miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Beeezzzt í heimi..

Loksins komnar myndir af góða matnum ;)

Forréttirnir :)








Aðalréttirnir :)










Og eftirréttirnir :)




Girnó ekki satt ??



þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Ammælis stelpa..

Í dag og hún Ellen afmæli, er að vera 27 ára ung :) Til hamingju með afmælið dúllan mín ;D

mánudagur, febrúar 26, 2007

Já.. það greinilega virkar ekkert annað en að æpa á fólk til að fá það til að commenta ! þannig að ég sé mig tilneydda til að byrja öll blogg í nánustu framtíð á nákvæmlega því..

Hjá mér er annars ekki mikið í fréttum, fullt að gerast í hausnum á mér.. átti nebbla ágætis spjall við gamlan vin um helgina sem gerði voða lítið annað en að ég áttaði mig á því hversu svakalega mikið ég hafði saknað hans.. sem er kannski bæði gott og vont.

Gott af því við gátum sagt hluti við hvort annað sem við bæði höfðum gott af því að losna við og heyra frá hvort öðru og ég áttaði mig á því að þarna hafði var einn af þeim allra bestu vinum sem ég kem til með að eignast um ævina.

Vont af því að sumt af því sem var sagt voru hlutir sem ég var ekki endilega tilbúin að heyra og veit ekki alveg hvað ég á að gera við :/ og það sem er verst við þetta allt er að eins og aðstæður eru í dag þá getum ég og þessi manneskja ekki leyft okkur að vera svona góðir vinir. Það finnst mér sárt. Vissi alveg að ég hefði þarna tapað góðum vini á sínum tíma.. gerði mér bara ekki grein fyrr en hversu mikið ég saknaði þessarar vináttu fyrr en í gær..

föstudagur, febrúar 23, 2007

Ekki nógu gott !

Jæja.. nú fer ég fram á útskýringar á því afhverju ekki nema 2 af þessum sirka 60 manns sem kíkja hérna við á hverjum degi hvorki commenta eða kvitta í gestabók ??!!??

Annars er bara fullt að gera.. matarboð í kvöld hjá Benný frænku :) hlakka rosa til.. maturinn verður örugglega æðislegur (var sko hjá henni í gær að undirbúa) og svo verða þarna nánast allir ættingjar mínir pabbamegin og það fólk hitti ég alltof sjaldan ! Svo á morgun er fullt af fólki að koma frá Akureyri á fótboltamót sem er hérna niðrí vinnu og mér skilst að planið sé svo að kíkja á Sálina.. sem mér finnst bara alls ekki leiðinlegt.. ónei !! hlakka líka rosalega til þá. Ellen var líka að pæla í að gera eitthvað á morgun sem skemmir alls ekki fyrir ;) og held meira segja að Dóra sé líka að fara eitthvað út :) Það er gaman að vera ungur og leika sér ;)

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

fram og tilbaka

Ég var spurð að því um helgina hvort að ég ætlaði nú ekki að fara ná mér í kærasta.. þetta er nú svo sem ekkert í fyrsta skiptið sem ég er spurð að þessu á síðustu 2 árum en í þetta skiptið ,eftir að ég sagði "niiii.. held ekki", þá var ég spurð að því hvort ég hefði í alvörunni verið særð það ílla að ég ætlaði aldrei aftur að treysta nokkrum manni fyrir litla hjartanu mínu. Ég get ekki neitað því að ég varð frekar hissa og þessi lína hefur eiginlega ekki farið úr hausnum á mér síðan.. ætli það sé málið.. veit alveg að ég á frekar erfitt með að læra að treysta fólki og það hefur ekki nema að litlum hluta til með það að gera hvernig samband mitt við minn fyrrverandi endaði, en orðið "aldrei" hefur ekki hvarflað að mér í þessu sambandi fyrr en núna :/

Kannski það sé málið.. að ég eigi aldrei eftir að geta treyst einhverjum fyrir hjartanu mínu aftur.. ef það er málið þá er ég ekki í góðum málum ! hef engan áhuga á að enda uppi sem einmanna, bitur og sár gömul kona :(
það er ekki eftirsóknarvert. Er málið kannski bara það að hinn eini sanni hefur er ekki mættur á svæðið ?? eða er hann kannski kominn og farinn aftur af því að ég sagði bara "niii.. held ekki, takk samt ".

sunnudagur, febrúar 18, 2007

Sæl og blessuð.. ég hef ekki verið neitt sérlega dugleg að blogga undanfarið :( en hef nú líka tekið eftir því að ég er ekki sú eina.. þetta er kannski bara eitthvað í loftinu ?? svo er það nú líka bara þannig að þegar það er ekki mikið um að vera þá er ekki mikið til að blogga um. Eeenn eftir áhugavert gærkvöld fannst mér ástæða til að skrifa nokkrar línur og pósta þær á veraldarvefnum.

Ég fór með vinnufélögum útí Viðey í gær, við eyddum saman deginum í að hlusta á allskonar áhugaverða og skemmtilega fyrirlestra, fórum í leik sem (þegar við vorum búin að læra hann ) var bara alveg ágætur, borðuðum alveg rosalega góðan mat (humarsúpu, lambakjöt og heit brání ) sungum og höfðum gaman af því að vera til :)

Þegar við komum aftur í land var haldið á Nasa í PallaPartý og mikið svakalega var gaman !! dansaði nánast allan tíma..bara þarna í endan á kvöldinu sem ég settist aðeins niður og átti mjög skemmtilegt spjall við einn af vinnufélögunum, spjölluðum um allt milli himins og jarðar og þar á meðal Eirík Hauks sem við og allir nálægt voru sammála um að væri æði ;) Verður gaman að sjá hann í Júró í maí.. hann á eftir að standa sig vel kallinn. Kvöldið var sem sagt bara mjög gott :) en því verður ekki neitað að það áttu sér stað frekar skrýtnir hlutir.. og auðvitað voru það karlmenn sem áttu þar í hlut..húú elss ?!

Það er alveg sama hvað ég reyni þá á ég eflaust aldrei eftir að skilja afhverju þeir gera hlutina sem þeir gera.. og afhverju það virðist ansi oft vera ég eða einhver sem ég þekki vel sem lendir í því að þurfa takast á við vesenið í þessum karlmönnum.. skil ekki ! Nú er ég nebbla solldið þannig að ég reyni að sleppa því að vera með vesen alltaf þegar ég get, nenni því vooooðalega lítið.. langar að alheimurinn launi mér það með því að senda mér karlmann sem er laus við það að vera með vesen. Ekki væri verra ef hann væri heiðarlegur, skemmtilegur, góður..og kannski solldið sætur ;)

miðvikudagur, febrúar 14, 2007

14. Febrúar

Í dag verður stúlka útí bæ 14 ára gömul.. veit svo sem ekki mikið um hana nema að hún er rosa sæt og eflaust alveg hreint æðisleg :) Og þó að líkurnar á að hún lesi þetta séu afsakplega litlar þá vil ég nú samt óska henni innilega til hamingju með afmælið og vona að hún finni að ég er að hugsa til hennar :)

sunnudagur, febrúar 11, 2007

MMMmmmmmm..

Úff.. hef í rauninni ekki mikið að segja.. vildi bara deila með ykkur hvað föstudagurinn var æðislega yndislegur. Laugar voru bara brill.. nuddið alveg frábært, pottþétt eitthvað sem ég geri aftur :) og svo maturinn.. men ó men.. það eru eiginlega ekki til orð til að lýsa því hversu góður hann var ! orðin rosalega, svakalega, æðislega, frábær og JÖMMÍÍÍ koma til greina.. en eru samt ekki alveg nóg. Óhætt að segja að þessi máltíð fer í eitt af 3 efstu sætin yfir bestu máltíðir sem ég hef fengið. Mæli hiklaust með Sjávarkjallaranum fyrir alla þá sem finnst gaman að prófa nýja hluti og borða virkilega góðan mat :)

föstudagur, febrúar 09, 2007

Ó Já.. :D

Það er nú ekki oft sem ég leyfi mér að eyða pening í (það sem mér finnst pínu bruðl) allsskonar snyrtistofudót.. eeenn.. ég er að fara í laugar á eftir með vinnunni minni, ætlum að láta stressið líða úr okkur fyrir helgina með því að liggja í allskonar pottum og gufuböðum, og ég ákvað að splæsa á mig nuddi á alvöru nudd/snyrtistofu !! ooohhh.. hlakka svo til :D verður æði. Svo þegar mar er búin að liggja í bleyti í öllum þessum pottum og láta nudda sig með einhverjum gúmmulaði olíum þá verður skundað niðrá Sjávarkjallara þar sem ég ætla borða ógisslega girnó mat með deildinni minni :) mmmmm... sé fram á að verða mjöööög afslöppuð það sem eftir lifir helgarinnar ;)

miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Farið burt..

Jæja.. svekkelsið og sárindin farin burt :) þýðir ekkert að vera láta sér líða ílla yfir því hvað einhverju fólki útí bæ finnst um mann.. gengur ekkert svoleiðis.. þá væri mar alltaf endalaust líðandi ílla. Það er nebbla eflaust til fullt af fólki sem líkar ekkert vel við mig og það er bara þeirra mál.. svo lengi sem allir sem skipta mig máli finnst ég ennþá æði ;)

Mitt litla hjarta :(

Jæja.. þá kom að því að einum af mínum starfsfélögum var sagt upp í gær og mætir ekki meir í vinnu.. þó að (eins og margir vita eflaust) mér og þessum einstaklingi hafi ekki komið neitt sérstaklega vel saman og mér hafi oft fundist ansi margt mátt betur fara hjá þessari manneskju.. þá líður mér bara alls ekki vel í dag. Get rétt ímyndað mér hversu sárt og erfitt það er að vera sagt upp vinnunni sinni. Ekki hjálpar það mínu litla hjarta þegar ég er að heyra það hérna að hún hafi sagt öllum sem vildu heyra áður en hún yfirgaf staðinn í gær að ástæðan fyrir uppsögninni væri ég ! Ef það væri nú bara svo að ég hefði eitthvað um það að segja hverjum er sagt upp og hverjum ekki þá væri ég væntanlega eitthvað ofar í keðjunni en ég er.. finnst líka sorglegt að fullorðin manneskja geti ekki horfst í augu við það að ástæðan er engin önnur en hún sjálf ! afhverju ekki að reyna nota tækifærið til að vinna aðeins í sjálfum sér.. en nei.. þessi kona er greinilega ekki stærri manneskja en það að hún ákvað að kenna einhverjum öðrum um. Er ekki laust við að ég sé bæði pínu sár og svekkt :( en það er sem betur fer fullt af góðu og skemmtilegu fólki að vinna með mér sem veit alveg hvernig þetta var allt saman og veit að ég hafði ekkert með þetta að gera.

Mitt litla hjarta þolir því miður svona afskaplega ílla.

mánudagur, febrúar 05, 2007

Svaka stuð ;)

Jább.. það er ekki hægt að segja annað en að það sé svaka stuð á djamminu með vinnufélögunum

Og þarna var kvöldið rétt að byrja ;)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter