Stundum of mikið.. en það reddast
Jæja.. þá er bakið farið aftur :( ég sem hélt að bootcampið væri allra meina bót.. svo er víst ekki.
Í nokkra daga er ég búin að vera drepast í bakinu.. alveg með stöðugan sting í mjóbakinu og hann er ekkert að lagast :( fór til sjúkraþjálfara á föstudaginn og úff.. sú læt mig aldeilis heyra það !! spurði hvort ég væri algjörlega búin að missi vitið.. ég hélt nú ekki og spurði hvort væri skárra að vera í bootcampinu eða gera ekkert.. þá viðurkenndi hún að bootcamp væri skárra en að liggja heima í leti alla daga, benti mér líka á að það væri eitthvað til sem heitir "millivegur" og las svo aðeins meira yfir mér. Ég læt það ekki stoppa mig.. kannski aðeins hægja á mér, verð víst að fara sætta mig við að ég get ekki lengur gert allt sem mig langar til án þess að það hafi einhverjar afleiðingar :( og yfirleitt ekki góðar.
Fyrir utan þetta vesen er allt gott af mér að frétta ;) kíkti í bíó á föstudaginn, fór að sjá mýrina.. mæli með henni alveg hiklaust, var rosa góð. Á laugardaginn kíkti ég smá út á lífið, var nú bara stillt og áfengisdrykkja og ólæti í algjöru lágmarki. Sunnudagurinn var eins og sunnudagar eiga að vera, rólegheit allan daginn :)
Svo er Villibráðin næstu helgi :P hlakka til.. hef aldrei farið á svona hlaðborð og er solldið spennt að smakka allan þennan mat. Eina villibráðin sem ég hef smakkað er hreindýr (það var fyrir tæpum 10 árum) og svo dádýr núna í sumar, held þá að það sé upptalið. Vona bara að ég verði orðin eitthvað betri í bakinu svo ég njóti þess nú eitthvað að sitja og borða svona mikið :p



