föstudagur, ágúst 07, 2009

Ég fer í fríið.. fer í fríið..

Sumarfrí part II byrjar tækinlega ekki fyrr en á mánudagsmorgun.. en byrjar samt eiginlega bara núna í dag klukkan 16:30 ;) jessss.. hlakka mikið til.. ætla auðvitað að gera allt í heiminum en enda eflaust á því að gera lítið sem ekkert :) leiðist það ekki mikið sko.. En fríið kemur til með að byrja á hand og fótsnyrtingu og mig hlakkar ekkert lítið til ! aldrei farið í handsnyrtingu áður.. og finnst æði að fá fótsnyrtingu..

Annars gengur lífið bara ágætlega.. hausinn á mér er nú samt búinn að vera á einhverju flakki.. mig langar í ró og næði í hausnum á mér.. en það kemur að því einn góðan veðurdag.. efast ekki um það.. og ég hef svo sem aldrei verið neitt rosalega klár í að höndla breytingar en gengur samt betur núna en oft áður ;)

Ení hú.. ég er komin í alltof mikinn frí fíling og er þar af leiðandi ekkert að nenna vinna.. þannig að ég sit og blogga í staðinn ;)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter