þriðjudagur, mars 27, 2007

Kominn og farinn..

Afmælisdagurinn minn var mjög góður :)

Langar að byrja á að segja Takk við alla sem sendu mér sms, hringdu, commentuðu (hér eða á myspace) eða gáfu mér ammælisknús :) Ég var sem sagt bara í vinnunni meiripart gærdagsins sem var alls ekki slæmt, fékk fullt af blómum ;) sem mér finnst alltaf æðislega gaman. Þegar vinnudagurinn var búin fór ég í klippingu sem mér finnst líka alltaf æðislegt og svo fór ég og hitti stelpurnar mínar á Thorvaldsen þar sem við fengum okkur að borða og drukkum te og spjölluðum frammá kvöld :) Frábær dagur.

Annars er ég búin að komast að þeirri niðurstöðu að ég er bara alls ekki á sama stað núna og ég var á fyrir ári síðan. Og er bara glöð með það. Það er óhætt að segja að það hafi margt gengið á á síðustu 12 mánuðum og ég ákvað á sínum tíma að nýta bara þessar aðstæður sem komu upp sem tækifæri til að reyna bæta mig á ýmsum sviðum. Held að það hafi bara gengið nokkuð vel og er alltaf að verða sáttari og sáttari við þá manneskju sem ég hef að geyma í dag :)

Þannig að núna er bara um að gera að halda áfram á sömu braut og þá heldur lífið áfram að verða betra og betra.

sunnudagur, mars 25, 2007

Komið að því.. aftur..

Jújú.. á morgun á minns ammæli.

Láta oft kræla á sér blendnar tilfinningar í kringum þennan dag.. og þetta árið er engin undantekning. Finnst ekki svo slæmt að eldast.. viðurkenni samt að ég verð alltaf svolítið döpur ef ég er á sama stað og ég var síðast þegar ég átti afmæli :/ finnst einhvernvegin að ég ætti að vera komin lengra.. ef ekki lengra þá kannski bara aðeins til hliða. Er búin að vera solldið í laumi að velta þessu fyrir mér undanfarna daga.. engin niðurstaða komin ennþá en er nokkuð viss um að hún verði komin á morgun og hugsa að hún verði jafnvel bara nokkuð jákvæð :)

föstudagur, mars 23, 2007

ARRGG !

Pirri púkinn ógurlegi er í heimsókn ! vil biðja alla þá sem ég hvæsi á í dag afsökunar á því hér með. Er að vinna í að losna við hann og nýjust spár segja að hann ætti að vera farinn uppúr hádeginu.

fimmtudagur, mars 22, 2007

Síðasti sjens..

Ja.. eða svona næstum því... til að gera það upp við sig hvort mar ætlar að kíkja á Sálina annað kvöld :) Ég held alveg örugglega að ég sé að fara og að Dóra ætli að koma með mér :) Síðast þegar ég tékkaði á því ætlaði Ellen ekki :( nema náttla ég stelist til að kalla þetta ammælisdjamm..híhí en það má víst ekki svindla. Langar meira að fá stelpurnar mínar með mér eitthvað útað borða í næstu viku en á djammið um helgina.. ætli þetta sé ekki aldurinn ;)

En ef einhverjum þarna úti langar að kíkja með okkur á...

Þá er bara vera í bandi við mig á morgun ;) nú eða bara í kvöld..
e.s. meeenn hvað Stebbi er alltaf sætur :Þ

þriðjudagur, mars 20, 2007

eftir 6 daga..

Þá fer ég í klippingu :D Jeij.. hlakka mikið til.. er ekki búin að bíða í nema..hmmm 2 mánuði !

Fyrir utan þessar fréttir er ekki mikið af mér að frétta. Kíkti til Grímu og litla dúllu kúts á föstudaginn í pizzu át og vídjógláp. Pizzan var æðisleg, myndirnar ágætar alveg, Gríma frábær og litli kútur mest dúllulegur :) Á laugardaginn kíktu Ólöf Sif og Dóra til mín.. reyndar fórum ég og Dóra og fengum okkur að borða og svo kíkti Ólöf á okkur þegar við vorum komnar heim aftur. Við spjölluðum þar heilmikið um allt milli himins og jarðar og svo ákváðum ég og Ólöf að skella okkur á ball :) sé sko ekki eftir því.. ég held barasta að ég hafi ekki hlegið svona mikið síðan ég og Dóra vorum á Höfn síðasta sumar.

Næst á dagskrá er það svo að öllum líkindum Sálin á föstudaginn :) langar einhverjum memm ?

föstudagur, mars 16, 2007

Blablabla..

Ég hef ósjaldan verið kölluð áhyggjupési af fólkinu í kringum mig. Hluti af þessum endalausu áhyggjum mínum eru auðvitað algjörlega ónauðsynlegar og gera ekkert gagn og ég fæ bara hrukkur.. en hinn hlutinn af þeim á (að mínu mati) bara fullkomlega rétt á sér. Hef stundum verið sökuð um að hafa áhyggjur af hlutum sem gætu kannski verið að fara gerast eftir einhvern tíma.. skal alveg viðurkenna að það gerist af og til.. en ekki oft. Lang oftast þegar þetta gerist þá kemur í ljós seinna að allar þær áhyggjur sem ég hafði höfðu sko alveg rétt á sér.

Ástæðan fyrir þessu bloggi mínu er sú að fyrir nokkru síðan fékk ég svona áhyggjuhnút í mallakútinn, var lengi að reyna sannfæra sjálfa mig um að þetta væri nú ekkert til að hafa áhyggjur af, gekk alls ekki vel en eftir marga daga fór hnúturinn og mér leið aðeins betur. Var samt alltaf með pínu lítinn áhyggjupúka á ölxinni sem æpti á mig að ég ætti að reyna gera eitthvað í þessu, aðstæðurnar voru bara því miður ekki þannig að ég gæti gert neitt.. þurfti bara bíða og sjá. Og viti menn núna er að koma í ljós að allt sem ég hafði áhyggjur af að mundi gerast er að gerast :(

Hef alltaf verið mjög dugleg að taka mark á því þegar ég fæ svona hnút í mallakútinn.. ákvað í þetta skiptið væri nóg komið og ég þyrfti að fara vinna aðeins í þessum endalausum áhyggjum.. og eflaust er það eitthvað sem ég þarf að vera duglegri í en hef nú samt lært að taka mark á því þegar ég fæ svona hnút í mallann sem vil bara alls ekki fara. En núna er ekkert annað að gera en að bíða aðeins meir og sjá hvað verður.

Kannski alltí læ að taka fram að þetta er ekkert rosalegt stór mál.. ekkert uppá líf og dauða en gæti nú samt haft í för með sér ágætis slatta af breytingum fyrir mig og öll vitum við að breytingar eru alls ekki í uppáhaldi hjá mér :/ annað sem ég þyrfti að fara vinna í...

Annars er þessi vinnuvika senn á enda og ég segi bara góða helgi ;)

miðvikudagur, mars 14, 2007

Á voða fá orð..

Var að skoða myndir inná húsósíðunni og rakst á þessa mynd... hef svo sem ekki meir um það að segja...

mánudagur, mars 12, 2007

Komin heim..

Ferðin á Akureyrina var alveg eins og ég bjóst við.. bara mjöööög góð :)

Við lögðum af stað rétt fyrir kl þrjú á föstudaginn og vorum komnar í pizzupartý um hálf átta um kvöldið ;) færðin var ekki beint skemmtileg.. skafrenningur, hálka og krap til skiptis en múttukaggi lullaðist áfram yfir þetta allt og kom okkur heilum á leiðarenda sem er nú fyrir öllu. Eftir að hafa borðað smá pizzu tók við heilmikið spjall sem hefði eflaust staðið mun lengur ef við hefðum ekki verið orðnar svona mikið sybbnar eftir langan dag.

Laugardagurinn byrjaði með bakarís morgunmat og blaðalestri, svo kúrðum við vinkonurnar bara fyrir framan sjónvarpið þangað til við fórum útí Þelamörk að fylgjast með fótboltamótinu. Við vorum reyndar ekki að spila en lögðum okkar af mörkum með því að halda utan um hverjir skoruðu öll þessi mörk :) þegar mótið var búið fórum við útað borða á Hótel KEA og svo í partý. Þar var dansað, drukkið og mikið hlegið.. ég fór svo bara heim að lúlla eftir partý og vaknaði hress og kát alltof snemma á sunnudagsmorguninn ;) Við brunuðum svo suður í muuuun betra færi en á leiðinni norður og vorum komnar heim um sexleytið í gær.

Segi það bara aftur.. alltaf gaman á Akureyri :)

Núna er það bara næst á dagskrá að finna eitthvað sniðugt og skemmtilegt að gera þegar ég á afmæli.. einhverjar hugmynd ?

fimmtudagur, mars 08, 2007

Sjáiði bara..

Tók þessa mynd af heimasíðu litla kúts.. vona að Gríma fyrirgefi þjófnaðinn ;)

Tek mig bara ágætlega út með þennan myndar mann í fanginu ;)

miðvikudagur, mars 07, 2007

Jöööminn..

Kíkti til Grímu áðan.. og það er ekki laust við að manni langi pínu lítið í eitt svona lítið og sætt barn þegar mar er með eitt sollis í fanginu :) en bara pínu lítið ;) En já litli kúturinn hennar Grímu er bara mest fallega barn sem ég hef séð í langan tíma.. oggu pínu lítill, rosalega mjúkur og með pínu (sona fyrirbura) hár á eyrunum.. hefði getað horft á hann gera mest lítið í allt kvöld og eflaust lengur :) litlu börn eru svoooo kjúút. Hef á tilfinningunni að það eigi ekki eftir að líða neitt voða langur tími þangað til ég panta vídjókvöld á mímisveginum :)

Svo er víst alveg að koma að ródtrippi nr 1 á þessu ári.. eins og ég var búin að segja ykkur þá liggur leiðin að þessu sinni norður yfir heiðar á Agureyris. Planið er ekki alveg komið á hreint.. en ég hugsa að við verðum að leggja af stað á milli 14-15 og verðum þá væntanlega komin á leiðarenda eitthvað eftir kvöldmat.. þá hugsa ég að málið verði kannski bara vídjó og afslöppun. Laugardagurinn er svo aðal :) þá er það bara lönts, fótboltamót.. gera sig úber sæta og svo í dinner á Hótel KEA ;) eftir það verður eflaust kíkt einhvert í smá parteii og svo er aldrei að vita nema mar kíki á Bó og Baggalút á Sjallanum :) Jeij.. hlakka til.. alltaf gaman á Akureyri :D

mánudagur, mars 05, 2007

Ójá..

Jújú.. það er alveg að koma að því.. eftir 4 daga verð ég komin norður yfir heiðar í helgarfrí :)



Það verður eflaust svaka stuð eins og ávallt þegar ég skrepp í þarna norður yfir heiðar :) í þetta skiptið er tilefnið fótboltamót.. og eins og kannski einhverjir muna þá skrapp í ég líka norður af þessu tilefni þessa sömu helgi fyrir ári síðan og skemmti mér að rosalega vel :) Ég og Lára Dís ætlum að renna norður strax eftir vinnu á föstudaginn (jafnvel fyrr ef það gengur upp) og koma okkur vel fyrir og hvíla okkur aðeins fyrir átökin á laugardaginn. Þá er komið að fótboltamótinu sjálfu þar sem mér skilst að við verðum í hlutverki stigavarða annað árið í röð.. skil ekki alveg afhverju þar sem við stóðum bara alltílæ, get ekki sagt að það hafi verið meira en það.. en það var gaman hjá okkur sem er fyrir öllu :) eftir boltaleikina þá er pizza og bjór einhversstaðar á eyrinni og svo bara partý og gaman frameftir nóttu :) svakalega gott plan :D Hlakka til..

Svo að öðru.. á miðvikudaginn í síðustu viku fæddist ungur drengur.. hann er afskaplega fallegur og ég vil óska foreldrum hans innilega til hamingju.. þetta heppna fólk eru Gríma og Ásgeir, alltaf svo fallegt þegar fólk eignast börn :) og ég verð bara að viðurkenna að þegar ég sá myndir af "kúlíó" (eins og hann er kallaður í bili) þá var ekki laust við að það kæmu nokkur gleðitár.

laugardagur, mars 03, 2007

Mmm..

Mér finnst æðislega notalegt að vakna og byrja daginn á því að eiga kósý stund með sjálfri mér.. og það er akkúrat það sem ég gerði í morgun :) morgunmatur úr bakaríi, alveg splunku nýr appelsínusafi og blöðin :) Þegar maður fær tækifæri til að byrja daginn svoleiðis er það nánast ávísun á að maður eigi frábæran dag framundan.

Ég kíkti í ammælis stelpu partý til Ellenar í gær.. það var bara mjög fínt, samt alltaf pínu múúd killer þegar allir nema þú vinna hjá sama fyrirtækinu og vinnan er aðal umræðuefnið :/ en það var nú bara til að byrja með, svo tók við mikill söngur og gleði :) ég var nú samt bara komin heim um eittleytið. Hefði alveg viljað vera aðeins lengur en 1 stk mígreni ákvað að koma í heimsókn og vildi bara ekki fara :( Vona nú samt að restin af stelpunum hafi skemmt sér rosa vel og málað bæinn rauðann ;) Ég verð bara mála mína umferð seinna..

Eníhúú.. langar að benda öllum þeim sem kíkja hérna inn og voru með mér í Hússtjórnarskólanum vorið ´97 eða þekkja einhvern sem var með mér í Húsó á nýjan link undir "eitthvað til að skoða".. á þessu ári eru nefnilega komin 10 ár síðan við útskrifuðumst og nú á að gera heiðarlega tilraun til að hóa öllu þessu fólki saman og gera eitthvað skemmtilegt :)

Ætla halda áfram að hafa það kósý :) sé ykkur seinna..

fimmtudagur, mars 01, 2007

Allir saman nú !!!

Hvað segiði um að við gerum öll okkar besta til að halda þessu svona í sem lengstan tíma ??

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter