hæðir í þessu húsi !! úff.. það var erfitt ! þegar það var búið þá voru það armbeygjur úti og okkur var kennd hvíldarstaða 1 sem er armbeygjustaða (halda sér uppi á höndunum) svo byrjuðu hlaupin aftur..ómg ! hélt þá að ég mundi deyja.. hlupum þarna um bílastæðið 3 ferðir svo meiri armbeygjur og svo inn aftur og auðvitað látin hlaupa upp stigann, inní sal tóku svo við endalausar armbeygjur, "froskahopp" og magaæfingar..og fengum líka að vita hverjar hinar 3 hvíldarstöðurnar eru.. og get sagt ykkur það að það er sko engin hvíld í þessum stöðum !! þá held ég að það sem upptalið sem við gerðum í gær. Þetta var eins og áður sagði.. svakalega erfitt en alveg rosalega skemmtilegt ;) og ef ég held þetta út í skiptin sem eftir eru þá verð ég alveg örugglega komin vel á veg með að verða svaka fitt.. sem er jú á endanum takmarkið :)

fimmtudagur, september 21, 2006

pirripú og vit-leysa..

Áður en ég segi ykkur hvað er í fréttum verð ég að fá að hella úr skálum pirripúsins.. það er alveg óþolandi að vera vinna með fólki sem er endalaust mikið frá vinnu ! ég veit alveg að fólk verður lasið, þarf að fá frí, skjótast til læknis og allt þetta og finnst það bara alltí læ.. ég vil alveg geta gert alla þessa hluti.. EN.. af síðustu 19 virkum dögum hefur ein af vinnufélögum mínum unnið 1 heilan dag..já þið lásuð rétt EINN !! og ástæðan frí, læknaheimsóknir og jú.. veikindi.. þetta getur ekki verið eðlilegt.. og leiðir bara af sér pirring hjá okkur sem þurfum að taka á okkur meiri vinnu útaf öllum þessum fjarvistum og ekki bara útí þennan einstakling sem mætir svona ílla heldur líka yfirmanninn..hvað er hún að pæla að gefa einhverjum frí í 3 vikur í byrjun sept.. þegar allir sumarstarfsmenn eru hættir !! og afhverju er ekkert gert í öllum þessum fjarvistum ?!! þetta er sko nebbla ekkert í fyrsta skiptið sem eitthvað svona gerist og verður eflaust ekki í það síðasta heldur.. finnst þetta algjörlega fáránlegt að þetta skuli vera látið viðgangast ! og hananú !! aaaahhhhh... mm.. finn hvernig pirripúið er að fara..

En nú að öllu merkilegri málum.. hvað haldiði að ég sé að fara gera eftir vinnu ?? einhverntíman í síðustu viku missti ég vitið.. og í þessari vit-leysu minni skráði ég mig í 5 vikna bootcamp námskeið. Veit ekkert hvað ég var að hugsa og hvernig í ósköpunum ég ætla fara að því að lifa þetta af :/ fyrsti tíminn er sem sagt í kvöld.. eða fyrsti "alvöru" tíminn fórum sko á þriðjudaginn í mælingar og smá kynningu á þessu batteríi.. en þannig að á morgun verð ég eflaust alveg gjörsamlega í klessu.. bið því alla um að senda mér hetju strauma ;) og vona að ég þurfi ekki á læknishjálp eða einhversskonar sálfræðingi að halda eftir þetta. Kosturinn er samt sá að ef ég lifi þetta af þá hlýt ég að verða alveg svakalega fitt og flott eftir 5 vikur ;)

mánudagur, september 18, 2006

Mondeimondei..lalalaaaa

Mánudagar... flestum finnast mánudagar leiðinlegustu dagar vikunnar.. en ekki mér, mér finnst mánudagar bara ágætis dagar.. kannski er það eitthvað tengt því að á mánudögum er yfirleitt rólegt í vinnunni minni..eða kannski er það bara af því að ég er pínu skrýtin !

Helgin var góð.. tvær ástæður fyrir því, í fyrsta sæti er að ég fékk loksins loksins eftir alltof langan tíma að hitta vinkonur mínar aftur :) var búin að sakna þeirra.. og seinni ástæðan.. ég eyddi heilmiklum tíma í að gera ekki neitt.. finnst það alltaf yndislegt.. sérstaklega þegar vinnuvikan hefur verið hálfleiðinleg :( Þetta er nú allt sem er í fréttum í þetta skiptið.. ekki merkilegt..ég veit

En þegar líður á haustið kem ég til með að hafa meira að skemmtilegt að segja ykkur frá..lofa.

föstudagur, september 15, 2006

helgarfrí..og glæfraakstur..

Já.. helgarfrí.. mmm.. elska það :) ekki meir um að segja..

eenn.. hvet alla til að kíkja HINGAÐ inn og taka þátt í þessu átaki.. vil ekki lesa um enn eitt banaslysið í umferðinni sem má rekja til þess að fólk er að keyra eins og bjánar. Það er hægt að gera eitthvað í þessu ef allir taka höndum saman..

miðvikudagur, september 13, 2006

heil vika..

Játs..er búin að vera mömmast núna í heila viku ! og viðurkenni fúslega að ég ber mikla virðingu fyrir einstæðum foreldrum.. þetta er ekkert auðvelt.. og hvað þá að gera þetta alla daga alltaf ! aldrei pása og aldrei almennilegt frí ! mömmur og pabbar þessa heims eru hetjur ! Núna er bara vika eftir hjá okkur systrum og höfðum hugsað okkur að halda uppá það með því að fara útað borða á morgun.. vitum ekki hvað við ætlum að borða.. en það verður eitthvað gott :)

Annars er ekki mikið að frétta af mér.. en svo sem nóg framundan.. reyndar ekkert planað næstu helgi.. en 22. sept skilst mér að það sé keilumót niðrí vinnu, kannski mar skrái sig í það.. svo fékk ég boð í nokkursskonar rejúníon í gær það á að vera 23.sept.. en þá á einmitt líka Kata frænka afmæli ;) svo 30.sept. er mér boðið í afmæli í Keflavík hjá Lindu húsópæju.. þannig að það er nóg að gera alltaf.. manni leiðist þá ekki á meðan ;)

Og já.. var næstum búin að gleyma!! loksins loksins ég er alveg að fara fá vinkonur mínar heimtar aftur í húsóhelju !! oohh.. ég verð svooo glöð þegar þessi vitleysa er búin.. held að það sé rétt hjá mér að nýja búðin opni á laugardaginn þannig að þær ættu að vera orðnar tilbúnar útí lífið aftur á kannski mánudag.. það er ef ég gef þeim sunnudaginn til að hvíla sig eftir allt erfiðið ;) sjáum nú samt bara til með það.. orðið alltof langt síðan ég sá þær ! isss...



breytti líka um myndir í albúminu.. kominn tími til ;)

mánudagur, september 11, 2006

11.September

Já.. fimm ár.. tíminn er fljótur að líða.. hef ekkert um þetta að segja nema að mér finnst að öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir ! hvernig sem fólk er á litinn eða á hvað það trúir.. það er okkur öllum sem búum á þessari jörð til góða.

sunnudagur, september 10, 2006

Mmmm.. sunnudagar..

já sunnudagar geta verið alveg yndislegir..og þessi var einn af þeim :) svaf frameftir..fékk mér góðan morgunmat beint úr bakaríinu og lá svo í leti og gerði ekkert þangað til í fór í mat til ömmu og hámaði í mig lambalæri :) já.. sunnudagar geta verið alveg yndislegir..

laugardagur, september 09, 2006

Sálarsjúk..?

Haldiði að mar hafi ekki skellt sér á enn eitt sálarballi í gær.. mikið var gaman :) en fór að pæla.. þetta var í 4 skiptið á 6 vikum sem ég fer á sálina ! haldiði að það geti verið að ég sé sálarsjúk ?? það er bara svooo gaman á böllum með þessu bandi... þeir bara klikka ekki !

Kvöldið byrjaði nú samt á að ég fór útað borða með húsópæjunum á Madonnu.. rosa góður matur og alls ekki verri félagsskapur ;) Eftir matinn kíkti ég til Láru og við skelltum okkur á ball ;) dansaði af mér allavegana 1/4 af rassinum mínum og hitti skemmtilegt fólk.. þar á meðal Katrínu sem er alltof langt síðan ég hitti á djamminu ! Var samt bara stillt stelpa og fór heim að lúlla eftir ball.. kvöldið í kvöld er ekki alveg komið á hreint en hugsa að það endi með sveitaballi í kópavoginum.

miðvikudagur, september 06, 2006

Miðvikudagur til..

held það eigi að vera til moldar.. en er ekki alveg viss.. og veit heldur ekkert hvað það þýðir þannig að ég ætla bara segja *geeeeeiiiisp* fór alltof seint að sofa miðað við hvað ég vaknaði snemma.. keyrði mömmu og Magnús útá völl í morgun, þau ætla vera í útlöndum næstu 2 vikurnar og á meðan ætla ég að "flytja" aftur í Rauðagerðið og hafa auga með litlu systir.

Annars er heilmikið um að vera framundan.. næsta helgi verður bissi bissi.. er að fara útað borða með húsópæjunum á föstudagskvöldið, svo jafnvel kíkja á sálarball.. ætla geyma það bakvið eyrað.. svo á laugardaginn er það annaðhvort haustfundur hérna í vinnunni (sem er sko frá kl 10-23.. solldið langt) eða kíkja á ball með Láru og Valdísi.. hugsa nú að ég endi á sveitaballi í kópavogi hvað sem ég geri..nema náttla ég geri bara ekkert og verði heima hjá mér..ekki líklegt.

föstudagur, september 01, 2006

Fólk getur verið svoo mikið fíbbll !

Ójá.. það er nú ekki oft sem ég kvarta og kveina hérna á þessu bloggi mínu..en eftir þennan dag get ég ekki annað en deilt með ykkur hvað fólk getur verið dónalegt, á eilla bara ekki til orð, ætla ekki útí nein smáatriði..skulum bara segja að þessi dagur verður þurrkaður útúr minnisbankanum hið fyrsta.. en að öðrum mun skemmtilegri málum.. það er komin helgi !! þarf ekki að hitta neitt dónlegt, ruddalegt, leiðinlegt eða ílla lyktandi fólk aftur í heila 2 daga :D vúhú fyrir því ;)
Ætla reyndar ekki að gera neitt merkilegt um helgina.. bara njóta þess að vera í fríi og jafnvel fá mér einn eða tvo bjóra ;)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter