Ójá.. fór..sá og stóð ;)
Jæja, ég lifið sjó"sundið" af og fannst þetta svo gaman að ég ætla aftur.. og það helst bara strax í næstu viku :)
Við mættum þarna niður eftir ( í Nauthólsvíkina ) rétt um klukkan 11 og vorum komnar í gallann ( sundbolina ) nokkrum mínútum seinna.. og skelltum okkur útí.. við tókum Baywatch á þetta og hlupum útí ískaldann sjóinn. Í fyrstu ferð fórum við uppað mitti, stoppuðum í smá stund og hlupum svo aftur uppúr.. við fórum svo strax aftur ofaní og í þetta skiptið alla leið uppað öxlum, stoppuðum ekki mjög lengi í þetta skiptið en fórum ofaní í 3ja skiptið og þá aftur uppað öxlum og vorum ofaní í smá tíma.. ætli þetta hafi ekki verið svona um 3-4 mín allt saman.. sem mér skilst að sé bara nokkuð gott svona miðað við fyrsta skipti og það í brjáluðu roki ;) Þegar þetta var búið þá náðum við okkur í smá hita í kroppinn með því að stoppa í heita pottinum á leiðinni í sturtu. Þetta var ótrúlega lítið mál.. miklu minna mál en ég hélt.. eftir því sem stóð í gestabókinni í Nauthólsvíkinni var sjórinn 8° heitur sem er ekki mjög mikið.. en eflaust er hann oft mun kaldari.
Þegar þetta var búið þá mættum við aftur ofur ferskar í vinnu.. nema það er svo skrýtið.. um eitt leytið þá leið mér eins og ég hefði að koma af ofur bootcamp æfingu.. þessi vellíðunar-þreytu-ég var svo dugleg tilfinning sem er svo góð og í gærkvöldi var ég alveg búin á því.. og var ennþá þreytt þegar ég vaknaði í morgun.
En sem sagt.. sjó"sund" sem verður kannski einhverntíman að alvöru sjósundi var æði.. við hlógum allann tímann og skemmtum okkur alveg svakalega vel og planið er að fara aftur næsta miðvikudag :)


1 Comments:
Harkan í þér stelpa. Mér líst mun betur á að sitja í heitu pottunum og worka tanið ;o)
En það verður nú líklega betra veður á ykkur þegar þið farið næst, soldið köld "golan" sem var alla síðustu viku.
JK
Sendu inn athugasemd
<< Home