föstudagur, ágúst 31, 2007

Mitt litla hjarta..

Ég hef svo sem sagt ykkur áður frá því hvað ég höndla ílla þegar ég held að einhver sé reiður, fúll.. eða bara eitthvað annað en sáttur við mig.

Það skiptir mig miklu máli að standa mig vel í vinnunni og ég veit að ég er að standa mig vel. Svo kom upp í dag einhver misskilningur með vinnutímann minn.. ég hélt að hann væri óbreyttur að öllu leyti fyrir utan eina viku í mánuði þegar ég er 3 daga frá 11-19. Annars vinn ég venjulega frá 9-17 nema föstudaga þá er það 9-16 ( eins og ég hef verið síðastliðin 3 ár) , eða svo hélt ég :/ svo kemur það upp í dag þegar ég er að fara kl 16 að bossinn bjallar og spyr afhverju ég sé eiginlega farin kl 16 ?? Ég kom bara alveg af fjöllum og bara "ha.. ég vinn bara til 16 á föstudögum" þá kemur það í ljós að við vorum greinilega ekki alveg á sömu blaðsíðunni vegna þess að hún hélt að ég væri alla daga til 17.. sem ég verð sem sagt hér eftir.

Þetta er nú svo sem ekki eitthvað stórmál ( eða vona ekki ) en meeeen hvað mér leið ílla...úff :( vil alls ekki að hún haldi að ég sé bara eitthvað fara bara þegar mér hentar !! það er svoo ekki ég.. eins og ég sagði áður þá skiptir það mig miklu máli að standa mig vel í vinnunni og það að vera til 17 á föstudögum er alls ekki eitthvað mál fyrir mig. Kannski nokkrir föstudagar á ári sem það er fínt að vera búin kl 16 en annars bíttar það mig ekki miklu máli að vera klukkutíma lengur í vinnunni.

Ótrúlegt hvað eitthvað svona lítið getur sett mann alveg í hnút :(

En helgin er framundan og ekkert nema gott um það að segja.. vona bara að þessi hnútur í mallanum mínum hverfi fljótlega :) verð að fara vinna í því að vera ekki með svona lítið hjarta !

fimmtudagur, ágúst 30, 2007

er það málið ??

Djammið á laugardaginn.. er það eitthvað sem einhver hefur áhuga á ? púkinn er kominn í heimsókn..

Svona fyrir utan þessar vangaveltur er gott að frétta, það er bara fínt að vera komin aftur á fullt í vinnunni. Gaman að hitta allt skemmtilega fólkið aftur eftir sumarfrí og svo er víst alltaf nóg að gera í djamminu á haustin og dagskráin, eins og hún lítur út í dag, er eftirfarandi..

8. sept Bústaðar/Húsasmiðju Rejúníon.. kemur í ljós hvort mar kíkir
15. sept Singstar Parteiii.. samt bara kannski..fer eftir stemmingu og mætingu..
22. sept Landvari
28-30. sept Köben í fyrsta skiptið.. vúhú
5. okt Keilumót Samstarfs.. ekki alveg komið á hreint en kvöldið frátekið
20. okt Samskipa Árshátíðin
3. nóv Glamúrdinner Gleðikvenna
23. nóv Árlegt kúnnaboð Samskipa á Kaffi Reykjavík.. dags. ekki staðfest en kvöldið frátekið

Þannig að ef það er eitthvað sem þið eruð að plana og viljið endilega að ég mæti þá má það ekki vera á þessum dagsetningum ;)

þriðjudagur, ágúst 28, 2007

Jæja þá..

Býst við að enginn hafi svar við þessari spurningu minni :( ég ásamt greinilega nokkrum öðrum held bara áfram að basla í gegnum lífið. Ætla njóta þess í botn við hvert tækifæri sem gefst :) og þegar það kemur fyrir að ég vakna og allt er hálf erfitt þá er kannski bara málið að muna eftir því hvað lífið getur líka vera gott :)

föstudagur, ágúst 24, 2007

æ vonnder vææ..

Afhverju ætli það sé að suma daga er lífið ekkert nema gott og suma daga á maður í erfiðleikum með að finna bara eitt gott ??

Skrýtið.. vegna þess að það er ekki eins og maður vakni á morgnana og allt er breytt frá því deginum áður en samt einhvernveginn er lífið aðeins erfiðara en það var daginn áður..

Hvað er málið með það ?? Svar óskast sem fyrst.

þriðjudagur, ágúst 21, 2007

Loksins loksins..

Nú fer að koma að því að ég þarf að fara halda Singstar-partý.. er búin að fjárfesta í nýju sjónvarpi og núna loksins loksins..Heimabíói :) er að missa mig í kaupæðinu ! en ekkert til að hafa áhyggjur af.. ennþá ;)

Þannig að núna þarf bara finna dagsetningu sem hentar þannig að allt skemmtilega fólkið getur mætt á svæðið svo það verði úúúber stuð :D

Jeij.. ætla halda áfram að glápa ;)

sunnudagur, ágúst 19, 2007

Traust.. skiptir öllu

Um daginn heyrði ég setningu sem er búin að vera veltast fram og tilbaka í hausnum á mér síðan ..

“ Ef þú átt erfitt með að treysta öðrum þýðir það að þú treystir ekki sjálfum þér ”


Þessi setning á svo mikið erindi til mín.. ég hef alltaf átt erfitt með að treysta fólki og veit að það er vandamál mín megin. Þó að ég hafi vitað þetta í mörg ár þá hef ég samt ekki ennþá fundið leið til að sigrast á þessu. Vandamálið er að ég veit ekkert hvernig ég á að fara að því.. það að hafa trú á sjálfum sér er einhverra hluta vegna mun erfiðara en að hafa trú á öðru fólki.

fimmtudagur, ágúst 16, 2007

Þjóðminjasafnið..binn ðer dönn ðett

Jább.. búin að fara og skoða allt hátt og lágt á Þjóðminjasafni okkar Íslendinga, næst á dagskránni er svo Árbæjarsafn, hvenar sú ferð verður er ekki komið á hreint en ætli það sé ekki óhætt að segja að það verði einhvern tímann á næstu 12 mánuðum ;) En já, Þjóðminjasafnið var fínt.. rosa flott sýning og fullt af mjög fallegum hlutum. Mæli með því að fólk gefi sér tíma til að kíkja á þetta.. alltaf frítt á miðvikudögum.

Næsti skammtur af menningu verður svo á laugardaginn, planið þá er að rölta um bæinn og drekka í sig alla þá menningu sem fæst yfir daginn og fara svo á tónleika um kvöldið, kíkja svo heim þar sem drukkið verður áfengi og svo trítla (ja eða bara fara leigubílandi) aftur í bæinn seinna um kvöldið og tjútta frammá rauða nótt ;) Þeir sem kíkka hingað inn og þekkja mig er velkomið að vera memm í þessu menningarhúbblai öllu.. það eina sem þarf er að láta heyra í sér ;)

þriðjudagur, ágúst 14, 2007

??

Hvað ætlar ÞÚ að gera á menningarnótt ??

mánudagur, ágúst 13, 2007

Góð byrjun..

Þá er maður komin aftur í sumarfrí :) mikið er það gott. Byrjaði fríið á því að vakna alltof snemma eftir að hafa ekki farið að sofa fyrr en rúmlega 5 í nótt. En það er í lagi aþþí ég er í fríi og get bara lagt mig ef ég er sybbin :D

Ekki mikið í fréttum.. dagurinn fór í að fara í klippingu og kíkja á Ellen og Dóru í Egginu. Ég elska að gera ekki neitt :)

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

Vúhú og vangaveltur..

Vúhú dótið mitt frá útlandinu er komið :D og það er eins gott að einhver taki eftir því hvað hárið mitt verður fínt næstu daga !

Mér leiðist að tala í síma, ég tala mikið í síma í vinnunni þannig að heima hjá mér nenni ég voðalítið að spalla í símann. Ef ég þarf að tala við fólk þá vil ég helst gera það svona feis tú feis. Eða nota sms og/eða msnið ;) Það kemur nú samt alveg fyrir að ég spjalla við fólk í síma.. en það er yfirleitt alltaf sama fólkið. Sumir eru mikið fyrir að tala saman í síma og sumir ekki.. þannig er það bara. Ástæðan fyrir því að ég minnist á þetta er sú að um daginn hringdi síminn minn.. í eftirfarandi er ég A og sá sem hringdi B.

A: Hæhæ, hvað segiru ?
B: Fínt..
A:(eftir smá stund) já.. gott að heyra, er ekki gaman hjá þér?
B: Júts.. rosalega gaman.
A:(aftur eftir smá stund) Já.. frábært, og hvað á að gera í kvöld?
B: bara fara í mat og svo kíkja út.
A: hljómar vel.. heyrðu ég segi þá bara góða skemmtun og við heyrumst. Bæbæ
B: Bæbæ

Þetta var samtal sem tók svona 5 mínútur.. og var alveg hræðilegt ! afhverju að hringja í einhvern ef þú ætlar ekki að segja neitt.. ?? ég skil ekki svona... svona samtöl eru svooo tilgangslaus. Það að bjalla í einhvern bara til að heyra í honum/henni er voða sætt og stundum þarf maður á svoleiðis að halda... en í gvuðanabænum ef þið bjallið í mig.. þá væri voða fallegt af ykkur að hafa eitthvað að segja, sýna mér smá áhuga.. svona fyrst þú varst nú að bjalla eða hafa símtalið það stutt að það verði ekki vandræðalegt.. allt og sumt sem ég bið um :)

En núna þegar ég er búin að koma þessu frá mér þá ætla ég að fara skoða allt fína nýja dótið mitt :D og njóta þess að í dag er fimmtudagur og ég á bara eftir að vinna á morgun og er svo farin aftur í frí :D

miðvikudagur, ágúst 08, 2007

Ljósið við endan á göngunum..

Líður ömurlega :( er heima lasin.. dagur 4 af ógeðiskvebbi og ennþá ógeðslegri hálsbólgu. En fékk fullt af allskonar dópi hjá lækninum í gær og er orðin miklu betri í dag en ég var í gær :) fór meira segja í vinnuna í smá tíma í morgun, ef gafst upp rétt eftir hádegi :( En miðað við hvað ég er búin að sofa svakalega mikið í dag og hvað ég ætla að sofa mikið í kvöld og nótt þá ætti ég að verða orðin eins og ný í fyrramálið :)

Eeenn.. það sem er samt best við þessa vikuna er það að dótið sem ég pantaði mér í útlöndunum kemur til mín á morgun eða hinn :D jeij..

föstudagur, ágúst 03, 2007

Vúhú..

Þá er geðveikin búin í bili og í næstu viku ætti allt að ganga bara eins og vel smurð vél ;) sem er ekkert nema gott mál.

Svona fyrir utan þessar fréttir er eiginlega ekkert í fréttum.. en mitt líf aðallega snúist um vinnuna undanfarna daga :/ ekki gott.. en það verður sko aldeilis breyting þar á eftir daginn í dag ;) Þannig að ég ætti að hafa eitthvað skemmtilegt að segja ykkur eftir helgi ;)

fimmtudagur, ágúst 02, 2007

ógisslega dúlllegar

Já.. það er óhætt að segja að duglegt, samviskusamt og skemmtilegt samstarfsfólk er algjörlega ómetanlegt :) veit að það er ennþá 1 dagur eftir af vikunni en ég ætla bara samt að þessi vika hefur gengið vonum framar og ég er ekkert nema glöð með það :D

Hef samt ekkert að segja.. vildi bara deila þessu með þeim sem kíkja hérna við..

Blessóó

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter