upp og niður..
Undanfarna daga er ég búin að vera mikið upp og niður.. eða kannski réttara að tala um undanfarnar vikur.. ég vakna og mér líður ýmist vel, er ofur hamingjusöm eða alveg úber grömpí.. og svo líður á daginn og ég fer alveg á hinn endan á skalanum og aftur tilbaka og bara útum allt ! Þetta getur verið frekar þreytandi.. þegar það eina sem mig langar er að vera hamingjusöm alltaf.. ég veit samt alveg að lífið er upp og niður hjá öllum og ég hef ekkert á móti smá sveiflum en komm on.. allur skalinn og suma daga oft er kannski fullmikið af því góða.. er þaggi ?
Kannski er erfiðara en ég hélt fyrir mig að vera komin aftur í samband.. ekki það.. mér finnst ég vera mjög heppin kona að hafa fundið hann Benna og hann er alltaf rosalega góður við mig.. en það eru mikil viðbrigði að eftir helling af árum að því að hafa ekkert að hugsa um nema sjálfa mig að þurfa allt í einu að fara taka tillit til annars aðila.. en hey.. ég bara æfi mig aðeins meira og þá verður þetta allt í gúddí ;)
Svo er sumarið bara hálfnað.. áður en ég veit af verða að koma jól.. aftur.. þetta sumar er samt búið að vera frábært.. ekkert nema gott veður, knús og kossar nánast alla daga :) Núna eru rúmar 2 vikur í að ég fari aftur í fríi og þá er planið að gera meira af engu :) fer í klippingu, ætla fara og fá mér sushi með Láru og eflaust eitthvað fara á rúntinn um sveitina.. verður ofur næs :)


1 Comments:
Reyndu þá bara að njóta þess sem best þegar hamingjan er við völd :)
Þetta kemur allt með æfingunni ;)
Ellen
Sendu inn athugasemd
<< Home